Ský - 01.08.2007, Page 21
aðstöðu fyrir flugfarþega og hefur verið
unnið að undirbúningi á byggingu nýrrar
samgöngumiðstöðvar sem myndi jafnframt
þjóna sem aðstaða fyrir flugfarþega. Við
hjá Flugfélagi Íslands bindum miklar vonir
við að úrbætur verði í þessum málum á
allra næstu misserum því að við óbreytt
ástand verður ekki unað. Vaxandi fjöldi
þeirra farþega sem fara um flugstöðina sýnir
best hversu brýnt er að bæta úr aðstöðunni,
en nú fara tæplega 400 þúsund farþegar
í gegnum þessa 1200 fermetra byggingu
á ári. Til samanburðar má nefna að árið
1987, þegar flugstöð Leifs Eiríkssonar var
byggð, fóru þar í gegn rúmlega 500 þúsund
farþegar. Stöðin var þá 22.000 fermetrar, eða
hátt í tuttugu sinnum stærri en flugstöðin á
Reykjavíkurflugvelli.
Starfsfólk okkar í farþegaþjónustu er að
vinna kraftaverk á hverjum degi með því
að koma öllum þessum fjölda í gegnum
húsnæðið sem við höfum. Það er ljóst að
sífellt fleiri eru á því að flugsamgöngur,
einu almenningssamgöngurnar sem eru
vaxandi í landinu, þurfa að hafa viðunandi
aðstöðu og svigrúm til að vaxa. Ef ekki
verður viðunandi aðstaða fyrir áætlunarflug
mun það hafa veruleg áhrif á landsbyggðina
og einnig má ekki vanmeta jákvæð áhrif
flugsins á Reykjavíkurborg. Flugið er okkar
járnbrautakerfi og ef það legðist niður myndu
fleiri ferðast um á þjóðvegum landsins og ég
er viss um að það er ekki æskileg þróun því að
þjóðvegakerfi okkar er nú þegar yfirhlaðið.
Samgönguráðherrar, bæði núverandi og
fyrrverandi, hafa lýst yfir fullum stuðningi
við það að miðstöð innanlandsflugs verði
áfram í Vatnsmýrinni og er það mikilvægt í
ljósi framangreindra umræðna. Við höfum
því fulla trú á því að úr rætist á næstu
misserum.“
DASH 8 vélar hafa reynst vel
„Flugfélagið réðst í miklar fjárfestingar á
síðasta ári þegar keyptar voru tvær flugvélar
af DASH 8 tegund en þær hefur félagið ekki
áður haft í rekstri. Þessar vélar hafa sæti fyrir
Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands, fagnar góðu gengi
félagsins og segir forkólfa flugs á Íslandi telja flugvöllinn eiga framtíð fyrir sér í
Vatnsmýrinni.
37 farþega og eru þeim eiginleikum gæddar
að geta notast við mjög stuttar flugbrautir,
mun styttri en Fokker 50 vélarnar okkar, og
henta því vel til flugs á stuttar flugbrautir
á Íslandi en þó sérstaklega á Grænlandi.
Við hefðum t.d. ekki getað flogið til Nuuk
á Fokker 50. Farþegar hafa tekið DASH-
vélunum ákaflega vel og þykja þær ekki síður
farþegavænar en Fokker 50. Þar sem DASH-
vélar eru ennþá framleiddar en Fokker 50
ekki, má gera ráð fyrir að DASH vélar verði
fyrir valinu þegar endurnýja þarf vélaflotann.
Það má búast við að það gerist á næstu 5-7
árum en flugvélakaup þarf ávallt að undirbúa
með löngum fyrirvara.
Almennt séð er því bjart framundan;
mikil eftirspurn hefur verið eftir þjónustu
okkar og samkvæmt könnunum eru farþegar
okkar mjög ánægðir. Við getum því horft
björtum augum fram á veginn.“ sky,
ský 21