Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.04.2015, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 15.04.2015, Qupperneq 20
 | 6 15. apríl 2015 | miðvikudagur „Á þessu ári og næsta vetur verða opnuð meira en 700 ný hótelher- bergi í Reykjavík og í fyrirsjáan- legri framtíð er gert ráð fyrir 800 herbergjum til viðbótar,“ segir Dagur B. Eggertsson borgar- stjóri. Hann boðar í dag til opins kynningarfundar um fjárfestingu í Reykjavík. Dagur segir að ef sá mikli vöxt- ur sem hefur verið í ferðaþjónustu heldur áfram þá þurfi að sjá fyrir því hvar þessi hótelherbergi eigi að vera þannig að ferðamanna- bransinn þrýsti ekki út leiguhús- næði í íbúðahverfum. Það séu tvær hættur í þeirri stöðu þegar eftirspurnin eftir hótelgistingu er orðin svo mikil sem raun ber vitni. „Annars vegar að öll hótelin verði á svipuðum stað eða þá að við mætum ekki þessari eftirspurn og þá ýtir ferðamannagistingin leiguhúsnæðinu út. Og ég sagði það sem mína skoðun fyrir ári á þessum fundi að það ætti að setja stopp á frekari hótel í Kvosinni og sú tillaga er nú komin í gegn- um skipulagið og bíður staðfest- ingar borgarráðs,“ segir Dagur. Það líti allt út fyrir að það verði að fara í gegnum sömu rýni varð- andi Laugavegssvæðið þannig að hóteluppbygging ýti ekki annarri starfsemi út. Hlemmssvæðið mun breytast „Það má hins vegar segja að fjár- festar og ferðaþjónustan hafi svar- að svolítið kallinu. Því að það er að koma ný bylgja hótelfjárfestingar við Hlemmssvæðið sem þolir það vel. Það svæði hefur kallað á fjár- festingu og endurnýjun. Það mátti vel við því að verða andlitslyft- ing á Hlemmi og þar eigum við á næstu árum eftir að sjá jákvæð andlit ferðaþjónustutengdrar fjárfestingar. Það fylgir því heil- mikið líf og þjónusta, verslanir og kaffi hús. Við sjáum dæmi um hvort tveggja á Hlemmssvæðinu; Reykjavík Roasters er að koma sér fyrir þar og Bónus,“ segir Dagur. Þetta sé aukin þjónusta fyrir íbúa hverfi sins. Samið um hótel á Hörpureit Þá segir Dagur að það séu miklar framkvæmdir fram undan í Aust- urhöfninni, á svæði sem er í dag- legu tali kallað Holan, við hliðina á Hörpu. Nýir samningar við erlenda fjárfesta um fi mm stjörnu hótel við hliðina á Hörpu voru kynntir í gær og það verkefni ætti því að geta haldið áfram. Dagur segir að einnig verði stefnt að því að fara í breytingar á Geirsgötu í sumar. „Við erum að klára hönnun á því, rétta úr götunni og gera hana að skemmtilegri borgar götu í takt við uppbygginguna,“ segir Dagur. Þar verði nýr þjónustu- og versl- unarkjarni, íbúðir á efri hæðinni, fi mm stjörnu hótel og atvinnuupp- bygging. Þá verði mynduð ný gata sem heitir Reykjar gata og nær frá Lækjartorgi og upp að Hörpu. „Þannig að aðgengið milli mið- borgarinnar og Hörpu mun batna verulega með þessari uppbygg- ingu. Það verður mjög spennandi að sjá,“ segir hann. Auk hótelbyggingarinnar og uppbyggingarinnar í Austurhöfn- inni segir Dagur að mikil upp- bygging sé fram undan á Vatns- mýrarsvæðinu, tengd háskólunum og sjúkrahúsinu. Þar séu tvær lóðir til viðbótar að fara í upp- byggingu á vísindagarðasvæðinu. Dagur segir ekki alveg tímabært að greina nákvæmlega frá því hvaða fyrirtæki þar séu á ferð, en segir að þetta séu stór mál. „En við erum líka búin að vera að bíða eftir því að Hús íslenskra fræða og stofnun Vigdísar Finn- bogadóttur fari af stað. Það virð- ist líka vera að gerast. Svo eru vonandi að fara í gang á þessu ári framkvæmdir við nýjan Landspít- ala,“ segir Dagur, en bætir við að fyrst verði byggt upp sjúkrahótel. „Við höfum verið að vinna þessa stefnumótun með Landspítalan- um og háskólunum tveimur að draga fram hvernig er hægt að nýta tækifærin sem felast í upp- byggingu á þessum reitum til að markaðssetja svæðið sameigin- lega gagnvart fyrirtækjum sem gætu notið góðs af því að vinna í nánu samhengi við háskólaspít- ala og háskóla,“ segir hann. Þetta gætu orðið heilbrigðistengd fyrir- tæki. Dagur segist telja að rann- sóknarstofnanir og heilbrigðis- tengd fyrir tæki séu of dreifð. Það gæti orðið hagur allra ef þau legðu saman krafta sína. „Þá er ég að tala um stofnanir eins og Hjarta- vernd, sem er með alveg ótrú- 1.500 ný hótelherbergi í Reykjavík Borgarstjóri segir að í ár og næsta vetur verði 700 ný hótelherbergi til í borginni. Átta hundruð herbergi bætist svo við í fyrirsjáanlegri framtíð. Til skoðunar er að opna þurrkvíar fyrir slippastarfsemi á Grundartanga. AUSTURHÖFN Dagur B. Eggertsson borgarstjóri kynnti blaðamönnum líkan af Austurhöfn eins og hún mun líta út með hótelinu. VIÐTAL Jón Hákon Halldórsson jonhakon@frettabladid.is Það má hins vegar segja að fjárfestar og ferðaþjónustan hafi svarað svolítið kall- inu. Því að það er að koma ný bylgja hótelfjárfestingar við Hlemmsvæðið sem þolir það vel. HÓTELIÐ KYNNT Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir að ef þessi mikli vöxtur í ferðaþjónustu heldur áfram þurfi að passa upp á að hótelstarfsemi ýti ekki annarri starfsemi út úr miðborginni. Hann sér fyrir sér mikla breytingu á svæðinu í kringum Hlemm á næstu árum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 3 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 3 E -0 A A C 1 6 3 E -0 9 7 0 1 6 3 E -0 8 3 4 1 6 3 E -0 6 F 8 2 8 0 X 4 0 0 6 A F B 0 4 8 s _ 1 4 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.