Ský - 01.06.2007, Blaðsíða 41

Ský - 01.06.2007, Blaðsíða 41
 sk‡ 1 Verk hans skreyta útisvæði víða um land og má þar nefna Stóðið við Hringbraut í Reykjavík, Mjaltakonuna á Akureyri, Sjómennina á Ísafirði, Bárð Snæfellsás á Arnarstapa á Snæfellsnesi og Sjómannskonu í Grindavík. Hann hélt fjölda einkasýninga og tók þátt í samsýningum. Ragnar var um tíma í stjórn Félags íslenskra myndlistamanna. Hann var einn af aðalhvatamönnunum að stofnun Myndhöggvarafélags Íslands árið 1977, formaður um árabil og síðustu árin heiðursfélagi. Ragnar var giftur Katrínu Guðmundsdóttur, bankaritara frá Skaftafelli í Öræfum, og áttu þau fjögur börn. Nafn: Kjartan Rag­narsson. Fæðingardagur: 18. september 1945. Stjörnumerki: Meyja. Gæludýr: Ég­ á hund sem er með­ mé­r öllum stundum, hún Dimma. Uppáhaldsmatur: Það­ er til óendanleg­a g­óð­ur matur úr fersku hráefni og­ með­ hug­myndaríkri matarg­erð­ g­etur útkoman ekki annað­ en verið­ g­óð­. Íslenskt lambakjöt finnst mé­r g­ott þeg­ar é­g­ kem frá útlöndum en lúð­a er líka g­óð­. Kjötsúpan hennar mömmu minnar sem hún eldað­i á þrið­ja í jólum þeg­ar hún var komin með­ nóg­ af steikunum er einnig­ mitt uppáhald. Uppáhaldsdrykkur: Djús á morg­nana og­ kaffi eftir það­, rauð­vín með­ matnum og­ Coca Cola inn á milli. Einnig­ blessað­ íslenska tæra vatnið­ í neyð­. Mottó: Aldrei að­ seg­ja aldrei. Listamannamottóið­ er: Að­ reyna ekki að­ g­era svo öllum líki því þá g­etur vel verið­ að­ einhverjum myndi ekki líka það­. Svo á mað­ur að­ vera samkvæmur sjálfum sé­r. „Faðir minn skipti mig miklu máli“ - Kjart­an Ragnars­s­on lýs­ir föð­ur s­ínum Hvern­ig var sam­ban­d þitt við föður þin­n­? - Það voru aðrir tímar en nú, feður höfðu miklu minni tíma með börnunum sínum en þeir geta í dag og pabbi var yngri þegar hann átti mig en þegar ég átti Ragnar son minn. Ég hef verið meira með syni mínum en pabbi var með mig. Á þessum tíma unnu menn dag og nótt og myrkranna á milli. Ég kynntist honum helst þegar ég fór að vinna hjá honum á leirkeraverkstæðinu Gliti. Hann var mikill aðdáandi og vinur Dieters Roth og Magnúsar Pálssonar og fleiri bestu listamenn landsins unnu hjá honum þannig að það var feikilega gaman að vera þar innan um allt þetta skapandi fólk. Aukastarf pabba var sem myndlistarkennari í Myndlistarskólanum. Hann mátti ekki vera að neinu nema því sem hann var að gera en maður fékk að vera með í því. Ég man til dæmis að ég sat fyrir í heilan vetur í Myndlistarskólanum grafkyrr og hlustaði á upplestur á Gerplu Halldórs Laxness en þá var ég 11 ára gamall. Það var svolítið sérstakur heimur í kringum pabba, ég man ekki eftir miklu fjölskyldulífi en Glit og Myndlistarskólinn voru líf hans og yndi og maður fékk að vera með í því. Að öðru leyti var allt gott á milli okkar. Hvers kon­ar persón­uleiki var han­n­, hverj­ir voru kostir han­s og gallar? - Pabbi var frábærlega örlátur í að kenna og vildi miklu miðla í myndlistinni. Það er kannski ekki hægt að kalla það galla en hann stríddi alltaf við hræðslu við að skila listaverkum. Hann tók listinni á einhvern hátt sem var hamlandi, svo alvarlega og það fylgdi því mikill kvíði og þunglyndi sem hann var að gera. Þeir nafnar eru ólíkir að því leytinu að Ragnar minn lítur á vinnuna sem lífsgleði og tekur þetta á sveiflunni. Þetta er hluti af breyttum tímum en þetta var viðhorf kynslóðar pabba. Það olli því að oft var erfitt í kringum pabba vegna kvíða, hræðslu og að hann lagði ekki í verkin sín. Hann talaði um að listin væri þjáning, sem ég hef aldrei skilið, enda hef ég aldrei orðið listamaður í þeim skilningi. Við feðgarnir, sem sé ég og Ragnar minn, erum báðir þannig að við lítum á þá vinnu sem við erum að gera sem lífsnautn. Kom­ aldrei n­eitt an­n­að til grein­a en­ að skíra son­in­n­ í höfuðið á hon­um­? - Mér fannst það ekki. Það sýnir kannski hvað pabbi skipti mig miklu máli en ég man ekki að annað hafi komið til greina. Ég sé það núna að pabbi var mín helsta fyrirmynd, bæði varðandi hvernig ég vildi líkjast honum og svo hvernig ég vildi ekki líkjast honum. Ærlegur náungi og góður vinur minn síðastliðin þrjú ár hefur kjartan ragnarsson, forstöðumaður landnámsseturs Íslands í Borgarnesi, verið önnum kafinn við að koma setrinu á fót. nú er ekki síður annasamt starf hjá honum að reka setrið en vegna mikillar aðsóknar er stækkun í bígerð þar sem söguöldinni verða gerð góð skil. Hvern­ig barn­ var Ragn­ar son­ur þin­n­? - Hann var svolítið mikið öðruvísi sem barn en einkenni hans hafa verið síðar í lífinu. Framan af var hann þungur og melankólískur og mjög skapstór. Hann gat auðveldlega misst stjórn á skapi sínu en ég þjálfaði hann í að stríða honum svo hann myndi læra að taka stríðni þegar hann byrjaði í skóla. Það þurfti ekkert til því þá sprakk hann í loft upp. Um sex til sjö ára gjörbreyttist hann og það létta í lundinni kom fram. Ég held að það sem gerði honum svo gott var að hann fór að leika í nærmynd af feðgum Stoltur faðir: Kjartan með Ragnar son sinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.