Fréttablaðið - 21.08.2015, Blaðsíða 25
• R-Line ytra útlit og 18” álfelgur
• Litað gler
• Alcantara áklæði
• Webasto bílahitari með fjarstýringu
• Hraðastillir
• Bluetooth fyrir farsíma og tónlist
• Climatronic - 3ja svæða loftkæling
• Bílastæðaaðstoð
• Aðfellanlegt dráttarbeisli
• Bakkmyndavél
• Leiðsögukerfi fyrir Ísland
• Panorama sólþak
Staðalbúnaður í Tiguan R-Line 4Motion 2.0 TDI dísil, fjórhjóladrifnum og sjálfskiptum
Er ekki kominn
tími á Tiguan?
VW Tiguan R-Line er vel útbúinn með öllu því helsta sem gerir bíl að sportjeppa.
Taktu skrefið til fulls og fáðu þér Tiguan. Góða skemmtun!
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirðiwww.volkswagen.is
5.990.000
kr.
Sjálfskiptur
og fjórhjóla
drifinn
Tiguan R-Li
ne:
Sá tími rennur upp í lífi sérhvers manns að hann getur ekki annað en gefist upp. Ég vona að þið getið fyrirgefið mér ef ykkur finnst ég sýna af mér sjálfselsku. En það eru takmörk fyrir því hve mikinn líkamlegan sársauka maður þolir. Ekki gráta mig. Minnist góðu
stundanna og haldið þeim áfram. Þegar nýr dagur rís og
maður liggur í keng við rúmstokkinn eins og volaður
hundur því sársaukinn er svo óbærilegur … Ég hef gert
upp hug minn. Þetta snýst um lífsgæði.“
Það var krossgáta sem gerði útslagið. Vikum saman
hafði Bob Cole, 68 ára smiður frá Chester á Englandi,
velt fyrir sér hvenær besti tíminn væri til að deyja. Í
síðustu viku ákvað hann að stundin væri runnin upp.
Krossgátan var auðveld. En hann réð ekki við hana. Það
var komið að þessu.
Nokkrum vikum fyrr hafði Bob greinst með lungna-
krabbamein. Honum var sagt að hann ætti í mesta lagi
þrjá mánuði ólifaða.
Daginn sem Bob gat ekki klárað krossgátuna sína
pakkaði hann niður í ferðatösku. Stefnan var sett á
Zürich í Sviss. Þetta yrði hans hinsta för. Hann bauð
blaðamanni að koma með.
Bob hugðist enda líf sitt á Dignitas-stofnuninni þar
sem fólki er hjálpað að deyja. Þetta var hins vegar ekki
fyrsta heimsókn Bobs á stofnunina.
Frammi fyrir endalokunum
Átján mánuðum fyrr hafði Bob gengið út af sömu
stofnun sem ekkill.
Bob og Ann, eiginkona hans til þrjátíu og fjögurra ára,
höfðu verið tíðir gestir í Sviss en þau stunduðu fjalla-
klifur og sóttu gjarnan í Alpana. En árið 2012 greindist
Ann með ágengan taugahrörnunarsjúkdóm. Henni
hrakaði hratt og í febrúar á síðasta ári héldu þau Bob
ásamt fjölskyldu og vinum til Zürich þar sem Ann dó
líknardauða.
Þegar Bob fékk þær fréttir að hann stæði frammi fyrir
endalokunum ákvað hann strax að fara sömu leið kona
hans. En eitt gramdist honum mjög.
Erfiðu máli úthýst
Fyrir nákvæmlega viku vaknaði Bob á hótelherbergi í
Zürich vitandi það að þetta var hans hinsti dagur. Síðast-
liðinn föstudag, á meðan við hin flettum Fréttablaðinu
og skófluðum hugsunarlaust í okkur morgunkorninu,
fékk Bob sér samloku með beikoni. Því næst klæddi
hann sig í bestu jakkafötin sín og pantaði sér leigubíl
sem ók honum í úthverfi Zürich þar sem Dignitas rekur
stofnun sína.
