Fréttablaðið - 21.08.2015, Blaðsíða 10
efnahagsmál Framleiðni á Íslandi,
sem mælir hve mikil verðmæti verða
til á hverri vinnustund, hefur staðið
í stað síðustu tvö ár. „Það er mikið
áhyggjuefni. Til langs tíma er þetta
lykilákvörðunarþáttur hagvaxtar og
þar með velmegunar á Íslandi,“ segir
Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræð-
ingur Seðlabankans.
Framleiðni var 0 prósent á síðasta
ári, -0,1 prósent árið 2013. Sam-
kvæmt spá bankans á framleiðni að
aukast um 1,3 prósent í ár og 0,9 pró-
sent á næsta ári.
Ingólfur Bender, hjá greiningar-
deild Íslandsbanka, bendir á að þeim
hagvexti sem hafi verið frá árinu 2010
hafi ekki fylgt aukin framleiðni held-
ur fleiri störf og sérstaklega í ferða-
þjónustu. „Sú grein hefur ekki verið
þekkt fyrir að skapa mikinn virðis-
auka á hvert starf, ,“ segir Ingólfur.
„Hið jákvæða er að þetta skapar
störf. Hið neikvæða er að grundvöllur
launahækkana sem á að vera sóttur í
framleiðnivöxtinn er ekki til staðar
þannig að launahækkanir fara beint
út í verðlagið,“ segir Ingólfur.
Ingólfur segir ýmsar leiðir færar til
að auka framleiðni. Íslendingar þurfi
að spyrja sig hvað þeir geti gert betur
í þeim greinum sem þeir sinni nú.
„Þá er það hin leiðin sem menn hafa
reynt, að færa starfsemi yfir í aðrar
greinar sem hafa meiri virðisauka.“
Að hans mati væri þó besta leiðin
að bæta almenn starfsskilyrði innan
hagkerfisins. Þar sé stærsta málið
afnám gjaldeyrishafta en einnig sé
mikilvægt að stöðugleiki ríki, verð-
Áhyggjuefni að framleiðni standi í stað
Framleiðni á Íslandi stendur í stað. Hagfræðingur Seðlabankans segir það áhyggjuefni. Framleiðni er sögð grundvöllur bættra lífskjara.
Lág framleiðni er í verslunargeiranum að sögn Ingólfs. Það skýrist helst af fámenni
Íslendinga sem sé eitthvað sem lítið sé hægt að gera í. Fréttablaðið/Anton Brink
✿ Breytingar á framleiðni 2008-2014
-1,9
0,9 0,8
-0,1
0
20
08
20
09
20
10
20
13
20
14
20
11
20
12
5,7
1,3
Heimild: Seðlabanki Íslands
og Hagstofa Íslands
Hvað er framleiðni og af hverju skiptir hún máli?
Ingólfur segir að aukin framleiðni sé grundvöllur þess að hægt sé
að greiða hærri laun og bæta lífskjör á Íslandi. Hækki laun verulega
umfram framleiðniaukningu muni það að lokum fara út í verðlag
og skapa verðbólgu að sögn Ingólfs. Framleiðni er reiknuð sem
landsframleiðsla í hlutfalli af heildarvinnustundum. Heildarvinnu-
stundir eru margfeldi fjölda starfandi og meðalvinnutíma.
www.hi.is
Mótmæli og glæpir
á Menningarnótt kl. 11
Helgi Gunnlaugsson, prófessor við Félags- og mannvísindadeild
Háskóla Íslands, og Guðni Th. Jóhannesson, dósent við Sagnfræði-
og heimspekideild skólans, vita ýmislegt um glæpi og mótmæli
á Íslandi í áranna rás. Þeim fróðleik deila þeir í gönguferð um
glæpa- og mótmælaslóðir Reykjavíkur á Menningarnótt.
Lagt verður af stað kl. 11 og gengið frá Stjórnarráðshúsinu við
Lækjargötu, sem er gömul fangageymsla, og endað í nýrra fangelsi,
Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg, með viðkomu á Austurvelli
og Ægisgarði. Ferðin tekur um tvær klukkustundir og er farin
í samstarfi við Ferðafélag barnanna.
Ferðin er liður í samstarfi Háskóla Íslands og Ferðafélags Íslands um göngu- og hjólaferðir
undir yfirskriftinni „Með fróðleik í fararnesti“.
Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir.
Með fróðleik í fararnesti
Valitor
er stuðningsaðili
Ferðafélags Íslands
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
53
80
3
Allar nánari
upplýsingar
á hi.is
efnahagsmál Innflutningur á
skipum á tímabilinu janúar til júní
2015 reynd ist tæpum 4,4 milljörð-
um króna hærri en áður var talið.
Þetta leiðir endurskoðun talna um
innflutn ingsverðmæti skipa og flug-
véla í ljós.
Innflutningsverðmæti flugvéla á
sama tímabili reyndist tæpum 5,6
millj örðum króna lægra en áður var
talið.
Útflutningsverðmæti á skipum
reyndist um 0,8 milljörðum króna
hærra en áður var talið.
Halli á vöruskiptum við útlönd
á tímabilinu breytist úr 5,9 millj-
örðum króna í 3,8 milljarða króna
og er því tæpum 6,0 milljörðum
króna hagstæðari en á sama tíma
árið áður. – ngy
Skipin breyttu stöðunni
lögreglumál Tilkynningum um fíkni-
efnabrot á höfuð borgarsvæðinu
hefur fækkað umtalsvert en í júlí
hafa aldrei borist jafn fáar tilkynn-
ingar síðan í desember 2013.
Þetta kemur fram í afbrota-
tölfræði lögreglunnar á höfuðborg-
arsvæðinu fyrir júlímánuð.
Þá fjölgar tilkynningum um
kynferðisafbrot en 19 brot voru
tilkynnt í júlí og tíu í júní. Þó er
fjöldinn enn minni en meðalfjöldi
tilkynntra kynferðisbrota síðast-
liðinna þriggja ára.
Alls bárust lögreglu til kynn ingar
um 752 hegningarlagabrot í júlí.
Þeim fækkar á milli mánaða en
eru ögn fleiri en meðaltal síðustu
þriggja ára.
– srs
Fíkniefnabrot færri í júlí
Tilkynntum kynferðisafbrotum fjölgaði milli mánaða. Fréttablaðið/Vilhelm
bólga sé lág og nægt aðgengi að hæfi-
leikaríku vinnuafli.
Ingólfur bendir á að þróunin sé
misjöfn milli atvinnugreina, í sumum
hafi svigrúm til launhækkana skap-
ast, ekki öðrum. „Okkur hefur gengið
ágætlega að auka framleiðni í sjávar-
útvegi sem er með því mesta sem
maður sér. En þegar framleiðni er
skoðuð í öðrum greinum, t.d. verslun
og þjónustu líðum við fyrir lítinn
markað og fámenna þjóð, sem er eitt-
hvað sem við getum lítið gert í,“ segir
hann. ingvar@frettabladid.is
Ekki er um neinar smáupphæðir að
tefla þegar kemur að skipaviðskiptum.
fréttablaðið/vilhelm
2 1 . á g ú s t 2 0 1 5 f ö s t u D a g u r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
2
0
-0
8
-2
0
1
5
2
3
:5
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
D
6
-0
0
9
0
1
5
D
5
-F
F
5
4
1
5
D
5
-F
E
1
8
1
5
D
5
-F
C
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K