Fréttablaðið - 24.07.2015, Blaðsíða 6
24. júlí 2015 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
Við
höfum valið
leið sem neyðir
okkur til að
fylgja áætlun
sem við trúum
ekki að geri
gagn en við verðum að
gera það því aðrir valkostir
eru of erfiðir
Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands.
SVONA ERUM VIÐ
Göngugreining
Pantaðu
tíma
í síma
5173900
Orkhúsinu / Suðurlandsbraut 34 / 517 3900
Vandamál sem göngugreining Flexor getur
hjálpað til við að leysa eru til dæmis:
• þreytuverkir og pirringur í fótum
• verkir í hnjám
• sársauki eða eymsli í hælum
(hælspori, „plantar fasciitis“ o.fl.)
• beinhimnubólga
• óþægindi eða verkir í baki
og/eða mjöðmum
• verkir í tábergi og/eða iljum
• hásinavandamál
• óþægindi í ökklum
• þreytu- og álagsverkir
hjá börnum og unglingum
4.375 börn fæddust árið 2014.
Þar af eru 2.142 stúlkur og
2.233 drengir.
STJÓRNSÝSLA „Þetta er högg fyrir
fólk sem hefur litlar framfærslu-
tekjur,“ segir Halldór Sævar Guð-
bergsson, varaformaður Öryrkja-
bandalags Íslands, um árlega
endurútreiknga sem Trygginga-
stofnun sendi frá sér í vikunni.
Tryggingastofnun greiddi 42 pró-
sentum öryrkja og ellilífeyrisþega
of háar bætur á síðasta ári og fer
nú fram á að fá ofgreiðsluna endur-
greidda. Þá greiddi Tryggingastofn-
un 45 prósentum öryrkja og ellilíf-
eyrisþega of lágar bætur.
Alls skulda 3.319 ellilífeyrisþegar
og 2.675 örorkulífeyrisþegar Trygg-
ingastofnun yfir 100 þúsund krón-
ur. Þá eiga 2.717 ellilífeyrisþegar og
3.832 örorkulífeyrisþegar yfir 100
þúsund króna inneign hjá Trygg-
ingastofnun.
„Flestir örorkuþegar eru að fá
170 til 190 þúsund krónur á mánuði
greiddar frá Tryggingastofnun. Það
segir sig sjálft ef greiða þarf 100
þúsund krónur eða meira til baka þá
kemur það hressilega niður á heim-
ilisbókhaldi hjá fólki,“ segir Halldór.
Þá bætir Halldór við að það komi
einnig illa við fólk að hafa fengið
vangreiddan lífeyri. „Það er alveg
sama hvort það er of- eða van-
greiðsla. Það er slæmt að það komi
svona eftir á. Fólk þarf á þessum
aurum sem það er að fá til baka frá
Tryggingastofnun að halda fyrr á
árinu,“ segir hann.
Halldór segir kerfið flókið og að
erfitt geti verið fyrir fólk að átta sig
á því hvort það hafa fengið van- eða
ofgreitt. Það eigi sérstaklega við þá
sem nýkomnir séu á örorku. „Það er
eitt frítekjumark fyrir fjármagns-
tekjur, annað fyrir lífeyristekjur
og þriðja fyrir atvinnutekjur,“ segir
Halldór. Best færi á því ef kerf-
ið yrði einfaldað og dregið yrði úr
skerðingum.
Í svari við fyrirspurn Frétta-
blaðsins segir Tryggingastofnun
að það sé á ábyrgð lífeyrisþega
sjálfra. Hins
vegar geti verið
erfitt fyrir þá að
áætla fjármagns-
tekjur nákvæm-
lega. Þá sé fólk
í auknum mæli
að vinna tíma-
bundna vinnu
auk þess að ein-
greiðslur frá líf-
eyrissjóðum séu algengari eftir
að skylt varð að sækja um hjá líf-
eyrissjóðum áður en sótt er um hjá
Tryggingastofnun. Þá sé algengara
að fólk leigi húsnæði.
Halldór segir þrátt fyrir allt ekki
við Tryggingastofnun að sakast.
Stofnunin sé að framfylgja lögum
sem sett hafi verið af stjórnmála-
mönnum. Það sé þeirra að breyta
kerfinu. ingvar@frettabladid.is
Breyting á inneign hjá Tryggingar-
stofnun eftir endurútreikning
0 2.000 4.000 6.000 8.000 10.000 12.0000 14.000
■ Örorkulífeyrisþegar ■ Ellilífeyrisþegar
Inneign yfi r
100 þúsund kr.
Inneign undir
100 þúsund kr.
