Ský - 01.06.2007, Blaðsíða 6

Ský - 01.06.2007, Blaðsíða 6
 6 sk‡ Útgefandi: heimur hf. Ritstjórar og ábyrgðarmenn: Benedikt jóhannesson og jón G. hauksson Útlitshönnun: heimur hf. Ljósmyndir: Páll kjartansson, Páll stefánsson og fleiri Blaðamenn/greinarhöfundar: ágúst Borgþór sverrisson Benedikt jóhannesson Brynhildur Björnsdóttir einar Örn Gunnarsson erla Gunnarsdóttir hilmar karlsson hrund hauksdóttir huldar Breiðfjörð Páll ásgeir ásgeirsson Páll stefánsson sigrún Davíðsdóttir sigurður Bogi sævarsson svavar jónsdóttir Auglýsingastjóri: Vilhjálmur kjartansson Prentun: Oddi hf. Heimur hf. – Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: heimur hf. Borgartúni 23 105 reykjavík. sími: 512-7575 Hvað gefur lífinu lit? Framan af sumri var veður með eindæmum gott hér á landi. Allir kætast yfir því nema laxveiðimenn og bændur. Úrkoman er nefnilega ágæt inn á milli. Þó að almenningur gleðjist þegar sólin skín þá er það ótrúlega fljótt að gleymast. Minni manna á veður er enn gloppóttara en pólitískt minni þeirra. Ef hann rignir þrjá daga í röð fjasa menn endalaust um að ekki sé búandi á þessu landi og síminn þagnar ekki hjá ferðaskrifstofum. En það er misskilningur að rigningin sé leiðinleg. Ég var svo heppinn að fara til Bretlandseyja nú í sumar og þar rigndi upp á hvern einasta dag. Mér fannst það skemmtilegustu hlutar dagsins þegar maður þurfti að hlaupa á harðaspretti gegnum skýfallið. Einu sinni fór ég í sundlaugarnar hér í bænum og veðrið var svo brjálað að öldurnar risu og brotnuðu í lauginni. Þetta var eftirminnilegasta sundferðin þann áratuginn. Ég get reyndar játað það að mér finnst svolítið skemmtilegt hvað það hefur rignt mikið annars staðar en hér á landi en best er að hafa hæfilegt jafnvægi. Endalaust sólskin er fullbragðlítið fyrir minn smekk. Í þessu tölublaði Skýja er að venju komið víða við en það er sumarstemmning í loftinu. Sumir telja að á sumrin eigi að fleygja bókunum út í horn en fátt styttir mönnum betur stundir í fríinu en góð bók. Þeir feðgar Bragi Kristjónsson og Ari sonur hans selja gamlar bækur, en bóksalan er næstum í aukahlutverki því að búð þeirra er menningarmiðstöð í besta skilningi orðsins. Þar koma ekki bara saman bækur frá öllum heimshornum heldur líka fólk af öllu tagi. Það er gaman að spjalla við þá feðga og þeir sem kíkja í búðina þeirra fara þaðan ríkari, jafnvel þó að þeir hafi ekkert keypt. Við skoðum fleiri þekkta feðga úr þjóðlífinu og rifjum meira að segja upp gamla flökkusögu um eitt þjóðskáld Íslendinga, sögu sem hefur kannski helst gildi fyrir það að hafa orðið til. Tveir rithöfundar heiðra blaðið með sögum að þessu sinni. Einar Örn Gunnarsson rifjar upp skemmtilegar minningar og Ágúst Borgþór Sverrisson skrifar sögu úr nútímanum. Tónlist, íþróttir og stjórnmál skipa einnig hefðbundinn sess í Skýjum. Það er í raun og veru ótrúlegt úr hve mörgu er að velja þegar verið er að ákveða efni í blaðið. Sumir blaðamenn og ritstjórar segja reyndar að það sé miklu meira gaman að vinna blöðin en að lesa þau. Við hjá Skýjum erum þó ekki í þeim hópi því að blaðið er svo skemmtilegt að það vinnur á við hvern einasta lestur. sky , Benedikt Jóhannesson sky , 4.tbl.2005 PUNKTAÐU NIÐUR FERÐALAGIÐ UM 6.000 KRÓNUR *Gildir til 1. apríl 2007. Handhafar Vildarkorta VISA og Icelandair geta nýtt 10.000 Vildarpunkta sem 6.000 króna greiðslu upp í flugfargjald með áætlunarflugi Icelandair, fyrir hvern sem er og hvenær sem er.* + Fáðu nánari upplýsingar á www.vildarklubbur.is FYRIR HANDHAFA VILDARKORTA VISA OG ICELANDAIR: ÍS L E N S K A /S IA .I S /I C E 3 59 07 0 1/ 07 Vildarkort 5. september 2007
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.