Ský - 01.06.2007, Blaðsíða 22
22 sk‡
Þegar SKÝ náði tali af Rögnu var hún nýkomin heim frá Glasgow þar sem hún hafði verið að keppa
á heimsmeistaramóti landsliða og var á
leiðinni strax út aftur til að spila á fleiri
mótum. „Ég fer út einu sinni til tvisvar í
mánuði til að keppa. Núna er ég að fara á
mót í Taílandi en síðan held ég áfram þaðan
til Ástralíu á annað mót og þriðja mótið í
þessari lotu verður á Nýja-Sjálandi. Það gerir
þrjú mót á einum mánuði og er reyndar
óvenju mikið álag því þessi löngu flug geta
líka verið þreytandi.“
Ragna segir flest stig fyrir heimslistann
í boði á mótum í Asíu og því sé mikilvægt
fyrir hana að keppa þar til að komast á
Ólympíuleikana í Peking á næsta ári. „Það
lítur vel út með Ólympíuleikana. Ef farið
væri eftir heimslistanum núna væri ég inni.
Það dugar að vera í efstu sextíu sætunum á
listanum og núna er ég í 43. sæti. Ég þarf
því bara að halda mér á svipuðum stað til að
vera pottþétt inni þegar síðasti listinn birtist
1. maí á næsta ári. “
Nýverið gerði SPRON styrktarsamning
við Rögnu og hún segir hann hafa breytt
miklu fyrir sig. „Sá stuðningur gerir að
verkum að ég get farið til Asíu að spila
á þessum sterku mótum við erfiðustu
andstæðingana. Nú get ég líka leyft mér
að ferðast með þjálfaranum mínum, Jónasi
Huang. Og vegna þess að ég þarf ekki
að vinna get ég stundað nám meðfram
badmintoninu en ég stefni á að útskrifast
úr heimspeki og sálfræði frá Háskóla Íslands
næsta vor.“
Hvað með atvinnumennsku?
„Hún hefur aldrei heillað mig mikið. Mér
líður best hérna á Íslandi þar sem ég er
með góðan þjálfara og gott fólk í kringum
mig. Evrópusambandið valdi saman hóp
af spilurum sem eiga góðan möguleika á
að komast á Ólympíuleikana og ég fer út
4-6 sinnum á ári í æfingabúðir með þeim.
Mér finnst það þægilegasta fyrirkomulagið,
að skjótast út og æfa í stuttan tíma, en
koma svo aftur heim. Ég hef líka náð að
lifa á badminton eftir að SPRON gerði
samninginn við mig.“
Ragna segist hafa byrjað að æfa badminton
níu ára gömul og þá elt eldri bróðir sinn inn
í greinina. Síðan hefur hún unnið flesta þá
titla sem mögulegt er fyrir hana að vinna
á Íslandi og æfingaplanið orðið talsvert
strangara en fyrir 15 árum. „Ég æfi tvisvar á
dag alla daga vikunnar þótt sunnudagar séu
aðeins afslappaðri. Þrjá morgna í viku fer ég
á einkaæfingu hjá þjálfaranum mínum en
aðra morgna hleyp ég, lyfti eða hjóla. Öll
kvöld eru svo félagsæfingar hjá TBR. Það eru
hálfgerðar landsliðsæfingar því það æfa meira
og minna allir hjá því félagi.“
„Undanfarið hefur svo bæst við
sjúkraþjálfun og styrkingaræfingar því ég
sleit krossband í apríl og þurfti þá að taka
mér mánaðarfrí. Heimsmeistaramótið í
Glasgow í júní var fyrsta mótið sem ég tók
þátt í eftir þessi meiðsli. En ég er alltaf að
verða betri þótt ég þurfi enn að spila með
hnéband. Ég er farin að spila tvíliða- og
Leitin að verðugum
andstæðingum
ragna ingólfsdóttir er óumdeild badmintondrottning Íslands. hún hefur unnið
Íslandsmeistaratitilinn í einliðaleik kvenna síðastliðin fimm ár og varð þrefaldur meistari á
síðasta Íslandsmeistaramóti þegar hún sigraði einnig í tvíliða- og tvenndarleik. hún vann líka
iceland international mótið sem haldið var á síðasta ári og hún virðist vinna annað hvert af
þeim fjölmörgu mótum sem hún keppir á í evrópu. enda er hún nú í 43. sæti heimslistans í
einliðaleik og allt útlit fyrir að hún sé á leiðinni á Ólympíuleikana í Peking á næsta ári.
texti: Huldar Breiðfjörð • mynd: Mbl.