Fréttablaðið - 15.04.2015, Síða 34
USD 137,11
GBP 202,49
DKK 19,56
EUR 146,10
NOK 17,25
SEK 15,65
CHF 140,97
JPY 1,15
Netfang rit stjorn@markadurinn.is Sími 512 5000 Fax 512 5301
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is
Gengi gjaldmiðla FTSE 100
7.075,26 +10,96
(0,16%)
Viðskiptavefur Vísis
@VisirVidskipti
STJÓRNAR -
MAÐURINN
@stjornarmadur
680 MILLJÓNIR
Mest er innheimt í Reykjavík
Álagður gistináttaskattur nam 680 millj-
ónum króna á tímabilinu janúar 2012 og
fram í febrúar 2015, en 646 milljónir hafa
innheimst. Þetta kemur fram í svari Bjarna
Benediktssonar, fjármála- og efnahags-
ráðherra, við fyrirspurn frá Kristjáni L.
Möller um málið. Mestur hluti gistinátt-
askattsins, eða 358 milljónir, er innheimtur
í Reykjavík. Svör fjármálaráðherra eru
byggð á upplýsingum frá Fjársýslunni.
33.000 ÁHORFENDUR
Færri á leiksýningar áhugamanna
Aðsókn á sýningar áhugaleikfélaga á síðasta
leikári nam ríflega 33 þúsund gestum, eða næsta
viðlíka og á þar seinasta leikári, samkvæmt tölum
Hagstofunnar. Gestafjöldi síðasta leikárs jafngildir
því að einn af hverjum tíu landsmönnum hafi
séð uppfærslu á vegum áhugaleikfélaga. Lítilleg
fækkun hefur orðið á sýningargestum áhuga-
leikfélaga á undanförnum leikárum, eftir nokkra
fjölgun gesta næstu leikár á undan.
10. apríl 2015 „Það er því ekki um annað að ræða en að hrinda í fram-
kvæmd áætlun um losun hafta nú áður en þingið lýkur störfum. Sér-
stakur stöðugleikaskattur mun þá skila hundruðum milljarða
króna og mun ásamt öðrum aðgerðum gera stjórnvöldum
kleift að losa um höft án þess að efnahagslegum stöðugleika
verði ógnað. Það er ekki hægt að una því lengur að íslenska
hagkerfið sé í gíslingu óbreytts ástands og eignarhald á
fjármálakerfi landsins í því horfi sem það er.“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra
Tillögur þingmannsins Frosta
Sigurjónssonar um umbætur í pen-
ingamálum eru athyglisverðar. Líkt
og allt of oft vill gerast á Íslandi
hefur hins vegar lítið farið fyrir
efnislegri umræðu. Aðallega hefur
verið einblínt á þá staðreynd að
skýrslan er rituð á ensku og fjallað
um þá ákvörðun tveggja kollega
Frosta að segja sig frá skýrslugerð-
inni.
SÁ ÞÁTTUR skýrslunnar sem mesta
athygli hefur vakið er tillaga Frosta
um að skoða möguleika á upptöku
svokallaðs þjóðpeningakerfis. Hug-
myndin er ekki ný af nálinni, en
byggist með nokkurri einföldun á
því að ríkisvaldið hafi einkarétt á
peningamyndun. Bankarnir fá því
ekki að skapa peninga líkt og þeir
gera í núverandi kerfi, til að mynda
þegar þeir veita ný lán.
FROSTI kemst að þeirri niðurstöðu
að Seðlabankanum hafi ekki tekist
að hafa hemil á peningamyndun
íslensku bankanna með sínum hefð-
bundnu stjórntækjum, s.s. eigin-
fjárskilyrðum og stýrivöxtum.
Bankarnir hafi því skapað mun
meiri peninga en hagkerfið þurfi
á að halda. Þjóðpeningakerfið sé
möguleg lausn á þessu.
FROSTI hefur þurft að þola tals-
verða gagnrýni fyrir tillögur sínar,
og meðal annars verið sakaður um
að kynna til leiks úreltar hugmynd-
ir. Nú hefur honum hins vegar bor-
ist stuðningur úr óvæntri átt; frá
breska stórblaðinu Financial Times.
Þungavigtarstuðningur það.
STUNDUM þarf að setja sig í spor
aðkomumanns til að skynja fárán-
leikann í hversdeginum. Ísland er
eitt allra minnsta hagkerfi heims,
og sennilega það allra minnsta sem
heldur úti eigin gjaldmiðli. Það er
því erfitt að sannfæra alþjóðamark-
aði um ágæti þess að eiga krónur.
SAGA krónunnar er heldur ekki
glæsileg. Verðbólga hefur lengst
af verið stjórnlaus, og gjaldeyris-
höft þóttu nauðsynleg lengst af – að
undan skildu sjö ára tímabili í upp-
hafi þessarar aldar. Við erum nú
aftur í þeirri stöðu að vera land í
höftum, þótt stjórnmálamenn til-
kynni á tyllidögum að sú verði ekki
raunin mikið lengur. Bíðum og
sjáum til með það.
ÞAÐ ER ljóst að núverandi peninga-
kerfi er satt lífdaga. Flestir sem
eru þeirrar skoðunar hafa viljað
taka upp annan gjaldmiðil, hvort
sem það er evra, norsk króna eða
kanadískur dalur. Upptaka annars
gjaldmiðils væri líkleg til að auka
stöðug leika í íslenska hagkerfinu.
TILLAGA Frosta er önnur möguleg
leið að sama markmiði. Honum ber
að hrósa fyrir frumlega hugsun og
þetta á að skoða af fullri alvöru. Nú
þarf tillagan efnislega umfjöllun –
þingmenn hljóta að geta klórað sig
gegnum skýrsluna. Þótt hún sé á
ensku.
Glöggt er gests
augað
Veit á vandaða lausn
Grillpönnur Tangir Penslar Kol
Fastus býður uppá hágæða fagvörur í eldhús sem unun er að vinna með þegar
matarundirbúningur stendur sem hæst.
Verið velkomin í verslun okkar, Síðumúla 16 og skoðið úrvalið af áhöldum sem fagmenn,
jafnt sem áhugamenn geta ekki án verið í góðu eldhúsi.
FA
S
TU
S
_F
_1
7
.0
4
.1
5
Fastus ehf., - Opið mán - fös 8.30 - 17.00
Kolagrill í garðinn, á pallinn eða í ferðalagið.
MIKIÐ ÚRVAL AUKAHLUTA
KOLAGRILL
TILBÚIÐ Á
3
MÍNÚTUM
Verð frá kr. 34.000,-
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
3
D
-5
D
D
C
1
6
3
D
-5
C
A
0
1
6
3
D
-5
B
6
4
1
6
3
D
-5
A
2
8
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
4
8
s
_
1
4
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K