Fréttablaðið - 31.07.2015, Side 6
31. júlí 2015 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
VEISTU SVARIÐ?
1. Hver er lögreglustjóri í Vestmanna-
eyjum?
2. Gunnar Bragi gefur lítið fyrir gagn-
rýni hvers á Evrópustefnu stjórnar-
innar?
3. Í hvaða frönsku borg er annar inn-
gangur Ermarsundsganganna?
SVÖR
1. Páley Borgþórsdóttir 2. Árna Páls Árna-
sonar 3. Calais
NÁTTÚRA Í Holuhrauni, skammt
frá Svartá, hefur nýlega uppgötv-
ast heitt vatn sem fólk er þegar
byrjað að baða sig í. „Þetta er
alveg stórkostlegt. Það er ekkert
öðruvísi,“ segir Frímann Guð-
mundsson, skálavörður í Dreka
í Dyngjufjöllum, sem skoðaði
aðstæður í fyrradag. Hann segir
að það megi frekar lýsa þessu
sem á en læk. Þetta sé 30 senti-
metra djúpt og nokkrir metrar á
breidd. „Mér fannst alveg straum-
urinn í þessu vera það mikill að
þú syndir ekki á móti því. Þetta
eru örugglega yfir 1.000 sekúndu-
lítrar,“ segir Frímann í samtali
við Fréttablaðið. „Þetta er langt
og þó nokkuð mikið svæði,“ bætir
hann við.
Frá Dreka að hrauninu eru um
fimmtán kílómetrar. En Frímann
segir að þegar komið sé að hraun-
inu sé aðgengið að þeim stað þar
sem heita vatnið er nokkuð þægi-
legt. „Það er farið niður fyrir
hraunið að Svartá. Þar hafa land-
verðir merkt slóð inn á hraun-
ið. Maður getur bara farið niður
fyrir hraunið og gengið inn með
því og þá eru þetta kannski 150
metrar,“ segir Frímann.
Magnús Tumi Guðmundsson,
prófessor í jarðeðlisfræði við
Háskóla Íslands, segir að hraun-
ið hafi runnið yfir lindarsvæði.
Þarna sé verulegur hiti í hraun-
inu enda sé það 20 metra þykkt.
„Lítill hluti þessa lindarvatns
gufar upp en meiriparturinn af
því hitnar dálítið og kemur fram
sem þetta heita vatn. Þetta er búið
að vera þarna í sumar en svo mun
það hætta þegar hraunið kólnar,“
segir Magnús Tumi. Hann ítrekar
að ekki sé hægt að gera ráð fyrir
því að þarna verði varanleg heit
lind. „Alls ekki. Þetta er tíma-
bundið,“ segir Magnús Tumi.
Frímann tók nokkrar ljósmynd-
ir þegar hann skoðaði aðstæður
í fyrradag og fylgja þær þessari
frétt. Hann segir að gróðurmynd-
un í vatninu virðist töluverð sem
útskýrir litinn á myndinni hér til
hægri. - jhh
Baða sig í heitri lind í Holuhrauni
Skammt frá Svartá í Holuhrauni hefur myndast vatn sem fólk getur baðað sig í og hafa nokkrir landverðir og ferðamenn nú þegar prófað.
Skálavörður í Dreka segir aðgengið að vatninu auðvelt. Prófessor í jarðeðlisfræði segir að þessar aðstæður breytist þegar hraunið kólnar.
VIÐSKIPTI Vinirnir Ásta Ósk
Hlöðversdóttir og Sölvi Dúnn
Snæbjörnsson vinna nú hörð-
um höndum að því að opna eitt
minnsta brugghús landsins í
Grafarholti.
Fáist öll leyfi er ráðgert að hefja
framleiðslu í haust og brugga
2.000 til 2.500 lítra á mánuði. Til
samanburðar bruggar Ölgerð
Egils Skallagrímssonar tæplega
200 þúsund lítra af Egils Gulli,
einum vinsælasta bjór landsins, á
mánuði.
Sölvi segir að áhersla verði lögð
á nýbreytni við bruggun. „Við
ætlum að reyna að brugga nýjan
bjór allt að mánaðarlega og vera
svo með nokkrar bjórtegundir í
stanslausri framleiðslu,“ segir
Sölvi.
Sölvi segir minni framleiðslu
skapa aukinn sveigjanleika. „Þá
getur maður prófað skrítnari bjór
án þess að eiga það á hættu að fara
á hausinn. Hver bruggun kostar þá
miklu minna en hjá stóru brugg-
húsunum. Þetta verður mjög til-
raunakennt,“ segir Sölvi.
Fyrst um sinn stefna þau að
því að selja afurðir sínar á bjór-
bari bæjarins en í framhaldinu
að komast að í verslunum ÁTVR.
„Við verðum þá langminnsti bjór-
framleiðandinn í ríkinu,“ segir
Sölvi. - ih
Eitt minnsta brugghús landsins hefur bjórframleiðslu í haust og ætlar að herja á barina:
Leita leyfa fyrir brugghúsi í Grafarholti
Þá getur
maður prófað
skrítnari bjór
án þess að
eiga það á
hættu að fara
á hausinn.
Sölvi Dúnn Snæbjörnsson
bruggari
NORÐUR-KÓREA „Það að Bandaríkjamenn
hampi vilja sínum til samningaviðræðna og
sveigjanleika á meðan þeir standa í stórfelld-
um hern aðar aðgerðum gegn okkur er hámark
hræsninnar,“ sagði nafnlaus talsmaður utan-
ríkis ráðuneytis Norður-Kóreu í gær.
Norður-Kóreumenn hafa undanfarið sagst
engan áhuga hafa á því að semja um svipað
samkomulag og stórveldi heimsins, Þýskaland,
Bandaríkin, Rússland, Bretland, Kína, Frakk-
land og Evrópusambandið, gerðu við Írana um
kjarnorkumál þar í landi. Þessi ummæli renndu
stoðum undir þá stefnu.
Nú kennir utanríkisráðuneytið Bandaríkj-
unum alfarið um að ekki sé hægt að komast að
samkomulagi. „Þetta er ekkert nema ódýr brella
til að setja pressuna á okkur og kenna okkur um
viðræðuleysið,“ sagði talsmaðurinn enn fremur.
Hann sagði ekki hægt að hefja viðræður fyrr
en Bandaríkjamenn hætta árlegum hernaðar-
æfingum með Suður-Kóreu. Viðræðurnar myndu
fara fram milli Norður- og Suður-Kóreu, Japans,
Kína, Rússlands og Bandaríkjanna, en ríkin hafa
ekki fundað í sex ár.
Norður-Kóreumenn ítrekuðu einnig að þeir
hygðust ekki afsala sér kjarnorkuvopnabúri
sínu, sem í eru um það bil þrjátíu kjarnorku-
sprengjur. - þea
Norður-Kóreumenn firra sig allri ábyrgð á skorti á viðræðum við stórveldin um kjarnorkumál landsins:
Kenna Bandaríkjunum um viðræðuleysið
ÁKVEÐINN Kim Jong-Un, leiðtogi Norður-Kóreu, vill
ekki missa kjarnorkuvopnabúr sitt. NORDICPHOTOS/AFP
3
0
-0
7
-2
0
1
5
2
1
:5
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
9
B
-E
C
8
4
1
5
9
B
-E
B
4
8
1
5
9
B
-E
A
0
C
1
5
9
B
-E
8
D
0
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K