Fréttablaðið - 31.07.2015, Side 16
31. júlí 2015 FÖSTUDAGUR| TÍMAMÓT | 16TÍMAMÓT
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar
elskulegrar eiginkonu minnar, móðir minnar,
tengdamóðir, ömmu og langömmu,
GUÐMUNDU MAGNFRÍÐAR
INGIMUNDARDÓTTUR
Sólvangsvegi 1.
Egill Egilsson
Ómar Egilsson Sigrún Sigurþórsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Föðurbróðir minn og frændi okkar,
BJÖRN ÁSGRÍMSSON
Suðurgötu 14, Sauðárkróki,
lést á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki
29. júlí síðastliðinn. Útförin fer fram frá
Sauðárkrókskirkju laugardaginn 15. ágúst
kl. 11.
Gísli Einarsson og fjölskylda
Okkar elskulegi pabbi, fósturfaðir,
sonur, bróðir og mágur,
ÞORGRÍMUR EINARSSON
TOGGI
andaðist mánudaginn 27. júlí sl.
Sigmundína Sara, Kolfinna Líf
Breki Þór, Viljar Máni, Einar
Bryndís Eysteinsdóttir
Einar Þorgrímsson Sigurlína Sveinsdóttir
Eysteinn Ó. Einarsson Kristrún Úlfarsdóttir
Vífill Valdimarsson
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ÞÓRUNN PÁLSDÓTTIR
Dalbraut 27,
lést á Landspítalanum þann 28. júlí.
Guðrún Matthíasdóttir Óskar Heimir Ingvarsson
Halldór Örn Óskarsson Þrúður Vilhjálmsdóttir
Bjarni Már Óskarsson Sigurbjörg Linda Sigurðardóttir
Þórunn Halldóra Matthíasdóttir
Matthías Þór Óskarsson Hugrún Elfa Hjaltadóttir
Jón Arnar Óskarsson Jóna Guðbjörg Árnadóttir
Guðrún Óskarsdóttir Björn Patrick Swift
Þórunn Óskarsdóttir Jóhann Þór Kristþórsson
og barnabarnabörnin.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐRÚN HJARTARDÓTTIR
Sóltúni 28, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli fimmtu-
daginn 23. júlí síðastliðinn. Útförin fer fram
frá Laugarneskirkju mánudaginn 10. ágúst
kl. 13.00.
Marteinn Guðjónsson
Guðjón St. Marteinsson Edda Guðgeirsdóttir
Hjörtur Marteinsson Guðbjörg Lind Jónsdóttir
Valur Þór Marteinsson Guðný Pálína Sæmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
„Ég held ekkert veglega upp á
afmælið að þessu sinni. Var með fína
veislu þegar ég varð fimmtug og veit
að vinir mínir muna eftir henni. Þeir
geta alveg beðið eftir stórveislu þar
til ég verð sjötug,“ segir hin sex-
tuga Kolbrún Halldórsdóttir leik-
stjóri hress. „En fjölskylda mín fagn-
ar með mér og nánustu vinir, fyrir
utan Ölmu dóttur okkar sem er úti
í Ungverjalandi með Hamrahlíðar-
kórnum. Sonurinn Orri Huginn verð-
ur hér með sína konu og tvær dætur
sem eru sex ára og eins og hálfs árs.
Þau búa hér á Vesturbæjartorfunni,“
segir Kolbrún og talar eins og sveita-
kona.
Kolbrún situr ekki með hendur í
skauti þótt hún sé hætt að beita sér á
Alþingi. Hún er bæði forseti Banda-
lags íslenskra listamanna (BÍL) og
framkvæmdastjóri og vinna hennar
felst í að sinna heildarhagsmunum
listafólks. „Það eru fagfélög allra
listgreina sem sameinast í BÍL. Sam-
tals fimmtán félög sem eru undir
þeirri regnhlíf. Formennirnir funda
einu sinni í mánuði og við höfum náð
að halda vel á spöðunum í öllum þeim
atriðum sem skipta listamenn mestu
máli. Erum auðvitað bandamenn
framsækinna stjórnvalda sem vilja
veg skapandi greina sem mestan,“
útskýrir hún.
Ekki nóg með það, heldur er Kol-
brún líka forseti European Council
of Artists (ECA) sem er regnhlíf yfir
sams konar félagsskap í löndum álf-
unnar og Bandalag íslenskra lista-
manna er hér á landi. Stór hluti af
starfi Kolbrúnar er fólginn í því að
fylgjast með þróuninni í starfsum-
hverfi listamanna, ekki síst lagalegu
hliðinni, til dæmis á vettvangi höf-
undarréttar. Hún telur það því hafa
gagnast forystu listamanna að senda
hana í pólitík í tíu ár því þar hafi hún
lært margt sem nú kemur að góðum
notum.
