Ský - 01.06.2007, Blaðsíða 42
2 sk‡
stutt og laggott
söngleiknum Land míns föður eftir mig og
Atla Heimi Sveinsson, í minni leikstjórn.
Verkið gekk í þrjú ár en þar léku Ragnar og
Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona saman.
Ég held að þroskalega hafi þetta verið mjög
gott fyrir hann.
Hvernig tilfinning var það að eignast
dreng?
- Það var dásamleg tilfinning að eignast
barn. Ég á fjögur stjúpbörn sem er yndislegt
en það er vissulega sérstakt að eiga sitt eigið
barn.
Nú velur Ragnar sér starf listamannsins,
hvernig er það fyrir þig að hann feti
svipaða leið og þú?
- Mér finnst það sérlega skemmtilegt.
Við höfum ekki alveg farið sömu leið,
hann er í myndlistinni eins og afi hans
og nafni en þó er það allt önnur myndlist
sem Ragnar yngri er að fást við en sá eldri.
Mér finnst skemmtilegt að fylgjast með og
bera saman þessa þrjá myndlistamenn sem
eru nátengdir mér í gegnum lífið, það er
faðir minn, sonur minn sem blandar fleiri
ólíkum þáttum saman og svo systir mín,
Inga Sigríður Ragnarsdóttir, sem býr í
Þýskalandi en hún fæst við nútímamyndlist
og er að gera allt aðra hluti en þeir tveir svo
þetta er allt mjög spennandi.
Hverjir eru kostir Ragnars og gallar?
- Kosturinn hans er tvímælalaust sá að
hann er mjög indæll drengur. Hann er
búinn að vera mikill vinur minn í gegnum
allt líf okkar saman. Gallar hans eru kannski
líka kostir hans, það er hvað hann leyfir sér
að láta þessa list taka algjörlega stjórnina.
Ég veit ekki hvort það sé galli. En hann
er mikið ólíkur sér nú eða sem barn því
hann er dagfarsprúður og hefur mikið
jafnaðargeð. Kannski koma skapsveiflurnar
fram í krafti sköpunarinnar í listinni.
Hvernig er samband ykkar feðga?
- Jú, við erum tvær fullorðnar manneskjur
sem deilum saman vonum, áhyggjum og
sorgum. Ragnar er einn besti vinur minn og
við trúum hvor öðrum fyrir flestu.
Eigið þið sameiginlegt áhugamál?
- Við eigum feikilega mikið sameiginlegt
varðandi áhugamál. Ragnar hefur alltaf haft
áhuga á leiklist og ég á myndlist. Ég var
fararstjóri fyrir Íshesta í hestaferðum til
margra ára, hann kom nokkrum sinnum
með mér og hafði áhuga á því. Tónlist
höfum við báðir mikinn áhuga á, hann
er í hljómsveit og ég hef búið til tónlist.
Við erum báðir það heppnir að áhugamál
okkar eru jafnframt lífsstarf okkar, það eru
forréttindi.
Hvað gerið þið saman í frístundum
ykkar?
- Við eigum sumarbústað í um tíu
mínútna fjarlægð frá Borgarnesi. Ragnar
kemur stundum og er með okkur þar. Við
erum ekki í golfi eða veiði og fylgjumst
ekki með fótbolta, hvorki þeim enska né
íslenska. Hann fylgist með Landnámssetrinu
og þróun þess og ég fylgist með því sem
hann gerir jafnt á innlendum sem erlendum
vettvangi.
Nafn: Ragnar Kjartansson.
Fæðingardagur: 3. febrúar 1976.
Stjörnumerki: Vatnsberi.
Gæludýr: Ekkert.
Uppáhaldsmatur: Ostrur og nautasteik.
Uppáhaldsdrykkur: Kampavín.
Mottó: Kærleikurinn!
Árið eitt ævintýri
ragnar kjartansson, myndlista- og
tónlistamaður, þeysist víða til að sýna
myndlist sína og koma fram með
hljómsveit sinni, trabant. hann lítur
mikið upp til beggja fyrirmynda sinna,
það er afa síns og föður, sem hann
viðurkennir að hafi verið skemmtilega
ólíkir.
Hvað hefurðu verið að sýsla undanfarið?
- Ég er fyrst og fremst alltaf að sýna og
gera myndlistina mína út um allar trissur.
Þetta ár hefur verið mikið ævintýri þar sem
myndlistin hefur leitt mig á undarlega staði.
Ég er til dæmis búinn að eiga gullnar stundir
með sígaunum í kirkjugarði í Róm og vera
með Ladda uppi á Hellisheiði að skjóta úr
haglabyssu í morgunsól. Síðan spila ég við og
við með hljómsveitinni minni. Framundan
er bara áframhaldandi ævintýri og brjáluð
vinna.
Hvernig er samband ykkar feðga?
- Samband okkar er mjög gott. Við erum
miklir mátar og okkur þykir alveg óendanlega
vænt hvorum um annan.
Eigið þið sameiginlegt áhugamál?
- Hmmm..., pabbi hefur komið mér í ýmis
sportleg áhugamál með sér í gegnum tíðina
eins og að fljúga svifdreka, í hestamennsku og
á skíði. Helsta áhugamálið okkar sameiginlega
er að upplifa góðar stundir saman með
fólkinu okkar. Já, og náttúrlega listin. Við
ræðum mikið saman um menningu og listir.
Hvað gerið þið saman í frístundum ykkar?
- Við eigum eiginlega aldrei neinar
frístundir. Þannig að við förum í bíltúra
hvor með öðrum meðan annar er eitthvað
að snattast og vesenast. Þá er gott að hanga
saman, spjalla og/eða hlusta á Rás1 eða KK
og Magga Eiríks.
Getur þú lýst föður þínum, kostum hans
og göllum?
- Hann er lífsglaður og kraftmikill maður.
Hann er alltaf einhvern veginn 12 ára í
skátunum og tekur lífinu fagnandi. Hann
grætur yfir kvikmyndum og tónlist. Hann
er jákvæður, fyndinn, traustur og hlýr. Hans
helsti galli er að hann er oft einhvers staðar
annars staðar í hausnum þegar maður er að
tala við hann. Ég er þannig líka svo ég held
að við séum mátulegir hvor á annan.
Hvaða minningar átt þú af afa þínum og
nafna?
- Ég man bara eftir rosalegum karakter,
skeggjuðum í brúnni skyrtu sem stundi mikið
og blístraði. Hann kenndi mér að teikna.
Maður fór með honum á vinnustofuna og
þar var hann að gera stórar sjómannastyttur.
Síðan var farið í Eden í Hveragerði og keyptar
pylsur, ein handa mér og tvær handa honum.
Hann var rosalega töff kall. Mig langaði alltaf
að verða myndlistarmaður eins og hann.
nærmynd af feðgum
sky
,