Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.07.2015, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 24.07.2015, Qupperneq 2
24. júlí 2015 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 VINNUMARKAÐUR Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi í júní mældist 3,2 prósent samkvæmt vinnumark- aðsrannsókn Hagstofu Íslands. Atvinnuleysi hefur dregist saman hér á landi að undan- förnu. Alls voru 5.800 án vinnu og í atvinnuleit í júní og hefur þeim fækkað um 3.200 milli ára. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi var 4,9 prósent í júní 2014 og 6,9 pró- sent í júní 2013. Þá hefur atvinnuþátttaka auk- ist og eru 202 þúsund manns á vinnumarkaði. Atvinnuþátt- tökuhlutfall var 85,3 prósent í júní fyrir ári en 86,6 prósent í síðasta mánuði. Mælingar sýna að íslenskur vinnumarkaður breytist reglu- lega í tilteknum mánuðum og stafar breytileikinn af ýmsum árstíðabundnum þáttum. Atvinnuleysi er minnst hér á landi af Norðurlöndunum. Mest er atvinnuleysið í Finnlandi þar sem það mælist 10 prósent. Þá er atvinnuleysi í Svíþjóð 8,5 pró- sent. Í Danmörku er atvinnuleysi 4,8 prósent en 4,2 prósent í Nor- egi. Vert er að benda á að tölur um atvinnuleysi í Noregi eru frá því í apríl. Úrtak Hagstofunnar var 1.212 einstaklingar á aldrinum 16-74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 1.193 ein- staklingar. Alls fengust nothæf svör frá 939 einstaklingum sem jafngildir 78,7% af endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. -ih Atvinnuleysi er mest í Finnlandi af Norðurlöndunum þar sem það er 10 %: Atvinnuleysi mælist 3,2 prósent BANDARÍKIN Bill de Blasio, borg- arstjóri New York-borgar, segir að Evrópusambandið hafi brugð- ist Ítalíu í málefnum flóttafólks og hælisleitenda. Í ræðu sinni í Vatíkan- inu á þriðjudaginn sagði hann að Evrópusambandið þyrfti almennilega flóttamannastefnu til að hlaupa undir bagga með aðildarríkjum sínum. Hann sagði að það væri ekki viðunandi fyrir Evrópusamband- ið að sýna samheldni í sumum málaflokkum en óeiningu í öðrum málaflokkum á borð við flóttamannamálin. - srs Bill de Blasio harðorður: Óeining ESB óviðunandi UTANRÍKISMÁL Utanríkisráðuneyt- ið hefur kallað til sín sendiherra fimm ríkja sem gerðu með sér sam- komulag um veiðar og rannsóknir á norður slóðum. Fréttablaðið greindi frá yfirlýs- ingu ríkjanna í gær og að Íslandi hefði ekki verið boðin þátttaka í samkomulaginu. Í fréttatilkynningu frá utanríkis- ráðuneytinu í gær kemur fram að Ísland telji mikilvægt að allir aðilar sitji við borðið til að styrkja grund- völl til samstarfs. Þá segir að mikilvægt sé að öll ríki sem gæta hagsmuna á svæðinu taki þátt í sameiginlegri stefnumót- un á norðurslóðum en Íslandi hafi ekki verið boðin þátttaka þrátt fyrir að málefni hafsins skipti sköpum fyrir Ísland og að Ísland sé á meðal leiðandi fiskveiðiþjóða í heiminum. Íslensk stjórnvöld hafa reglulega gert athugasemdir við að Íslandi sé haldið utan við umræður um mál- efni norðurslóða. Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra greindi frá því á mánudaginn í viðtali við Skessuhorn að Íslandi væri stund- um haldið fyrir utan fundi og ráð- stefnur um málefni hafsins vegna hvalveiða. Í apríl í fyrra sendi Barack Obama Bandaríkjaforseti frá sér tilskipun til ríkisstofnana þar í landi þess efnis að hvalveiðar Íslands skyldu sérstaklega skoðað- ar og meðal annars yrði Ísland beitt þrýstingi með því að Ísland yrði sniðgengið þegar kemur að yfirlýs- ingum, fundum og ráðstefnum um málefni hafsins. - srs Hafa reglulega gert athugasemdir við að Ísland sé ekki með í ráðum í málefnum norðurslóða: Kalla sendiherra norðurslóðaríkja á teppið SNIÐGANGA ÍSLAND Fréttablaðið greindi frá yfirlýsingu ríkjanna fimm í gær. Guðný Helga Herbertsdóttir, deildarstjóri samskiptadeildar Landspítalans, hvetur þær konur sem telja möguleika á smiti til að hringja í göngudeild smitsjúk- dóma og óska eftir viðtali. „Það er öllum svarað hratt sem leita þangað og það er fullur trúnaður um allt sem fer þar fram.“ ➜ Öllum svarað hratt FRÉTTABLAÐ IÐ /SKJÁSKO T DÓMSMÁL Nígerískur karlmaður er grunaður um að hafa haft óvar- in kynmök við íslenskar konur vit- andi það að hann væri smitaður af HIV-veirunni. Hann var úrskurð- aður í gæsluvarðhald til 20. ágúst í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Á annan tug kvenna eru á lista yfir þá sem verið er að reyna að hafa samband við vegna málsins. