Fréttablaðið - 31.07.2015, Page 18
FÓLK|
SKRÁÐU
ÞIG Í VILD!
Fríðindakerfi
fyrir áskrifendur 365
50%
AFSLÁTTUR
50%
AFSLÁTTUR
30%
AFSLÁTTUR
30%
AFSLÁTTUR
25%
AFSLÁTTUR
40%
AFSLÁTTUR
af skyrtuhreinsun
7 KR.
AFSLÁTTUR
50.000 KR.
AFSLÁTTUR
YFIR
FERÐIR Á
BETRA VERÐI
Allir áskrifendur sjónvarps- eða fjarskipta-
þjónustu 365 fá nú sjálfvirkan afslátt hjá fjölda
fyrirtækja og verslana án þess að þurfa að biðja
um hann. Það eina sem þarf að gera er að skrá
greiðslukort fjölskyldunnar í VILD á 365.is.
skráðu þig á365.is
30.000 KR.
AFSLÁTTUR
af golfferð til Flórída með Trans Atlantic
og líklega frá Danmerkurárum
hennar og pabba upp úr 1970.
Þetta er kannski ekki hollasti
rétturinn en það má nú leyfa sér
ýmislegt stundum.“
ÖMMU LILLU RÉTTURINN
Makkarónupasta, um 100 g á
mann (muna að salta vatnið)
Dós af niðursoðnum maís-
baunum
Góð medisterpylsa
Fáránlega mikið af rifnum
osti, a.m.k. tvöfalt meira en
eðlilegt má teljast!
Makkarónur eru soðnar
samkvæmt leiðbeiningum.
Pylsan er skorin í litla bita, vatni
hellt úr maísdós og passa skal
að hafa heilmikið af rifnum osti
tilbúinn. Ef bara ein prímus-
hella er til staðar skal fyrst
sjóða pastað og hafa
pylsubitana
tilbúna á
pönnu og
skella þeim
í steikingu
þegar
pastað er til.
Vatni hellt af
pastanu og
smá smjörklípu
eða olíu bætt út í
svo makkarónurnar
klessist ekki saman. Þegar
pylsubitarnir eru heitir er
maísbaunum bætt út í
og hitaðar aðeins. Þessu
næst er maísbaununum
og pylsubitunum hellt yfir
í pastapottinn. Allt hrært
vel saman og ótrúlegu
magni af rifnum osti
bætt við. Setjið lokið
á pottinn svo þetta
bráðni allt á met-
tíma. Svo er kallað á
krakkana úr útileikj-
unum og þetta er allt
saman borðað upp til agna.
■ starri@365.is
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður
auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í
formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig
hefðbundið
ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
HELGIN
Matur frá Miðjarðarhafinu finnst mér vera góður, ítalskt, grískt, spænskt og franskt er í uppá-
haldi,“ segir Sigurrós Jóns Bragadóttir
viðskiptafræðingur. „Mér finnst gaman
að borða góðan mat og skemmtilegt að
vera með stórum hópi og elda saman.
Svo hef ég gaman af að ferðast og
reyni þá alltaf að smakka eitthvað nýtt
og spá í nýjar bragðtegundir.“
Sigurrós finnst að stór partur af
matargerðinni sé að gefa sér tíma til að
elda og njóta matarins eins og gert er
í Suður-Evrópu. Hún trúir því að allir
geti eldað góðan mat ef hráefnið er
gott og þegar hún eldar reynir hún að
leyfa hráefninu að njóta sín sem best.
„Mér finnst gaman að elda og ég nota
mikið af grænmeti, fiski og lambakjöti í
eldamennskuna. Svo nota ég alls konar
jurtir og ávexti til að blanda saman
við.“
Sigurrós gefur hér gómsætar upp-
skriftir að grillaðri bleikju, strengja-
baunum með hvítlauk, sítrónu og
parmesanosti og sælgætis-ostaköku
sem er tilvalinn eftirréttur.
