Fréttablaðið - 21.08.2015, Blaðsíða 68

Fréttablaðið - 21.08.2015, Blaðsíða 68
GARÐVEISLA FTT Hljómleikar í Hljómskálagarðinum. Í kvöld kl. 20:00 Allir velkomnir Félag tónskálda og textahöfunda býður til tónleikaveislu. AmabaDama Páll Óskar Valdimar 19. júní bandið og fleiri Kvennasveitin frá 19. júní flytur lög íslenskra kvenna ásamt góðum gestum. Fáðu þér áskrift í síma 1817 eða á 365.is ENDALAUST TAL OG 10 GB Á 3.990 KR.* Færðu farsímann yfir til 365 og fáðu frábært sjónvarpsefni á fáránlega góðu verði. Allt það besta hjá 365 *Gildir fyrir áskrifendur í tilboðspökkum 365 1 Ekki þarf að greiða skráningargjald á síðuna, en karlmenn þurfa að greiða fyrir ýmsa þjónustu, meðal annars fyrir að fá að senda konum skilaboð. Einnig var notendum boðið upp á að borga fyrir að láta aðstandendur síðunnar eyða upplýsingum um þá. 2 Hópur hakkara sem kallar sig The Impact Team er talinn hafa staðið fyrir tölvuárásinni. Þeir voru ósáttir við að forsvarsmenn síðunnar væru að ljúga að viðskiptavinum sínum. Hakkararnir vildu sýna fram á að ekki væri hægt að eyða gögnunum um viðskiptavinina. 3 Kanadíska fyrirtækið Avid Life Media rekur síðuna. Fyrirtækið rekur fleiri umdeildar síður, eins og Cougar Life (þar sem eldri konur geta kynnst ungum mönnum) og Established Men (þar sem eldri menn geta kynnst yngri konum). 4 Aðstandendur síðunnar hafa verið gagnrýndir í gegnum tíðina, meðal annars fyrir að hleypa blaðamönnum og félagsfræðingum í viðkvæm gögn. 5 Auk upplýsinga um notendur síðunnar komust hakkarar yfir ársreikninga, tölvupóst starfsmanna og bankaupplýsingar fyrirtækisins. 6 Upplýsingarnar sem láku út um notendur eru í raun þrír stórir gagnagrunnar. Sá fyrsti inniheldur heimilisföng, nöfn, fæðingardaga og fleiri upplýsingar um notendur. Meðal annars hvað kveikir í þeim í svefnherberginu. Annar gagnagrunnurinn inniheldur póstföng, en þess má geta að aðstandendur síðunnar gengu ekki úr skugga um að notendur gæfu upp rétt netföng. Sá þriðji inniheldur kreditkortaupplýsingar, en aðeins er hægt að sjá hluta af kreditkortanúmerum notenda og því ekki hægt að nota þær upplýsingar til að svíkja út fé eða vörur í gegnum netið. 7 Upplýsingunum var lekið inn á svokallaða Tor-vefsíðu, sem er einungis hægt að komast í með sérstökum Tor-netvöfrum. Gjarnan er talað um slíkar vefsíður sem hluta af svokölluðum „Deep Web“, sem mætti kalla hina dimmu kima netsins. Gögnin hafa einnig gengið manna á milli á svokölluðum Torrent-síðum. Ljóst er að lekinn verður ekki stöðvaður úr þessu. 8 Talið er að fyrirtækið AvidMedia Life muni eiga í miklum erfiðleikum með að komast aftur á réttan kjöl eftir lekann. Talið er víst að málsókn verði höfðuð á hendur forsvarsmönnum fyrirtækisins og gætu bæturnar sem fyrirtækið þarf að greiða viðskiptavinum sínum hlaupið á tugum milljarða króna, varlega áætlað. Heimsbyggðin er hægt og rólega að átta sig á áhrifunum sem lekinn úr gagnagrunni Ashley Madison hefur, eftir því sem upplýsingar úr honum halda áfram að berast. Í gögnunum má finna ítarlegar persónuupplýs- ingar milljóna manna, þar á meðal tuga Íslendinga. Full nöfn, heimilis- föng, símanúmer, hluti úr kredit- kortanúmerum, netföng og ýmislegt fleira er meðal þess sem finna má í gögnunum. Þar eru til að mynda ítarlegar persónuupplýsingar um þjóðþekkta Íslendinga sem skráðu sig til leiks á framhjáhaldssíðuna, einhvern tímann á þeim fjórtán árum sem hún hefur verið í loftinu. Mest karlmenn Í gögnunum eru karlmenn í miklum meirihluta. Mjög litlar upplýsingar eru til um þær konur sem voru skráðar í gagnagrunninn því á síðunni þurftu einungis karlmenn að borga. Ekkert skráningargjald var á síðuna og þær upplýsingar sem fólk gaf upp þegar það skráði sig fyrst til leiks voru ekki athugaðar nánar. En flestar upplýsingarnar má finna í skrám sem innihalda kredit- kortafærslur og þar eru karlmenn í miklum meirihluta. Á síðunni þurfa karlmenn að greiða fyrir að fá að senda konum skilaboð auk þess sem þeir þurfa að greiða fyrir að fá að lesa skilaboð frá konum. Eitt af því fáa sem konur þurftu að borga fyrir voru rafrænar gjafir sem þær gátu sent fólki í gegnum síðuna, þjónusta sem fáar konur nýttu sér. Alvarlegar afleiðingar Eins og gefur að skilja eru fjölmörg hjónabönd víða um heim í hættu, eftir því sem nákvæmari upplýsingar berast úr gögnunum. En lekinn getur einnig haft alvarlegar afleiðingar fyrir fólk í löndum þar sem framhjá- hald er bannað með lögum. Samkyn- hneigt fólk var einnig skráð á síðuna og liggur til dæmis dauðarefsing við samkynhneigð í Sádi-Arabíu, en 1200 manns eru skráðir á síðuna með netföngum frá landinu. Sam- kynhneigður maður frá Sádi-Arabíu opnaði sig á Reddit þegar fregnir bárust af því að hakkarar hefðu komist í gagnagrunninn fyrir mán- uði. Hann sagði frá því að hann hefði notað síðuna þegar hann var í námi í Bandaríkjunum. Hann segist hafa verið einhleypur þegar hann skráði sig á síðuna; hann hafi einungis verið að fela samkynhneigð sína. Mað- urinn óttaðist svo mikið um líf sitt að hann ákvað að flýja land. Aðrir notendur Reddit hjálpuðu honum að kaupa miða til Bandaríkjanna. kjartanatli@frettabladid.is Þjóðþekkta Íslendinga að finna á listanum Nákvæmar upplýsingar um tugi Íslendinga er að finna í gögnum sem hakkarar láku úr gagnagrunni framhjáhaldssíðunnar Ashley Madi­ son. Nöfn og heimilisföng þjóðþekktra Íslendinga má finna þar. Í gögnunum sem láku má finna upplýsingar um milljónir manna sem notuðu vefsíðuna Ashley Madison. Nordicphotos/Getty SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is 2 1 . Á G Ú S T 2 0 1 5 F Ö S T U D A G U RL Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð5 0 2 0 -0 8 -2 0 1 5 2 3 :5 7 F B 0 7 2 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 D 5 -D 4 2 0 1 5 D 5 -D 2 E 4 1 5 D 5 -D 1 A 8 1 5 D 5 -D 0 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 7 2 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.