Fréttablaðið - 21.08.2015, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 21.08.2015, Blaðsíða 6
MENNTAMÁL Barnaheill – Save the Children á Íslandi leggja til að 31. grein grunnskólalaga verði breytt í því augnamiði að tekið verði fyrir alla gjaldtöku og þannig verði grunnskólinn í raun gjaldfrjáls eins og kveðið er á um í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Í rökstuðningi sínum fyrir þessari kröfu segir að samkvæmt barnasáttmálanum eigi öll börn rétt á grunnmenntun án endurgjalds og jafnframt er kveðið á um að ekki megi mismuna börnum sökum stöðu þeirra eða foreldra þeirra, svo sem efnahags. Hins vegar sé því svo farið á Íslandi að löng hefð sé fyrir því að grunnskólar senda út lista til foreldra yfir gögn sem ætlast er til að þeir útvegi vegna skólagöngu barna sinna, sem gangi þvert á það sem barnasáttmálinn kveður á um. Í lögum um grunnskóla frá 2008 kemur fram að opinberum aðilum sé ekki skylt að leggja nemendum til gögn til persónulegra nota. Að mati Barnaheilla eru öll gögn sem nemandi þarf að nota til skólagöngu sinnar hluti af námsgögnum, en ekki persónuleg gögn. Barnaheill vilja jafnframt hvetja stjórnvöld, bæði ríki og sveitarfélög til að setja skýrar reglur um að óheimilt sé að krefja foreldra um innkaup á gögnum, greiðslu fyrir gögn, sem nota á vegna skólagöngu barnanna, eða fyrir aðra starfsemi á vegum skóla. Leita þurfi annarra leiða til að uppfylla markmið aðalnámskrár um menntun barnanna en að hluti menntunarinnar sé kostaður beint af foreldrum.  – shá GRIKKLAND Alexis Tsipras sagði í gær af sér sem forsætisráðherra Grikklands og boðar til kosninga innan fárra vikna. Hann skýrði frá ákvörðun sinni í sjón- varpsávarpi. Fyrr um daginn fékk gríska stjórnin 13 milljarða evra að láni frá neyðarsjóði Evr- ópusambandsins. Þriðjungur lánsins, alls 3,4 milljarðar, var samdægurs notaður til þess að greiða niður skuld við Evrópska seðlabankann. Aðeins rúmlega hálft ár er liðið frá því Tsipras, ásamt félögum sínum í SYRIZA- flokknum, vann stórsigur í þingkosning- um út á kosningaloforð um að ekki yrði lengur gengið að afarkostum Evrópusam- bandsins, Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Evrópska seðlabankans. Á endanum samdi Tsipras við Evrópu- sambandið um frekari lánveitingar og féllst á ströng skilyrði, sem í reynd voru enn strangari en þau skilyrði sem Tsipras hafði sjálfur hvatt þjóðina til að hafna í þjóðaratkvæðagreiðslu, sem hann efndi til fyrr í sumar. Stór hluti þingmanna SYRIZA, alls 43 af 149 þingmönnum flokksins, greiddu atkvæði gegn samkomulagi ríkisstjórnar- innar við Evrópusambandið, þannig að Tsipras nýtur ekki lengur óskoraðs stuðn- ings eigin flokks á þingi. Hann átti því ekki annars úrkosti en að segja af sér og boða til kosninga. Samkvæmt stjórnarskrá landsins ber forseta reyndar skylda til þess að láta næststærsta flokk þingsins fá stjórnar- myndunarumboð, fari svo að ríkisstjórn segi af sér innan árs frá kosningum. Stjórnarandstaðan getur hins vegar gefið frá sér stjórnarmyndunarumboðið, þann- ig að hægt verði að boða til kosninga. Samkvæmt samningnum við ESB geta Grikkir fengið allt að 86 milljarða evra að láni úr Stöðugleikasjóði Evrópusam- bandsins, sem settur var á stofn til að bregðast við neyðarástandi í ríkisfjár- málum evruríkja. Þetta lán kemur til viðbótar fyrri neyðarlánum til Grikklands frá Evrópu- sambandinu, Evrópska seðlabankanum og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Um það bil 40 prósent, eða um 35 milljarðar evra, af