Fréttablaðið - 31.07.2015, Blaðsíða 26
8 • LÍFIÐ 31. JÚLÍ 2015
Eyþór Rúnarsson meistara-
kokkur var með girnilega rétti
í þætti sínum Grillréttir og eru
þeir kjörnir fyrir þá sem ætla að
verja verslunarmannahelginni í
sumarbústaðnum. Nú er um að
gera að hita grillið og töfra fram
nauta strimla með hindberja-vin-
aigrette, bleikju með bankabyggi
og eftirréttapitsu með grilluðum
sykurpúðum.
Grillaðir nautastrimlar
með hindberja-vinaigrette
og gráðaosti
Uppskrift fyrir 4
Nautastrimlar
• 400 g nautafilet (fullhreinsað)
• 100 ml appelsínusafi
• 100 ml ólífuolía
• 1 tsk. fínt salt
• ½ hvítlauksgeiri
Skerið kjötið í 100 gramma steik-
ur og berjið það með kjöthamri
þar til það er orðið 5 mm að
þykkt. Setjið appelsínusafann
og olíuna saman í matvinnsluvél
og vinnið saman í 1 mín. Hellið
blöndunni yfir kjötið og látið kjöt-
ið standa í 1-2 tíma. Setjið kjötið
á heitt grillið og grillið í um 1,5
mín á hvorri hlið.
Takið af grillinu og setjið álpapp-
ír yfir og látið standa í 10 mín.
Hindberja-vinaigrette
• 100 ml ólífuolía
• 100 g frosin hindber
• 2 msk. balsamik-edik
• 2 msk. hlynsíróp
Setjið allt hráefnið í blandara og
blandið vel saman.
Meðlæti
• 1 stk. gráðaostur
• 1 stk. rauðlaukur (skrældur)
• ½ stk. grasker
• ½ stk. hunangsmelóna
• 50 ml ólífuolía
• 1 msk. hvítlauksduft
• 1 tsk. cayenne-pipar
• 1 box baunaspírur
Skerið rauðlaukinn í tvennt og
graskerið í 5 mm þykkar sneið-
ar og setjið í skál með þurr-
kryddunum og ólífuolíunni. Bland-
ið öllu saman og kryddið með
salti og pipar og látið standa í 2
tíma. Setjið á heitt grillið og grill-
ið í 4 mín. á hvorri hlið eða þar
til hvort tveggja er eldað í gegn.
Skrælið og skerið melónuna í
stóra kubba og myljið gráðaost-
inn niður. Skerið kjötið í þunna
strimla og setjið allt saman á fat.
Grilluð bleikjuflök
með kryddjurtamauki og bygg-
salati með blómkáli og lárperu
Uppskrift fyrir 4
• 4 stk. bleikjuflök
• Ólífuolía
• 1 stk. sítróna
• Sjávarsalt
• Svartur pipar úr kvörn
• 1 stk. sítróna
• Grillklemma
Penslið flökin með ólífuolíu og
kryddið þau vel með salti og
GOURMET NAUT OG BLEIKJA Á GRILLIÐ AÐ HÆTTI EYÞÓRS
pipar. Takið 1/3 af kryddjurtamauk-
inu og smyrjið yfir flökin. Spreyið
grillklemmuna með formspreyi
eða penslið hana með ólífuolíu.
Leggið flökin í grillklemmuna og
setjið á sjóðandi heitt grillið og
grillið í um 4 mín.
Berið fram með sítrónubáti.
Kryddjurtamauk
• ½ bréf mynta
• ½ bréf steinselja
• ½ hvítlauksrif
• ½ rauður chili
• ½ sítróna (börkurinn og safinn)
• 2 msk. kapers
• 100 ml ólífuolía
Setjið allt saman í mortél eða
matvinnsluvél og maukið saman
þar til blandan er farin að líkjast
pestói.
Bankabyggssalat með blómkáli
og lárperu
• 300 g soðið bankabygg
• ½ agúrka
• 1 stk. fínt saxaður skallotlaukur
• 1 stk. lárpera (avokadó)
• 150 g rifið blómkál
• Börkur og safi af hálfri sítrónu
• 1 dolla sýrður rjómi 18%
• 2 msk. fínt skorið dill
• Maldon-salt
• Hvítur pipar úr kvörn
Fjarlægið kjarnann úr agúrkunni
og skerið í fallega bita. Takið
steininn úr lárperunni og skafið
innan úr henni. Skrælið og sker-
ið lárperuna í fallega bita. Rífið
blómkálið niður með rifjárni.
Blandið öllu saman og smakkið til
með saltinu og piparnum.
Eftirréttapitsa
með nutella, mascarpone-osti,
sykurpúðum og jarðarberjum
Uppskrift fyrir 8-10 manns
Pitsudeig
(fyrir 2 botna)
• 3 dl vatn
• 25 g ger
• 1 tsk. salt
• 1 tsk. sykur
• 15 g kakó
• 1 msk. kanill
• 1 msk. matarolía
• ½ kg hveiti
• Pitsusteinn
Álegg
• 130 g nutella
• 50 g mascarpone-ostur
• 10-15 litlir sykurpúðar
• ½ stk. lime (börkurinn)
• 1 askja jarðarber
Setjið allt hráefnið saman í hræri-
vélarskál og vinnið saman þar
til blandan er orðin að fallegu
deigi. Setjið deigið í skál með
plastfilmu yfir og látið það hef-
ast í 30 mín. Skiptið deiginu í
tvennt og fletjið deigið út og setj-
ið á heitan pitsusteininn í grillinu
og bakið í 5 mín. Snúið pitsunni
við og smyrjið nutella á hana og
setjið svo sykurpúðana og masc-
arpone-ostinn á hana og bakið í
5 mín í viðbót. Skerið jarðarber-
in í fernt og dreifið yfir pitsuna
og rífið börkinn af lime-inu yfir í
lokin.
SUMAR- OG
GRILLRÉTTIR
Eyþórs
Rúnarssonar
3
0
-0
7
-2
0
1
5
2
1
:5
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
9
B
-C
E
E
4
1
5
9
B
-C
D
A
8
1
5
9
B
-C
C
6
C
1
5
9
B
-C
B
3
0
2
8
0
X
4
0
0
2
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K