Fréttablaðið - 21.08.2015, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 21.08.2015, Blaðsíða 62
LÍFIÐ 2 1 . Á G Ú S T 2 0 1 5 F Ö S T U D A G U R Oft getur verið erfitt að fóta sig í hinni hverfulu tilveru einhleypra á Íslandi. Og sumir segja Íslenska „deit-menningingu“ ekki til. Staðreyndin er samt sú að pör verða til. Hvernig kynnist fólk? Fréttablaðið ræddi við nokkra álitsgjafa og útbjó leiðarvísi yfir það hvernig fólk kynnist. deit-menninguLeiðarvísir að íslenskri SKREF 1 TINDER Á Tinder kynnast fjölmargir ein- hleypir Íslendingar. Þar er hægt að stilla leitarvélina eftir svæðum og aldri, þannig að hægt er að finna einhleypa í kringum sig á tilteknum aldri. Fyrir þá sem ekki vita virkar Tinder þannig að ef manni líst vel á einhvern lýsir maður því yfir með því að draga myndina af við- komandi til hægri (sem kallað er að „svæpa“). Ef manni líst ekki á við- komandi „svæpar“ maður til vinstri. Tinder lætur mann svo vita þegar einhver sem maður hefur áhuga á hefur einnig lýst yfir áhuga á manni. Á Tinder er hægt að spjalla og eru fyrstu skrefin tekin þar. En spjallið á Tinder er oft hægt og því færir fólk sig yfirleitt annað eftir stutta stund. SKREF 2 SNAPCHAT Eftir Tinder er Snapchat vinsæl leið til að taka spjallið á næsta stig. Þar getur fólk skipst á myndaskilaboð- um, bæði af sjálfu sér og umhverfi sínu. Á Snapchat er hægt að sjá upplýsingar um þá sem maður ræðir við, til dæmis hversu fljótur maður er að komast upp í efsta lag vina- lista þess sem maður talar við. Til eru útskýringar á netinu yfir hvað öll „emoji-táknin“ þýða í forritinu. Gallinn við Snapchat er að svo virðist sem rafhlaðan á símanum endist mun skemur þegar forritið er opið. Kostirnir eru þó þeir að þar er hægt að vera ansi hreinskilinn, því öll skilaboðin eyðast. SKREF 3 FACEBOOK Þegar fólk hefur spjallað saman á Tinder og Snapchat er þriðja skrefið yfirleitt að senda vinarbeiðni á Face- book og spjalla þar. Viðmótið á spjall- inu þar er, eins og flestir vita, ansi þægi- legt. Að sögn þeirra sem Fréttablaðið ræddi við getur verið varasamt að byrja of snemma á Facebook-spjallinu, sérstaklega ef fólk er nýbyrjað að tala saman á Tinder. Auðvelt er að finna út fullt nafn fólks, þrátt fyrir að Tinder gefi það ekki upp, en að færa spjallið yfir á Facebook strax gæti gefið þeim sem talað er við það á tilfinninguna að maður sé örvæntingarfullur. Sem er eitthvað sem á að forðast eins og heitan eldinn, ef maður er einhleypur. Á Facebook eru ýmis tækifæri til þess að kynnast þeim sem maður ræðir við og/eða vekja athygli við- komandi. Til dæmis með því að „læka“ myndir og fleira. Viðmælendur Fréttablaðsins eru þó sammála um að mikilvægt sé að stíga varlega til jarðar með allt sem aðrir sjá, því slíkt getur vakið umtal og fleira. SKREF 4 DJAMMIÐ Eftir spjall á Facebook eru ýmis skref vinsæl. Líklega er það „klass- ískasta“ að hittast á djamminu. Aðstæðurnar þar eru svolítið eins og á Snapchat, nema í lifanda lífi. Stór hluti samskiptanna gæti gleymst og þannig getur fólk kannski verið hispurslausara. Á djamminu er fólk yfirleitt kærulausara og þannig er minni hætta á stressi. Þetta er þó ekki algilt fjórða skref. Sumir hittast á virkum degi, yfir kaffibolla, bjór og sumir bjóða ein- faldlega í heimsókn. SKREF 5 ÍSBÍLTÚR Fimmta skrefið fer auðvitað svo- lítið eftir því hvernig fjórða skrefið endaði. En algengast er að fólk geri eitthvað skemmtilegt eftir að hafa hist á djamminu (ef allt hefur farið vel). Þar kemur ísbíltúrinn sterkur inn, en í fimmta skrefinu er mikilvægt að gefa hugmyndaflug- inu lausan tauminn. Góðir göngu- túrar, spjall yfir kaffi eða bjór eða bara að setjast niður og spjalla er vel til þess fallið að kynnast betur. Viðmælendur Fréttablaðsins eru sammála um að stefnumótin á þessu skrefi megi ekki vera of yfirdrifin; dýrir veitingastaðir eða eitthvað sem þakið er glansi og glamúr getur hreinlega fælt frá. Sniðug stefnumót, eins og göngutúr í kringum Reykja- víkurtjörn með góðan kaffibolla geta heillað meira. SKREF 6 AÐ HORFA Á ÞÆTTI Gott „vídjókúr“ má aldrei vanmeta. Þar geta pör mátað sig saman. Vin- sælt er að horfa á góða þætti saman og þá er ekki úr vegi að finna þátta- raðir sem fólk getur horft á saman. Stundum getur verið erfitt að halda einbeitingu í heila kvikmynd á þessu stigi, því fólk sem er spennt fyrir hvort öðru vill fá reglulegar pásur. * Endurtaka skal sjöttaskref þar til því sjöunda er náð * SKREF 7 SAMBAND Jú, leiðin að sjöunda skrefinu er þyrnum stráð. Margt getur farið úrskeiðis á leiðinni. En þegar maður hefur fundið einhvern sem maður er tilbúinn að eyða tíma sínum með er ekkert annað að gera en að skella sér í samband. Hinir einhleypu viðmælendur Fréttablaðsins treystu sér ekki til að veita ítarleg ráð um hvernig skuli hátta sambandinu. Ekki meitlað í stein Að sjálfsögðu er ekkert á listanum meitlað í stein, heldur er hugmyndin að varpa ljósi á hvernig „deit-menningin“ er í raun og veru. Fréttablaðið leitaði til kvenna og karla á milli 25 og 35 ára. Það skal tekið fram að margar mis- munandi leiðir eru til að sjöunda skrefinu, en leiðarvísir- inn endurspeglar tilfinningu blaðamanns fyrir því hvað er algengast í þessum efnum hér á landi um þessar mundir. kjartanatli@frettabladid.is NordicPhotos/Getty 2 0 -0 8 -2 0 1 5 2 3 :5 7 F B 0 7 2 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 D 6 -0 0 9 0 1 5 D 5 -F F 5 4 1 5 D 5 -F E 1 8 1 5 D 5 -F C D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 B F B 0 7 2 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.