Ský - 01.08.2007, Qupperneq 18
18 ský
Benedikt Hermann Hermannsson heitir maðurinn og er oftast kallaður Benni. Þegar hann fékk þá hugmynd
að stofna hljómsveit til að spila lögin sín,
flest hver frumsamin, bættist Hemm
Hemm við og úr varð hljómsveitin Benni
Hemm Hemm. Formleg stofndagsetning
hljómsveitarinnar er á verkalýðsdaginn, 1.
maí 2004, en þá lék hljómsveitin á sínum
fyrstu tónleikum.
Hljómsveitarmeðlimir eru stundum 15
og stundum færri, jafnvel ekki nema tveir.
Allt eftir því hvar á að flytja tónlistina og
við hvaða kringumstæður. Verkefnin fyrir
Benna Hemm Hemm hlaðast upp, svo mjög
að hljómsveitin er aðalstarf Benna. Á Íslandi
er maður vanari því að tónlistarmenn séu
í tveimur vinnum; hljómsveitinni annars
vegar og „venjulegri“ vinnu hins vegar. Ský
vildi forvitnast um þessa hljómsveit og ekki
síst Benna sjálfan. Ég spurði hann fyrst
hvernig hljómsveitin hefði orðið til:
Fimmtán meðlimir, stundum
bara tveir
„Benni Hemm Hemm er hljómsveitin sem
ég bjó til svo ég gæti spilað lögin mín.
Upphaflega ætluðum við að spila þau einu
sinni, en svo spiluðum við þau aftur og
aftur og nú eru liðin mörg ár. Hljómsveitin
er breytileg eftir því hverjar aðstæður eru -
stundum erum við 15 og stundum erum við
mun færri. Síðast spiluðum við tveir.“
Hér væri réttast að nefna alla meðlimi
sveitarinnar ásamt þeim hljóðfærum sem
þeir leika á:
Benedikt H. Hermannsson, gítar, söngur
og fleira;
Helgi Svavar Helgason, trommur,
Davíð Þór Jónsson, bassi;
Leifur Jónsson, básúna;
japanir kurteisustu
áhorfendurnir Texti: LízellaMynd: Páll Stefánsson
Benedikt Hermann Hermannsson - Benni Hemm Hemm.