Fréttablaðið - 31.07.2015, Page 41
FÖSTUDAGUR 31. júlí 2015 | MENNING | 25
Örn Alexander Ásmundsson er að
fást við listaverk úr rassvösum af
gallabuxum sem hann festir á vegg.
Í vasana setur hann litla skúlptúra.
„Þetta á að vísa til hugmynda og
verkefna sem oft er gengið með í
rassvösunum í ótilgreindan tíma,“
segir hann kankvís.
Örn Alexander er einn þeirra
fjögurra myndlistarmanna sem
opna sýninguna Tær/Toes í Verk-
smiðjunni á Hjalteyri á laugar-
daginn klukkan 14. Hinir eru Olof
Nimar, Una Margrét Árnadóttir og
Unndór Egill Jónsson. Olof er frá
bænum Hjo við Gautaborg, hin eru
Reykvíkingar en öll eiga þau sam-
eiginlegt að hafa lært í Svíþjóð.
Fyrstu drög að sýningunni lögðu
þau í lítilli stúdíóbúð í Malmö. Sum
listaverkin hafa fjórmenningarn-
ir komið með norður, önnur hafa
þeir gert á staðnum. Una Margrét
er að koma fyrir vídeóverkum og
Olof að steypa skúlptúr á palli sem
sameinar það að vera þak og svalir.
Inni í Verksmiðjunni er samt hell-
ings pláss sem listafólkið er að díla
við, tveir stórir salir og gangur á
þremur pöllum. „Við erum vanari að
sýna á hvítum veggjum í litlu rými,“
segir Örn Alexander. „En hér erum
við að fást við andstæðu þess, rosa
mikið pláss og hrátt. Það er jákvætt
en getur líka verið dálítið yfirþyrm-
andi. Það fyrsta sem maður hugsar
er að þetta pláss verði að fylla en
ég held að það séu mistök. Málið sé
frekar að leyfa verkunum að anda.
Aðalatriðið er að þau spili saman.“
Sýningin Tær/Toes verður opnuð
klukkan 14 á morgun og um kvöldið
bjóða heimamenn upp á lifandi tón-
list og veitingar í Verksmiðjunni.
Sýningin stendur til 30. ágúst og er
opin þriðjudaga til sunnudaga frá
klukkan 14 til 17.
gun@frettabladid.is
Rassvasar og vídeó
Sýningin Tær/Toes verður opnuð í Verksmiðjunni á
Hjalteyri á morgun. Tónlist og veitingar um kvöldið.
LISTAMENN Una Margrét, Olof og Örn Alexander á Hjalteyri. Unndór Egill á leiðinni.
MYND/GUSTAV GEIR BOLLASON
„Ég æfði fyrir tónleikana í gær frá
eitt til ellefu,“ segir Lára Bryn-
dís Eggertsdóttir organisti glað-
lega þegar hún svarar símanum,
nýkomin úr sundi með tæplega
fimm ára dóttur sinni. Fram undan
eru tvennir tónleikar í Hallgríms-
kirkju, fyrst hádegistónleikar á
morgun, laugardag, ásamt kamm-
erkórnum GAIA frá Árósum sem
hún syngur í líka. „Kórinn syngur
undirleikslaust og svo stekk ég að
hljóðfærinu á milli,“ útskýrir hún
og segir verk eftir Stefán Arason,
Báru Grímsdóttur, Carl Nielsen og
Rachmaninoff á efnisskránni.
Seinni tónleikarnir verða á
sunnudaginn klukkan 17. Þeir
eru einungis fyrir orgel og efnið
er fjölbreytt, bæði íslenskt og
erlent, síðan kemur GAIA-kórinn
fram aftur á mánudagskvöldið
klukkan 20.
Lára Bryndís er organisti í
Horsens í Danmörku og kveðst
hafa verið veidd í GAIA fyrir sex
árum þegar hún var í námi við
Tónlistarháskólann í Árósum.
„Börnin mín þrjú hafa alist upp í
kórnum. Það elsta kom með mér
í inntökuprófið og þau yngri hafa
verið á milljón æfingum. Dóttirin
fékk einu sinni að velja um að fara
með pabba sínum í dýragarðinn
eða mömmu á kóræfingu og hún
kaus æfinguna!“
Lára Bryndís kveðst stundum
koma fram á einleikstónleikum
hér og þar, til dæmis í dómkirkj-
unni í Kaupmannahöfn. „Það er
ógeðslega kúl,“ segir hún hlæj-
andi. „Þegar dómorganistinn í
Köben hringir og spyr hvort ég
vilji ekki koma og spila þá svara
ég; „Jú, jú, úr því þú endilega
vilt!“
Í fyrra fékk Lára Bryndís sjö
íslensk tónskáld til að semja orgel-
verk sem hún hefur kynnt víða
og segir heyrast æ oftar, meðal
annars á Rás 1. „Ég hlusta alltaf
á íslensku útvarpsmessuna, það
passar vel því þá er ég komin heim
úr minni messu og það er ótrúlega
oft sem tónlistin sem ég pantaði er
forspil eða eftirspil.“
gun@frettabladid.is
Í kór og við orgelið
Lára Bryndís Eggertsdóttir, organisti í Horsens í Danmörku, kemur fram á þrenn-
um tónleikum um helgina í Hallgrímskirkju, fyrst ásamt kammerkórnum GAIA.
KÁT MÆÐGIN Lára Bryndís leikur við Ágúst Ísleif sem er nýorðinn sjö ára. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ
PEPSI MAX OG WOW AIR KYNNA
KINGS OF LEON
NÝJA LAUGARDALSHÖLLIN 13. ÁGÚST
#KOLICELAND WWW.SENA.IS/KOL
„Þetta eru sögur sem áhorfand-
inn býr til sjálfur,“ segir Margeir
Dire, sem opnaði sýninguna Milljón
sögur í Gallery Orange í gær. Þar
eru til dæmis gluggaverk sem sjást
utan frá, unnin með kalkspreyi.
Önnur eru innandyra og snúa að
salnum.
„Ég sæki myndefnið í eðli nátt-
úrunnar, götulist, fólk og sögur.
Mest er tengingin í götulistina,“
segir hann. Margeir er þekktur
fyrir að gefa sumum listaverkum
sínum takmarkaðan líftíma. „Ég
hef stundum málað yfir verkin eða
kveikt í þeim,“ segir hann og nefn-
ir að kalkið í gluggunum á Galleríi
Orange sé dæmi um slíkt. „Kalkið
verður þrifið af þegar sýningunni
lýkur og glugginn fer í sitt gamla
form. Fegurðin felst í því að fólk
veit aldrei hvort verkið verður enn
til á morgun svo það þarf að stoppa
og njóta þess til fulls. Núna.“
Sýningin í Gallery Orange stend-
ur þó í sex vikur. - gun
Áhorfandinn býr til
sögurnar sjálfur
Milljón sögur nefnist sýning sem listamaðurinn
Margeir Dire er með í Gallery Orange í Ármúla 6.
LISTAMAÐUR „Fegurðin felst í því að fólk veit aldrei hvort verkið verður enn til á
morgun,“ segir Margeir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Dóttirin fékk einu
sinni að velja um að fara
með pabba sínum í
dýragarðinn eða mömmu
á kóræfingu og hún kaus
æfinguna!
3
0
-0
7
-2
0
1
5
2
1
:5
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
N
Ý.
p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
9
B
-E
7
9
4
1
5
9
B
-E
6
5
8
1
5
9
B
-E
5
1
C
1
5
9
B
-E
3
E
0
2
8
0
X
4
0
0
5
A
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K