þessu viðbótarláni eru ætluð til þess að byggja upp hagvöxt og skapa ný störf í Grikklandi. gudsteinn@frettabladid.isevra Vilja lagabreytingu sem tryggir gjaldfrjálsan skóla í raun Barnaheill – Save the Children á Íslandi hafa sent þingmönnum og sveitarstjórnum um land allt áskorun um að tryggja börnum rétt sinn til að stunda grunnnám án endurgjalds. Fréttablaðið/GVA Gegn því að fá allt að 86 milljarða til viðbótar að láni frá Evrópusambandinu hafa Grikkir gengist undir ströng skilyrði. Gríska þingið hefur nú þegar samþykkt að lagfæra virðisaukaskattskerfið í landinu, lagfæra lífeyrissjóðskerfið og gera grísku hagstofuna að sjálfstæðri stofnun, óháðri ríkisvaldinu. Þá hefur gríska þingið einnig samþykkt umbætur á ýmsum sviðum, þar á meðal í menntamálum, bankamálum og varðandi sölu á brauði og mjólkurvörum, allt í samræmi við kröfur Evrópusambandsins. Þá hefur ríkisstjórnin lofað að gerðar verði enn frekari breytingar á lífeyriskerfinu, fjármálageiranum, vinnumarkaði og í stjórnkerfi landsins. Hún hefur einnig lofað að einkavæða orkuveitu landsins og leyfa verslun á sunnudögum, svo nokkuð sé nefnt af þeim umfangsmiklu breytingum sem gera þarf. Loks á að einkavæða fjölda ríkisfyrirtækja með hraði. Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands, gekk í gær á fund Prokopis Pavlopoulos, forseta landsins, og tilkynnti afsögn og afhenti honum afsagnarbréf sitt. Boðað hefur verið til kosninga í landinu 20. næsta mánaðar. Nordiphotos/EPA Segir af sér og boðar til kosninga Gríska ríkið fékk 13 milljarða lán útborgað úr neyðarsjóði ESB í gær. Þriðjungur lánsins var strax notaður til að greiða niður skuld við Evrópska seðlabankann. EFNAHAGSMÁL  Ekki er hafin vinna við frumvarp sem takmarkað gæti vaxtamunaviðskipti í fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Þetta kemur fram í svari ráðuneytisins við fyrir- spurn Fréttablaðsins. Már Guðmundsson seðlabanka- stjóri sagði á miðvikudag að á næst- unni yrðu kynntar aðgerðir  til að takmarka vaxtamunaviðskipti, annaðhvort með skatti eða bindi- skyldu á fjármagn sem kemur inn til landsins.  Már talaði fyrir því að takmarkan- irnar yrðu fremur í formi bindingar en skatts þótt endanlega ákvörðun hefði ekki verið tekin. „Kannski þarf skatt að lokum til að styðja við tækið, en það er ljóst hvar skattlagningar- valdið er,“ sagði Már. „Ráðuneytið væntir þess að nú þegar hilla fer undir losun fjár- magnshafta muni það eiga samráð við Seðlabankann um þessi atriði,“ segir í svari ráðuneytisins. Ráðuneytið hafi  horft til þess hvort  og  hvernig megi móta laga- reglur sem gætu takmarkað fjár- magnsinnflæði innan ramma alþjóð- legra skuldbindinga Íslands. Þar hafi verið höfð til hliðsjónar skýrsla Seðlabankans um varúðarreglur eftir fjármagnshöft. - ih Ekki unnið að vaxtamunafrumvarpi Már Guðmundsson benti á á miðviku- dag að ef til skattlagningar kæmi þyrfti lagabreytingu. Fréttablaðið/GVA Undirgangast ströng skilyrði til að fá lán Í lögum um grunnskóla frá 2008 kemur fram að opinberum aðilum sé ekki skylt að leggja nemendum til gögn til persónulegra nota. » 2 1 . Á G Ú S T 2 0 1 5 F Ö S T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND utilif. is 20% afsláttur af vörum um helgina Á R N A S Y N IR 2 0 -0 8 -2 0 1 5 2 3 :5 7 F B 0 7 2 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 D 5 -D 9 1 0 1 5 D 5 -D 7 D 4 1 5 D 5 -D 6 9 8 1 5 D 5 -D 5 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 7 2 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.