Ský - 01.06.2007, Blaðsíða 40
0 sk‡
ragnar kjartansson, myndhöggvari,
lést þann 26. október árið 1988 og
átti að baki sérstakan listamannsferil.
hann var einn af brautryðjendum í
leirmunagerð hérlendis, starfaði sem
myndhöggvari í rúma tvo áratugi og var
einn af þekktustu myndlistarmönnum
landsins. sonur hans, kjartan
ragnarsson, fetaði aðra listabraut, í
leiklistinni, á meðan barnabarnið og
alnafninn, ragnar kjartansson, fer að
sumu leyti sömu braut og afi hans, á
sviði myndlista.
Gaf sig allan fyrir listina
Ragnar Kjartansson fæddist 17. ágúst árið
1923 á Staðastað á Snæfellsnesi. Foreldrar
hans voru hjónin Kjartan Kjartansson
prestur á Staðastað og Ingveldur Ólafsdóttir
frá Sogni í Ölfusi.
Ragnar lærði leirkerasmíði hjá Guðmundi
Einarssyni frá Miðdal og stundaði
listnám í Handíðaskólanum í Reykjavík,
hjá Ásmundi Sveinssyni myndhöggvara í
Myndlistaskólanum í Reykjavík og í Svíþjóð.
Hann var sjómaður um tíma og kenndi
myndlist. Hann var einn af frumkvöðlum
leirmunagerðar hér á landi, stofnaði
ásamt fleirum Funa keramik og síðar
leirmunagerðina Glit keramik og starfaði í
þessum fyrirtækjum.
Nærmynd af feðgum
ragnar, kjartan
og ragnar
Stoltur faðir: Ragnar með Kjartan
son sinn árið 15.
texti: Erla Gunnarsdóttir • myndir: Fjölskyldualbúm