Hann hugðist hins vegar ekki yfirgefa þennan heim
þegjandi og hljóðalaust. Áður en hann drakk banvænan
lyfjakokteil í tómlegu herbergi í grámóskulegri blokk
í ókunnugri borg sendi hann breskum stjórnvöldum
tóninn. „Það ætti að vera réttur minn að deyja með
reisn í eigin heimalandi, í eigin rúmi,“ sagði hann við
blaðamann dagblaðsins The Sun. „Það þarf að breyta
lögunum. Fólk þarf að láta í sér heyra. Það er ég að
gera hér í dag.“ Hann sakaði breska stjórnmálamenn
um að úthýsa þessu erfiða máli til Sviss og hvatti þá til
að breyta lögum sem banna fólki að aðstoða þá sem
hyggjast binda enda á líf sitt.
Bob skrifaði vinum sínum bréfið sem vitnað er í hér
í upphafi þar sem hann útskýrði fyrir þeim ákvörðun
sína. Nokkrum mínútum eftir andlát hans fengu vinir
hans frá honum SMS: „Njótið lífsins.“
Hinsta óskin
Líknardráp eru aðeins leyfð í Belgíu, Hollandi, Lúxem-
borg, Sviss og í tveimur ríkjum Bandaríkjanna. Senn
gæti orðið breyting þar á.
Þegar breska þingið kemur saman eftir sumarfrí í
byrjun september verður kosið um lagafrumvarp sem
gerir það heimilt að aðstoða dauðvona fólk við að binda
enda á líf sitt.
Það er þó á brattann að sækja. Yfirgnæfandi meiri-
hluti Breta vill heimila líknardráp. Skoðanakönnun
sýndi að 82% fólks styðja frumvarpið. En þingið er tregt
í taumi. Það gæti því orðið einhver bið á að hinsta ósk
Bobs Cole verði að veruleika.
Að deyja með reisn
Nú styttist í að Alþingi Íslendinga komi aftur saman eftir
sumarfrí. Vafalaust eru margir þingmenn farnir að bræða
með sér hvað skuli karpa um. Væntanlega verður þetta
bissness as júsjúal – með áherslu á bissness: Á að leyfa
sölu áfengis í matvöruverslunum? Hvaða auðlindir getum
við gefið hinum útvöldu í ár? Getum við ekki einhvern
veginn selt mannréttindi hæstbjóðanda með útboði?
Hugsanlegir kaupendur: Svarthöfði, Satan, Pútín.
En kannski að þingmenn geti tekið sér breska kollega
sína til fyrirmyndar og helgað örlitla stund umræðu um
mál sem varðar okkur öll.
Mikil og heit umræða hefur átt sér stað í mörgum
löndum síðustu ár um lögleiðingu líknardráps enda er
um að ræða flókið mál, bæði siðferðilega og lagalega.
Hér á landi hefur umræðan hins vegar verið lítil.
Engar tölur eru til um fjölda Íslendinga sem ákveða að
deyja líknardauða. Þó eru dæmi um að Íslendingar hafi
lagt upp í sama leiðangur og Bob Cole og framið sjálfsvíg
með aðstoð læknis í Dignitas-stofnuninni.
Að deyja líknardauða er nú þegar á færi þeirra sem
hafa efni á því að ferðast til Sviss. Bob Cole greiddi
12.000 pund, eða um tvær og hálfa milljón króna, fyrir
að fá að „deyja með reisn“ eins og hann orðaði það. Það
er freistandi að stinga höfðinu í sandinn og láta eins og
málið komi okkur ekki við. Og það gerir það kannski
ekki í dag. En einhvern tímann gæti það gert það. Og þá
er orðið of seint að ræða málin.
Við munum öll deyja. Byrjum því karpið. Gleðilegan
föstudag.
Við munum öll deyja – byrjum karpið í dag
Sif
Sigmarsdóttir
rithöfundur
Í DAG
Væntanlega
verður þetta
bissness as
júsjúal – með
áherslu á
bissness.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 32 1 . Á G Ú S T 2 0 1 5 F Ö S T U D A G U R
2
0
-0
8
-2
0
1
5
2
3
:5
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
D
5
-F
1
C
0
1
5
D
5
-F
0
8
4
1
5
D
5
-E
F
4
8
1
5
D
5
-E
E
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K