Krafa yfi r
100 þúsund kr.
Krafa undir
100 þúsund kr.
Engin breyting
3.832
2.717
5.135
12.974
2.675
3.319
5.735
11.308
2.531
4.391
Segir endurútreikninga TR
koma illa niður á öryrkjum
87 prósent öryrkja og ellilífeyrisþega fékk ýmist vangreiddar eða ofgreiddar lífeyrisgreiðslur á síðasta ári. 6.500
manns skulda Tryggingastofnun yfir 100 þúsund krónur eftir endurútreikninga. Varaformaður Öryrkjabanda-
lagsins gagnrýnir kerfið sem hann segir of flókið. Erfitt sé fyrir öryrkja að átta sig á öllum skerðingum.
TRYGGINGA-
STOFNUN
Halldór segir
að breyta þurfi
lögum til að ein-
falda almanna-
tryggingakerfið.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VILHELM
HALLDÓR SÆVAR
GUÐBERGSSON
TYRKLAND Einn tyrkneskur her-
maður lést þegar liðsmenn ISIS
hófu skothríð yfir landamæri
Tyrklands í gær.
Upp hófust skotbardagar á
milli vígamanna ISIS og liðs-
manna tyrkneska hersins.
Tyrkneski herinn beitti
þungavopnum gegn ISIS-lið-
um og talið er að einn liðs-
maður ISIS hafi fallið í árásum
stórskotaliðsins.
Mikil ólga er í Tyrklandi en á
mánudag voru 32 einstaklingar
myrtir í sjálfsvígssprengjuárás
í Suruc í Tyrklandi. - srs
Skutu yfir landamærin:
Tveir féllu í
skotbardögum
KOBANE ISIS-liðar réðust á sýrlenska
bæinn Kobane í júní. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
GRIKKLAND Formlegar viðræður
um nýjan neyðaraðstoðarsamn-
ing fyrir Grikkland hefjast í dag
milli Grikkja og lánardrottna
þeirra eftir að gríska þingið sam-
þykkti lagapakka til að greiða
fyrir viðræðunum.
Lagapakkinn sem um ræðir
inniheldur meðal annars afnám
ríkisábyrgðar á viðskiptabönk-
um og breytingar á dómskerfinu.
Grikkir hafa nú að mestu upp-
fyllt þær forsendur sem ríki
evrusvæðisins og framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins settu
fyrir 86 milljarða evru neyðar-
aðstoð sem komist var að óform-
legu samkomulagi um fyrr í
mánuðinum.
„Við höfum valið leið sem
neyðir okkur til að fylgja áætlun
sem við trúum ekki að geri gagn
en við verðum að gera það því
aðrir valkostir eru of erfiðir,“
sagði forsætisráðherra Grikk-
lands, Alexis Tsipras, sem þurfti
að treysta á atkvæði stjórnar-
andstöðuflokka til að koma laga-
pakkanum í gegnum þingið þar
sem 36 þingmenn úr flokki hans,
Syriza, kusu á móti.
Gríska ríkisstjórnin vill ljúka
viðræðum bráðlega og sam-
þykkja samninginn á gríska
þinginu fyrir 20. ágúst næst-
komandi. Þann dag eiga Grikk-
ir að greiða 3,4 milljarða evra
afborgun af láni frá Seðlabanka
Evrópu.
Fjölmiðlar víða um heim hafa
velt fyrir sér möguleikanum á að
kjósa nýtt þing vegna óeiningar
innan flokks Tsipras. Kosning-
arnar myndu fara fram eftir að
samningurinn færi í gegn um
þingið.Stjórnarandstaðan í land-
inu hefur lýst sig andsnúna þeirri
hugmynd. Stjórnmálaskýrendum
þykir þó líklegt að Tsipras kalli
til kosninga til að stokka upp í
eigin flokki. Tsipras nýtur sjálf-
ur mikils trausts grísku þjóðar-
innar samkvæmt skoðanakönn-
unum. - þea
Gríska þingið samþykkti lagapakka svo hægt sé að semja um neyðaraðstoð:
Samningaviðræður hefjast í dag
MÓTMÆLI Fjöldi Grikkja flæddi út á stræti borga landsins til þess að mótmæla
nýja lagapakkanum. Mikill hiti var í mótmælendum í Aþenu sem köstuðu meðal
annars eldsprengjum. NORDICPHOTOS/AFP
2
3
-0
7
-2
0
1
5
2
1
:5
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
8
D
-7
A
5
4
1
5
8
D
-7
9
1
8
1
5
8
D
-7
7
D
C
1
5
8
D
-7
6
A
0
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K