Fréttablaðið - 15.04.2015, Blaðsíða 22
FÓLK|FERÐIR
Ef ég ætti að velja yrði það Helsinki. Ég hef komið þangað nokkuð oft undan-
farin ár og Helsinki er frábær
borg, vinaleg, frekar lítil, nátengd
hafinu, norræn en samt svolítið
framandleg,“ segir Halla Helga-
dóttir, framkvæmdastjóri Hönn-
unarmiðstöðvar Íslands, þegar
hún er spurð hvort hún eigi sér
uppáhaldsborg.
Hún segir íbúa Helsinki vina-
lega þó að þeir haldi ákveðinni
fjarlægð við gesti.
„Finnar eru þægilegir í viðmóti
og einhvern veginn líkir okkur
Íslendingum. Allavega virðumst
við vera þjóðir sem eiga auðvelt
með að eiga samskipti, hvernig
sem stendur á því.“
GOTT AÐ BORÐA
Í TEURASTAMO-HVERFINU
„Það eru margir mjög góðir
veitingastaðir og mikil vakning
í Helsinki eins og víða á Norður-
löndum. Teurastamo er fyrrver-
andi iðnaðarhverfi í mikilli upp-
byggingu og þróun. Þar er mjög
skemmtilegt að þvælast um, veit-
ingastaðir, kaffihús og sérversl-
anir sem hægt er að mæla með.
Þarna fara líka ýmsir viðburðir
fram eins og til dæmis Helsinki
Design Week. Uppáhaldsveitinga-
staðurinn minn heitir Kuurna,
lítill staður í miðborg Helsinki
í eigu eins helsta matreiðslu-
manns Finna, Antto Melasiniemi.
Staðurinn er einfaldur, þjónustan
mjög persónuleg og maturinn
alveg frábær.“
SPENNANDI
HÖNNUNARVERSLANIR
„Ég verð að viðurkenna að ég
nenni ekki að eyða tímanum
erlendis í að versla. Vel að gera
það hér á Íslandi frekar. Ég myndi
heldur aldrei treysta mér í alvöru
verslunarferð og þoli illa að vera í
stórum verslunarmiðstöðvum. En
í borginni er skemmtilegt svæði,
Helsinki Design District, þar sem
eru margar litlar og skemmtilegar
hönnunarverslanir.“
NAUÐSYNLEGT AÐ
SKELLA SÉR Í SAUNA
„Það er auðvitað alveg nauðsyn-
legt að fara í sauna þegar maður
er í Helsinki og þá helst Kulttuuri
sauna, sem Tuomas Toivonen
arkitekt hannaði og byggði.
Annars er skemmtilegt, eins og
í flestum borgum, að þvælast
um og upplifa borgina. Nálægðin
við hafið gefur ýmsa skemmti-
lega möguleika á siglingum og
stuttum túrum út í eyjar eins
og Suomenlinna. Með krakka er
gaman að fara í Linnankmäki-
garðinn eða í ferð í Múmíndalinn.
Svo er gaman að skoða söfn eins
og Kiasma, nútímalistasafnið og
nýja tónlistarhúsið. Porvoo er
lítill bær sem ég á enn eftir að
heimsækja en skilst að sé sérlega
fallegur. Fyrir þá sem hafa gaman
af tungumálum má líka skemmta
sér við að lesa á götuskilti og
aðrar merkingar. Ég hef mest
gaman af því að eiga erindi
við heimamenn þegar ég er að
ferðast og kynnast menningu
hvers staðar. Til dæmis horfi ég
alltaf á lókal sjónvarpsstöðvar
þegar ég ferðast til að reyna að
komast í samband við það sem
er að gerast. Líka þótt ég skilji
ekkert í tungumálinu.“
LEIÐ EINS OG INNFÆDDRI
„Þegar maður er í erlendum
borgum er oft erfitt að átta sig á
stærðinni. Ég hafði komið nokkr-
um sinnum til Helsinki vegna
vinnu og þekkti nokkra kollega
í borginni. Þegar ég kom með
manninum mínum eitt sinn hitti
ég fjóra kunningja fyrir tilviljun
á rölti hér og þar í miðborginni.
Það fannst mér magnað og leið
strax eins og innfæddri.“
ER „BARA“ FRÁ REYKJAVÍK
„Æskuslóðirnar mínar eru
gamli Vestur bærinn í Reykjavík.
Þegar ég var lítil fannst mér mjög
dauflegt að þurfa að svara að ég
væri „bara“ frá Reykjavík. Þegar
maður segir það hér heima á Ís-
landi er það enn þá svolítið eins
og að eiga hvergi uppruna.“
LÍTIL EN FRAMANDLEG
BORGIN MÍN Halla Helgadóttir á erfitt með að gera upp á milli heimsborga
en þó hefur ein borg heillað hana meira en aðrar, höfuðborg Finnlands.
HELSINKI Í UPPÁHALDI „Ég hef mest gaman af því að eiga erindi við heimamenn
þegar ég er að ferðast og kynnast menningu hvers staðar. Til dæmis horfi ég alltaf á
lókal sjónvarpsstöðvar þegar ég ferðast til að reyna að komast í samband við það sem
er að gerast. Líka þótt ég skilji ekkert í tungumálinu.“ Halla Helgadóttir, framkvæmda-
stjóri Hönnunarmiðstöðvar. MYND/VALLI
VINALEG BORG „Helsinki er frábær borg, vinaleg, frekar lítil, nátengd hafinu, norræn en samt svolítið framandleg.“
IÐA-bókakaffi Vesturgata 2a 101 Rvk.
opið til 22 alla daga.
NÆRANDI ÞÆTTIR
Á NÝJU VEFSVÆÐI VÍSIS
Fylgstu með þessum fróðlegu örþáttum á
visir.is/heilsuvisir.
Vísir.is er hluti af
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
D
-5
D
D
C
1
6
3
D
-5
C
A
0
1
6
3
D
-5
B
6
4
1
6
3
D
-5
A
2
8
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
4
8
s
_
1
4
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K