GRILLUÐ BLEIKJA
MEÐ SÍTRÓNU OG LIME
4 stk. bleikjuflök
Sítrónupipar og salt eftir smekk
Börkur af sítrónu og límónu
Setjið flökin í álpappír án þess að loka
fyrir. Kryddið með sítrónupiparnum og
Maldon-salti. Grillið á hæsta hita án þess
að loka grillinu, fiskurinn á að steikjast frá
botni og upp. Þannig helst hann safaríkur
og góður. Það er ágætis regla að fiskurinn
er tilbúinn þegar eggjahvítuefnið í fiskinum
er farið að koma fram og þá áttu tæpa
eina mínútu eftir á grillinu. Rétt áður en
fiskurinn er tekinn af er berki af sítrónu og
límónu dreift jafnt yfir flakið.
STRENGJABAUNIR MEÐ HVÍTLAUK,
SÍTRÓNU OG PARMESANOSTI.
1 pakki strengjabaunir
Olía eða smjör til steikingar
Um 3 hvítlauksrif, söxuð
Rifinn börkur af um það bil hálfri sítrónu
Salt og pipar
Rifinn parmesanostur
Snyrtið baunirnar með því að saxa af þeim
endana. Setjið baunirnar í sjóðandi vatn
ásamt smá salti og sjóðið í um tvær mín-
útur. Takið þá upp úr og setjið í skál með
ísköldu vatni. Hitið smjör eða olíu á pönnu.
Mýkið hvítlaukinn í um eina mínútu. Bætið
þá baununum á pönnuna og steikið í 3-4
mínútur. Setjið baunirnar í það fat sem á
að bera þær fram í. Kryddið með salti og
pipar. Sáldrið berki af hálfri sítrónu yfir og
loks rifnum parmesan.
SÆLGÆTIS-OSTAKAKA
300 g rjómaostur
200 g flórsykur
50 g smjör
12-15 Oreo-kexbotnar (eða eins og þarf )
½ lítri rjómi
Til skreytingar:
2 marssúkkulaði
Bláber
Jarðarber
Nóakropp
Takið kexið í sundur og fjarlægið kremið.
Því næst er kexið mulið, til dæmis
með því að setja það í poka og renna
kökukeflinu yfir kexið. Kexmylsnunni er
komið jafnt fyrir á botni fatsins sem þið
ætlið að nota og hellið yfir það bræddu
smjöri. Þeytið rjómaost og flórsykur
saman þar til orðið mjúkt og engir
kekkir. Þeytið rjómann í annarri skál
(skiljið um það bil ½ til 1 dl eftir fyrir
marssósuna).
Blandið svo rjómaostblöndunni og
rjómanum varlega saman við og hellið
yfir kexið. Frystið þar til kakan er frosin í
gegn. Bræðið marssúkkulaðið yfir vatns-
baði og notið afganginn af rjómanum til
þess að gera sósuna. Hellið yfir osta-
kökuna og skreytið að vild með jarðar-
berjum og bláberjum.
GRILLUÐ BLEIKJA
OG GÓMSÆT KAKA
MATUR FYRIR SÁLINA Sigurrós Jóns Bragadóttur þykir gaman og gott að
borða góðan mat. Hún heldur úti bloggsíðunni Matur fyrir sálina og finnst
mikilvægt að njóta matarins. Sigurrós gefur hér nokkrar góðar uppskriftir.
ELDAR AF ÁSTRÍÐU Sigurrós finnst gott hráefni skipta höfuðmáli og að eldað
sé með hjartanu. „Ég tel nefnilega að góður matur snæddur í góðum félagsskap
sé ekki aðeins góður fyrir magann heldur sálina líka.“ MYND/GVA
GRILLUÐ BLEIKJA
Bleikjan er girnileg auk
þess að vera auðveld í
matreiðslu. AÐSEND MYND
STRENGJABAUNIR
Með hvítlauk, sítrónu og
parmesanosti eru þær
gott meðlæti. AÐSEND MYND
SÆLGÆTIS-
OSTAKAKA
Ostakakan sem Sigurrós
gefur uppskrift að er
girnileg. AÐSEND MYND
3
0
-0
7
-2
0
1
5
2
1
:5
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
9
B
-F
6
6
4
1
5
9
B
-F
5
2
8
1
5
9
B
-F
3
E
C
1
5
9
B
-F
2
B
0
2
8
0
X
4
0
0
6
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K