Fréttablaðið - 21.08.2015, Blaðsíða 37
MYNDAALBÚMIÐ Auður er dugleg að rækta fjölskyldu og vini
og hér deilir hún þrem-
ur myndum sem eru í
sérstöku uppáhaldi. Hér
er fjölskyldan ófrýnileg
á leið á Hrekkjavöku-
fögnuð, Auður með dótt-
ur sinni í svissnesku Ölp-
unum og Auður ásamt
konu sinni, dr. Írisi, á
árshátíð.
en stelpur fari á kopp. Hann var
bara hneykslaður á textanum og
velti fyrir sér af hverju borða
ekki bara allir krakkar popp.
Þarna áttaði hann sig á því að
þetta var niðrandi texti um stelp-
ur því það var verið að hía á að
þær gerðu ungbarnahluti eins
og að fara á kopp. Þarna klapp-
ar maður sér aðeins á öxlina og
hrósar litlum sigrum í uppeld-
inu,“ segir Auður brosandi.
Svipaða sögu má segja af dótt-
ur hennar. „Ástrós var að spila
tölvuleik nýlega og benti mér
á að það var ekki hægt að vera
kvenpersóna og það fannst henni
óréttlátt og hún notaði það orð,
óréttlæti,“ segir Auður með
ánægjublik í auga. Auður talar
einnig mikið um hve móttækileg
börn eru fyrir því að reyna skilja
heiminn og reyna að hafa jafn-
rétti að leiðarljósi en umræðan
heima fyrir og í skólanum þarf
að styðja við og þroska þá heims-
sýn. „Þess vegna er svo frábært
að margir skólar séu farnir að
kenna kynjafræði og að samfé-
lagið sé að opnast en þó er enn
langt í land með margt,“ bendir
Auður á.
Jafnréttis- og
hinsegin fræðsla
Auður hefur í tvö ár stýrt Jafn-
réttisskóla Reykjavíkurborgar
en lætur af því starfi bráðlega
og tekur við sem framkvæmda-
stýra Samtakanna ’78. Um fram-
tíðarsýn starfsins hefur Auður
margt að segja. „Ég er ekki að
fara að verða einhver einræðis-
herra sem bara ákveður hvernig
allt eigi að ganga fyrir sig held-
ur vinna í Samtökunum fjölmarg-
ir, og þar með heill her sjálfboða-
liða, og ég sé mitt starf sem ein-
hvers konar „co-ordinator“, ég sé
um að tengja saman einstaklinga
með ólíka styrkleika og koma á
samstarfi,“ segir Auður Magndís
af miklum ákafa. „Þegar maður
nær að tengja saman rétta fólkið
þá verður bara einhver sprengi-
kraftur úr því og það er svo
gaman,“ segir Auður Magndís.
„Það má ekki gleymast að um-
ræðan um málefni hinsegin fólks
þarf einnig að eiga sér stað á
milli einstaklinga sem tilheyra
þeim hópum og því verðum við
að hlusta og heyra hvað brenn-
ur á fólki. Þannig geta Samtökin,
í nýja húsnæðinu, komið sterkt
inn með því að leiða saman þessa
hópa og hvetja til umræðu,“ segir
Auður sem einnig mun gegna
hlutverki fræðslustýru. Þá er hún
að skrifa handbók um hinseg-
in málefni, ásamt konu sinni, dr.
Írisi, sem verður prufukennd í
Kvennaskólanum í haust. „Þetta
er fyrsta handbókin sinnar teg-
undar á íslensku og er mikil þörf
á henni,“ segir Auður sem reikn-
ar með að hún fari í almenna
dreifingu og útgáfu á næsta ári.
Það er því nokkuð ljóst að um-
ræða um hinsegin málefni hefur
svo sannarlega fengið jákvæða
innspýtingu frá hinni orkumiklu
Auði og verður gaman og lær-
dómsríkt að fylgjast með henni í
framtíðinni.
„Sumir einmitt verða
eitt spurningamerki
í tengslum við þetta
og vilja þá vita
hvernig ég skilgreini
mig, og jafnvel virða
ekki mörkin sem þau
myndu annars virða
við gagnkynhneigt
fólk, og spyr mjög
nærgöngula spurninga
um framtíðaráform
okkar í barneignum...“
ÍSLENSKT TÍMARIT
STARFAR FYRIR
H&M GIGJA ÍSIS
VICTORIA
ELÍASDÓTTIR
UM KOKKASTARFIÐ OG VINSÆLA
VEITINGASTAÐINN DOTTIR
SVANA
LOVÍSA
UM HÖNNUN
TÍSKUÞÁTTUR EFTIR
HÖRÐ INGA
OG ELLEN
LOFTS
TYRFINGUR
TYRFINGSSON
UM FÚSKARA
STINGDU AF
MEÐ GÓMSÆTT OG
GIRNILEGT NESTI
Komið í allar helstu verslanir
GLAMOUR.IS /GLAMOURICELAND @GLAMOURICELANDÁ 365.IS/GLAMOUR
KOMDU
Í ÁSKRIFT
LÍFIÐ 21. ÁGÚST 2015 • 7
2
0
-0
8
-2
0
1
5
2
3
:5
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
D
5
-C
A
4
0
1
5
D
5
-C
9
0
4
1
5
D
5
-C
7
C
8
1
5
D
5
-C
6
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K