Spurningu um hvort hún sakni
embættis umhverfisráðherra svarar
hún játandi. „Ég gegndi því nú ekki
nema í hundrað daga og hefði alveg
verið til í að staldra lengur við, enda
finnst mér margt ógert enn í mál-
efnum umhverfisins. Skelfist mest
af öllu Sprengisandslínu og sæstreng
með raforku yfir til Evrópu. Alveg
ótrúlegt hversu seint við ætlum að
læra út á hvað hugmyndafræði sjálf-
bærrar þróunar gengur.“
Kolbrún kveðst lítið hafa ferðast
í sumar. Jú, reyndar út í Viðey. „Ég
fór í siglingu,“ segir hún hlæjandi.
„En við hjónin ætlum til Rómar í
haust. Ég er varaforseti norrænnar
menningarstofnunar í Róm, Chicolo
Skandinavo, þar sem reknar hafa
verið listamannaíbúðir í 160 ár. Þar
dvöldu Thorvaldsen, Halldór Lax-
ness, H.C. Andersen, Einar Ben og
fleiri merkir menn á sinni tíð þannig
að stofnunin stendur á gömlum merg.
Ég fer á fund þangað í október og við
Ágúst ætlum að nota tækifærið og
verja viku saman í Róm. Ég hef alltaf
heillast af Ítalíu, allt frá því ég kom
þangað fyrst og það er gott að vera í
Róm að hausti til þegar mesti ferða-
mannatíminn er liðinn.“
gun@frettabladid.is
Vaktar löggjöf tengda
listum og menningu
Kolbrún Halldórsdóttir, leikstjóri og fyrrverandi umhverfi sráðherra, er sextug í dag. Hún
hefur lítinn áhuga á að ræða afmælishald en brennur fyrir hagsmunum listamanna.
AFMÆLISBARNIÐ „Alveg er ótrúlegt hversu seint við ætlum að læra út á hvað hugmynda-
fræði sjálfbærrar þróunar gengur,“ segir Kolbrún. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ
MERKISATBURÐIR
1927 Erlingur Páls-
son sundkappi syndir úr
Drangey til lands. Ekki er
vitað til að nokkur hafi
leikið það eftir síðan á
dögum Grettis.
1935 Tryggvi Þórhallsson,
bankastjóri Búnaðarbank-
ans, andast, 46 ára að
aldri.
1948 Fossvogskirkja í
Reykjavík er vígð.
1971 Áhöfn Appollo 15
prófar sérstaka bifreið á
tunglinu.
2011 Tæplega átta hundr-
uð manns láta lífið í flóð-
um á Taílandi.
„Við Eva Þyri Hilmarsdóttir og Pamela
de Sensi verðum með stofutónleika á
Gljúfrasteini á sunnudag, með franska
og íslenska tónlist í farteskinu,“ segir
Hlín Pétursdóttir Behrens söngkona.
„Það eru jú alltaf einhverjir sem eiga
ekki heimangengt eða hreinlega njóta
höfuðborgarsvæðisins sérstaklega um
verslunarmannahelgina,“ bendir hún á.
Hlín kveðst hlakka til tónleikanna á
á heimili skáldsins. „Nándin þar í stof-
unni er bæði áskorun og kostur,“ segir
hún. „Andrúmsloftið er þegar til staðar
og maður mætir því sem flytjandi og
kemst á flug. Það er mín reynsla, bæði
af því að syngja þar og mæta á tónleika.
Hún segir tónlistina sem þær stöllur
ætla að flytja vera eftir Ravel, Saint-
Saëns, Caplet og Cheminade, auk þess
sem þær flytji verk eftir André Previn
og Jóhann G. Jóhannsson.
Tónleikarnir hefjast klukkan 16 á
sunnudag. Miðaverð er 1.500 krónur.
- gun
Nándin er bæði áskorun og kostur
Franskt fínerí er í boði á stofutónleikum á Gljúfrasteini á sunnudaginn.
SÖNGKONAN Hlín hlakkar til að að syngja í stofu skáldsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
En fjölskylda mín
fagnar með mér og nánustu
vinir, fyrir utan Ölmu dóttur
okkar.
3
0
-0
7
-2
0
1
5
2
1
:5
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
9
B
-E
2
A
4
1
5
9
B
-E
1
6
8
1
5
9
B
-E
0
2
C
1
5
9
B
-D
E
F
0
2
8
0
X
4
0
0
4
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K