Fréttablaðið - 24.07.2015, Blaðsíða 26
6 • LÍFIÐ 24. JÚLÍ 2015
Ég hef fjórum sinnum orðið ólétt en ég á aðeins tvö börn. Ég hef einu sinni misst
fóstur og einu sinni farið í fóstureyðingu.
Það er, af alls konar ástæðum, ótrúlega erf-
itt að skrifa þetta opinberlega en samt þykir
mér það svo nauðsynlegt. Ef það er eitthvað
sem ég vil afreka á mínum starfsferli þá er
það að létta á tabúum og þau eru ansi mörg í
tengslum við þungun.
Það er tabú að tala um að reyna að eignast
barn. Það er tabú að segja á stefnumóti að þig
langi í börn. Það er tabú að segja of snemma
(lesist, fyrir tólftu viku) frá þungun. Það er
tabú að fara í fóstureyðingu. Það er tabú að
vera ekki viss hver næstu skref eru þegar
þvagið drýpur af prófinu. Það er tabú að vera
óviss hver pabbinn er. Það er tabú að syrgja
fóstur sem þú misstir. Það er tabú að fá að-
stoð við frjóvgun. Það er tabú að ætla ekki í
hnakkaþykktarpróf. Það er tabú að geta ekki
getið barn. Það er tabú að vilja ekki eign-
ast barn. Það er tabú að móðurhlutverkið sé
drulluerfitt.
Tengist þungun samförum?
Þetta er allt svo þungt og mikið tabú en ég
segi stopp. Ég nenni þessu ekki. Mig lang-
ar að við getum leitað stuðnings til okkar
fólks, hvort sem það er í gleði eða sorg.
Þungun er flókið líffræðilegt ferli sem
setur allar tilfinningar í algjöra flækju og
heldur viðkomandi í gíslingu þann tíma sem
hún stendur yfir. Það þarf að taka alls konar
ákvarðanir en samt má eiginlega ekki ræða
þessar ákvarðanir við neinn nema í hálf-
um hljóðum, falið hvísl í heimahúsi. Góð vin-
kona mín stakk því að mér að það gæti verið
vegna þess að þetta tengist samförum á einn
eða annan hátt. Er það virkilega? Þegar fólk
ræðir barneignir, sér það þá fyrir sér hvort
hún hafi verið ofan á eða hann fyrir aftan
eða hvað? Það getur ekki verið svarið. Eða að
hann hitti alltaf í vitlaust gat og þess vegna
sé ekkert barn komið? Eða gera þau það
ekki nógu oft? Eða það að þú sért kæru-
laus, kunnir ekki á getnaðarvarnir eða
sért jafnvel, gúlp, drusla?
Hlustaðu af hlýju og kærleika
Fólk hefur alls konar skoðanir á öllum
málum undir sólinni en þegar það
kemur að þessu máli – nennirðu að sýna
samúð, stuðning og skilning? Nennir þú
að skilja fordóma þína eftir í eigin heila
og hlusta með opnu hjarta og heyra
það sem viðkomandi gengur í gegnum,
hvort sem það er hamingja eða hjarta-
sorg? Og spyrðu. Leyfðu þér að teygja
þig eftir viðkomandi og spyrja hvern-
ig honum eða henni líður og hver stað-
an er. Þegar við sýnum hvert öðru kær-
leika og þolinmæði þá verður heimur-
inn betri og við hættum að burðast með
einhver óþarfa aukakíló skammar, sam-
viskubits og sorgar.
KREMJUM ÓLÉTTUTABÚIN
Nennir þú að skilja
fordóma þína eftir í
eigin heila og hlusta
með opnu hjarta...
Ef þú hefur spurningu um kyn-
líf þá getur þú sent Siggu Dögg
póst og spurningin þín gæti
birst í Fréttablaðinu.
sigga@siggadogg.is
VILTU SPYRJA
UM KYNLÍF?
Ef leitast er eftir því að minnka sykurinn þá er þjóðráð að kíkja á
innihaldslýsingar á aðkeyptum sósum, oftar en ekki er sykur þriðja
eða fjórða hráefnið í slíkum vörum. Gott dæmi um slíka sósu er
majónes. Nú eru margir á faraldsfæti um landið og eflaust eitt
salat eða sósa með í för sem inniheldur majónes. Það að ferðast
um landið þarf ekki að þýða óhollusta þó að löngun í kremað
salat geri vart við sig. Það er leikur einn að hræra saman heima-
gert majónes, án alls sykurs og annarra sætuefna.
Hér er uppskrift að heimagerðu majónesi fengin á vefsíðunni Vino-
tek.
Innihald:
3 egg
2 vænar msk. Dijon-sinnep – má sleppa
6 dl matarolía
Safi úr hálfri sítrónu (u.þ.b. 0,5 dl)
Salt og pipar
Aðferð
Setjið egg og
sinnep í mat-
vinnsluvél og
hrærið vel
saman.
Hellið olíunni
smám saman út
í og látið vélina
þeyta allan tím-
ann.
Blandan fer að
þykkna mjög
hratt.
Bætið sítrónu-
safanum út í.
Bragðið til með
salti og pipar.
Geymist í kæli í
loftþéttri krukku.
HENT Í HEIMA-
GERT MAJÓNES
Matarvísir
2
3
-0
7
-2
0
1
5
2
1
:5
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
8
D
-5
C
B
4
1
5
8
D
-5
B
7
8
1
5
8
D
-5
A
3
C
1
5
8
D
-5
9
0
0
2
8
0
X
4
0
0
2
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K