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins er að minnsta kosti ein kona smituð. Maðurinn er hælisleitandi og hefur verið hér á landi í meira en ár. Hann er talinn vera á þrítugs- aldri en aldur hans hefur þó ekki fengist staðfestur. Við komu hans til landsins dvaldi hann á Fit hostel. Hann býr nú í Reykjavík. Lögreglan rannsakar nú mál mannsins í samstarfi við sótt- varnalækni. Rannsóknin snýr meðal annars að því að skoða hvort fleiri konur kunni að hafa haft samneyti við manninn og hvort þær séu smitaðar. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins komst upp um málið eftir að erlend kona, fyrrverandi kær- asta mannsins, hafði samband við íslenska stúlku sem hún vissi að hann hefði átt í kynferðislegu samneyti við. Stúlkan tilkynnti um málið og rannsókn fór af stað. HIV-veiran getur valdið alnæmi en veiran brýtur niður ónæmis- kerfi líkamans ef ekki koma til lyf sem duga. Í samtali við Fréttablaðið segir Haraldur Briem, fráfarandi sótt- varnalæknir, að líkurnar á því að smitast af veirunni séu um einn á móti tvö hundruð við einar sam- farir. „Það getur auðvitað alveg gerst að maður smitist eftir eitt skipti.“ Haraldur segir að í svona tilfellum byrji embætti sótt- varnalæknis á því að koma smituðum einstaklingi í með- ferð og í kjölfarið sé farið í það að rekja mögulegar smitleiðir. „Það þarf að hafa samband við alla sem koma til greina. Ef allt gengur vel, við finnum fólkið og það sækir meðferð þá aðhöfumst við ekkert frekar. Ef lögreglan telur að eitthvað brotlegt hafi átt sér stað þá hefst rannsókn.“ Verði maðurinn að lokinni rann- sókn ákærður verður það í fyrsta sinn hér á landi sem maður er ákærður fyrir að smita aðra vís- vitandi af HIV- veirunni. nadine@frettabladid.is VEÐUR SJÁ SÍÐU 20 Hæg norðlæg eða breytileg átt. Skýjað að mestu og lítilsháttar rigning á Norðaustur- og Austurlandi. Í öðrum landshlutum má búast við skúrum, einkum síðdegis, það er helst að Breiðafjörður og Vestfirðir sleppi við skúrirnar. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast suðvestanlands en kaldast fyrir norðan. Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 Opið til kl. 16 á laugardag VELDU GRILL SEM EN DAST OG ÞÚ SPARA R Landmann gasgrill Avalon 4ra brennara 18,7 KW 10 8 6 4 2 0 ➜ Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi á Norðurlöndum ■ Svíþjóð ■ Danmörk ■ Finnland ■ Noregur ■ Ísland 8,5% 4,8% 10% 4,2% 3,2% Á annan tug kvenna mögulega smitaðar Karlmaður var úrskurðaður í gæsluvarðhald í gær grunaður um að hafa haft óvarin kynmök við íslenskar konur vitandi það að hann væri smitaður af HIV- veirunni. Að minnsta kosti ein kona er smituð. Sóttvarnalæknir rekur smitleiðir. Í GÆSLUVARÐHALDI Maðurinn er grunaður um brot gegn hegningarlögum fyrir að hafa af gáska eða á annan ófyrirleitinn hátt stofnað lífi eða heilsu annarra í aug- ljósan háska. Hámarksrefsing fyrir slíkt brot er 4 ára fangelsi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR HARALDUR BRIEM SPÁNN Atvinnuleysi á Spáni á öðrum ársfjórðungi þessa árs var talsvert minna en á þeim fyrsta samkvæmt tölum frá hagstofu landsins. Atvinnuleysi á öðrum ársfjórðungi mældist 22,4 prósent en 23,8 prósent á þeim fyrsta. Atvinnuleysi á Spáni er þó enn það næsthæsta í Evrópu- sambandinu, einungis Grikkir búa við meira atvinnuleysi. Mariano Rajoy, forsætisráð- herra Spánar, sagði tíðindin frá- bær og sagði Spán hafa farið úr því að valda helmingi atvinnuleys- is Evrópusambandsins í það að skapa helming nýrra starfa. - þea Vinnuþátttaka eykst mjög: Minna atvinnu- leysi á Spáni SKIPULAGSMÁL Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Aron Ólafsson, for- maður Stúdentaráðs, tóku fyrstu skóflustungurnar að nýjum Stúdenta- görðum í Brautarholti í gær. Stefnt er að því að húsin verði tilbúin í ágúst 2016 og með framkvæmd- unum er vonast til þess að svara eftirspurn stúdenta eftir viðráðanlegu húsnæði. Um 800 námsmenn voru á biðlista að lokinni úthlutun síðastlið- ið haust og búist er við álíka fjölda í ár. Íbúðirnar verða 102 og eru hugsaðar fyrir barnlausa stúdenta. Reykja- víkurborg hefur það að markmiði að byggja um 400 stúdentaíbúðir og eru byggingarnar í Brautarholti mikilvægt skref í þeim efnum. - srs Borgarstjóri og formaður SHÍ tóku fyrstu skóflustunguna: Byggja 102 nýjar stúdentaíbúðir SKÓFLURNAR MUNDAÐAR 800 náms- menn voru á biðlista í fyrra og búist er við álíka fjölda í ár. FRÉTTABLAÐ IÐ /STEFÁN 2 3 -0 7 -2 0 1 5 2 1 :5 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 8 D -5 2 D 4 1 5 8 D -5 1 9 8 1 5 8 D -5 0 5 C 1 5 8 D -4 F 2 0 2 8 0 X 4 0 0 1 B F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.