Ský - 01.08.2007, Side 37
ský 37
Lúxemborg er miðsvæðis í Evrópu, fjölskyldunni líður vel og ég er
með gott æfingaumhverfi og helsti bakhjarl minn, Kaupþing banki,
er með starfsstöðvar í landinu. Það er því allt sem hjálpar til að gott
er að vera þar.
Tók þátt i tveimur mótum á Íslandi
Birgir Leifur tók þátt í tveimur mótum á Íslandi í sumar, Landsmótinu
og Sveitakeppni í golfi: „Landsmótið olli mér vonbrigðum og ég náði
mér aldrei á strik en í sveitakeppninni í Vestmannaeyjum náði ég mér
betur á strik og ég og félagar mínir í GKG unnum það mót.
Birgir Leifur er spurður hvort hann stressist nokkuð upp þegar
hann er að spila með þeim þekktustu í golfinu: „Alls ekki. Það er í
mínum huga mjög spennandi að spila með mönnum sem taldir eru
betri en ég og bera saman leikinn okkar. Hluti af slíku samspili er að
fleiri áhorfendur fylgja okkur og það er góð reynsla út af fyrir sig. Ég
neita því ekki að spennustigið getur hækkað en þá er bara að læra að
hafa stjórn á spennunni enda er spennan hluti af leiknum og ef henni
er rétt stjórnað bætir það árangurinn.“
Á mörg ár eftir sem keppnismaður
Birgir Leifur er búinn að vera tíu ár í atvinnumennskunni, hefur
það aldrei hvarflað að honum að hætta? „Það hafa komið stundir
þar sem ég efast um að ég hafi verið að gera rétt í að halda þessu
áfram, sérstaklega þegar ég var á mörkum þess að komast inn á Evr-
óputúrinn en sat eftir. Þegar þú veist að þú ert að spila gott golf en
ekkert er að gerast hjá þér, á meðan meðspilarinn spilar alls ekki betra
golf en allt gengur upp hjá honum, þá er ekki laust við sú hugsun
setjist í mann hvort þetta sé þess virði og hvort draumurinn eigi
aldrei eftir að rætast. Sem betur fer hverfur þessi hugsun fljótt og ég
held ótrauður áfram. Það sem skiptir máli er að hafa góða í kringum
sig eins og Elísabetu eiginkonu mína sem hefur staðið við hlið mér
þegar á móti blæs og hvatt mig áfram. Ég er einnig með góðan þjálf-
ara, Andrés Davíðsson, sem hjálpar mér og hvetur mig. Fleiri hafa
gert það sama og þegar maður á slíka vini er baráttuandinn fljótur
að koma aftur.“
Ferill kylfings í atvinnumennskunni getur spannað áratugi og Bir-
gir er spurður að lokum hvort hann sjái sig á byrjunarreit, nú þegar
hann er kominn á Evrópumótaröðina.
„Ég er að að hefja minn feril á þessu stigi, eftir að hafa verið í
nokkur ár að komast þangað, og ég sé mig sem keppnismann í golfi
eins lengi og ég hef gaman af að leika það. Um að gera að halda jafn-
vægi, taka eitt mót í einu og sjá hvað það leiðir af sér og fara síðan að
hugsa um það næsta. Ég á marga vini í fótboltanum og segi oft við þá
í gamni að nú sé þeirra ferill að enda og minn að byrja.“ sky,
„Ég er að að hefja minn feril á þessu stigi, eftir að hafa verið í nokkur ár að komast þangað, og ég sé mig sem keppnismann
í golfi eins lengi og ég hef gaman af að leika það.“