Ský - 01.06.2007, Side 12
12 sk‡
„Ég er að semja sálm við texta eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur sem verður fluttur á Kirkjulistahátíð. Jafnframt því er ég undirbúa tónleikaferð um Evrópu
í haust. En aðallega er ég að velta fyrir mér næstu plötu. Þetta er
í fyrsta skipti sem ég á ekkert lag á lager og finnst eins og ég sé að
byrja upp á nýtt. Næst langar mig að gera plötu sem er meira útsett
og tengist betur menntun minni í tónsmíðum og nota meira af
klassískum hljóðfærum. Mig hefur alltaf langað að sameina þessa
tvo kalla, rokkarann og tónskáldið.“
Hvernig líst þér á að fylgja eftir svo góðri byrjun sem
Wine for my Weakness var?
„Sú plata var eiginlega eins og BA-ritgerðin mín. Eitthvað sem
ég þurfti að klára til að hrista af mér vinina og ættingjana sem voru
sífellt að spyrja hvort það færi ekki að koma plata. Viðtökurnar
komu mér þægilega á óvart og ég er þakklátur fyrir þær. En
aðalmálið er að gera bestu mögulegu plötuna hverju sinni. Ef það
tekst getur leiðin ekki annað en legið upp á við, í það minnsta
áfram.“
Auk þess að semja tónlist við kvikmyndir hefurðu búið
til tónlist fyrir leikrit eins og Draumleik og Ófögru veröld
og nú ertu að semja sálm. Hvar nýturðu þín best?
„Að búa til plötur skiptir mig öllu máli og ég lít á allt annað
sem hliðarverkefni. Hinsvegar lifi ég á þeim verkefnum ásamt
spilamennskunni eins og flestir íslenskir tónlistarmenn. Þetta er
bara það lítið land. Platan er reyndar að koma út í útlöndum en
fólk fer yfirleitt ekki að hafa tekjur af plötunum sínum fyrr en
kannski á annarri eða þriðju plötu. Þangað til það gerist verður
maður bara að fara þetta á hugsjóninni og tilfallandi harki. Hingað
til hefur þetta samt allt verið mjög skemmtilegt. Til dæmis var
samstarfið við Ragnar Bragason einstaklega gefandi. Þegar ég gerði
tónlistina við myndirnar hans, Börn og Foreldra, fékk ég tækifæri
til að láta rokkarann og tónskáldið vinna saman. Þá tók ég við
hugmyndum frá Ragnari, skrifaði þær og útsetti, spilaði á fullt af
hljóðfærum og tók allt upp sjálfur. Hraðinn í kringum Killer Joe
var líka mjög spennandi en ég samdi meira og minna alla tónlistina
fyrir það á viku,“ segir Pétur.
Gítarhetja í Garðabæ
Áður en þú gafst út plötuna þína varstu orðinn ágætlega
þekktur fyrir snaggaralegan gítarleik í laginu Murr Murr
sem þið Mugison gerðuð saman. Á plötunni þinni er
flottur gítarleikur líka áberandi. Og ef þú ert gúgglaður
sést fljótt að það eru margir á því að þú sért „geðveikur“
gítarleikari. Hvaðan kemur þessi gítarfærni?
„Ég kenndi mér eiginlega bara sjálfur á gítar um fermingaraldur.
Og það bjargaði mér að geta sökkt mér í þær pælingar þegar ég
var að alast upp í Garðabænum. Hinsvegar hef ég haft marga góða
Rokkarinn eða
tónskáldið
fyrsta sólóplata Péturs Ben, Wine for my Weakness, sló rækilega í gegn þegar hún kom
út á síðasta ári og hlaut svo Íslensku tónlistarverðlaunin 2007. síðan hefur Pétur haldið
áfram að sýna að það flækist fátt fyrir honum þegar kemur að tónlist. enda ekki bara
hæfileikaríkur heldur líka sprenglærður í tónsmíðum. hann samdi og útsetti tónlistina við
bíómyndirnar Börn og foreldrar og hefur gert það sama fyrir fjölda leiksýninga. nú síðast
gerði Pétur tónlistina við leikritið killer joe sem hann var tilnefndur til Grímunnar fyrir.
huldar Breiðfjörð hitti Pétur Ben yfir kaffibolla á hótel holti - hvar annarsstaðar - og hóf
spjall þeirra á að spyrja hvað hann væri að fást við þessa dagana?
texti: Huldar Breiðfjörð • mynd: Mbl.