Ský - 01.06.2007, Qupperneq 45
sk‡ 5
um veislur og borðsiði en þar var Bragi
myndasmiður.
„Þegar ég horfði á augun í Braga í
vöggu fannst mér hann strax merkilega
fullorðinslegur og eiginlega hefur hann
ekki síður alið mig upp en ég hann.
Oft hefur hann verið kletturinn í mínu
lífi, skynsamur og jarðtengdur. Hann er
ómissandi tækniráðgjafi minn og leiðir mig
um ókunnar borgir á dularfullan hátt, eins
og hann sé innfæddur. Hann á yndislega
kærustu, Júlíu, sellóleikara, og eftir að þau
fluttu að heiman til náms í Lundúnum
hafa verið margar heimsóknir þangað,“ segir
Bergþór.
„Samband mitt við pabba er mest í eina
átt og sjálfum mér til of lítils sóma. Hann
er einlægt boðinn og búinn að hjálpa til og
aðstoða, hvort sem það lýtur að því að leggja
parket, þýða texta eða ausa af óþrjótandi
viskubrunni sínum, hann er eiginlega
gangandi alfræðiorðabók og það kemur sér
oft vel þegar Netið þrýtur!“
Nafn: Bragi Bergþórsson.
Fæðingardagur: 16. apríl 1981.
Stjörnumerki: Hrútur.
Gæludýr: Ekki nema gullfiskarnir mínir
sem frömdu sjálfsvíg.
Uppáhaldsmatur: Úff, það er erfitt að
svara því. Eiginlega er ég samt í grunninn
mikill kjötmaður og finnst því góð steik
öðru betra. Síðan hef ég einstakt dálæti á
sumum japönskum, ítölskum, indverskum
og taílenskum mat en listinn lengist eftir
því sem maður vex (út til hliðanna það er
að segja).
Uppáhaldsdrykkur: Ég er að mestu
kominn út í íslenska vatnið, ég kann alltaf
betur og betur að meta það eftir því sem
ég hef búið lengur í útlöndum. Það er líka
mjög gott með kók- eða bjórbragði. Annars
finnst mér íslensk kókómjólk líka skelfilega
góð sem og rauðvín og púrtvín og reyndar
viskí líka. Ég held ég sé mjög óákveðinn í
þessum flokki.
Mottó: Fólk er eins og það er, flesk.
Saman á sviði á ný
Bragi Bergþórsson segir að söngurinn
sé sér í blóð borinn og að það hafi
aldrei hvarflað að sér að leggja
veðurfræðina fyrir sig. hann fullyrðir
að faðir sinn og afi séu báðir snillingar,
hvor á sínu sviði.
„Veðurfræðin kom aldrei til greina hjá mér,
enda hef ég aldrei verið mikið fyrir slaufur.
Ég hafði samt mikinn áhuga á kortunum
og límmiðunum sem krakki en það varð
ekki mikið úr því. Það hefur alltaf verið
mikil tónlist í kringum mig og mamma
og pabbi eru náttúrlega með eindæmum
miklir snillingar. Afi gaf mér til dæmis
blokkflautuna mína sem ég notaði óspart í
Tónmenntaskólanum í Reykjavík og forláta
nótnatösku sem ég spókaði mig um gangana
með,“ segir Bragi kíminn á svip.
Á von á erfingja
Bragi hefur undanfarin þrjú ár verið í
söngnámi í Lundúnum en er nú á heimleið.
„Ég verð í hlutverki í Ariadne auf Naxos
eftir Strauss í óperunni í haust. Það verður
áreiðanlega mjög skemmtilegt því þar fer
karl faðir minn líka með hlutverk og verður
það í fyrsta skipti sem við verðum saman
á sviði í óperu síðan ég var 11 ára gamall.
Síðan ætla ég að reyna að koma mér sem
best fyrir með minni heittelskuðu því afi
endurnýjar langafaskírteinið sitt um jólin,“
útskýrir Bragi.
Nú mun Bragi brátt eiga samleið aftur
með föður sínum á sviði en í gegnum tíðina
hafa þeir einnig verið duglegir að nýta sér
frístundir saman.
„Við pabbi fórum mikið í útilegur þegar
ég var yngri en svo höfum við oftsinnis farið
til útlanda saman og út á land. Síðan hefur
alltaf verið reynt að stefna fjölskyldunni að
minnsta kosti einu sinni á ári á fæðingarstað
ömmu í Hörgárdal og þaðan á ég ótal góðar
minningar.“
Hvítlaukur, lýsi og bylgjuhár
Bragi metur föður sinn mikils og einnig
afa sinn og segir þá ævinlega fúsa til að
aðstoða sig ef honum liggur eitthvað á
hjarta.
„Afi er um það bil einn klárasti maður
sem ég þekki, sterkur eins og naut, flautar
skemmtilega þegar hann er upptekinn og
fær sér lýsi út á allt. Ef ég ætti að lýsa
afa þá væri það náttúrlega slaufan og hið
einstaka bylgjuhár. Ég hef oft reynt að ná
þessari greiðslu með lélegum útkomum.
Pabbi er annar snillingur en hann fær sér
reyndar hvítlauk út á allt (út í hafragraut
líka). Pabbi er alveg bráðfyndinn en er samt
langfyndnastur þegar hann talar í símann,
því þá æðir hann um alla íbúðina fram
og tilbaka. Hann getur spilað á ógrynni
hljóðfæra og er algjörlega ósigrandi í rússa,“
segir Bragi hlæjandi.
En eigið þið einhver sameiginleg
áhugamál?
„Já, það má nú segja það því við pabbi
reynum svolítið að syngja saman. Síðan
drekkum við ósköpin af kaffi saman og
höfum mikinn áhuga á matargerð og þess
konar iðju. Við afi höfum mikið stússað
með tölvur og tölur í gegnum tíðina, reyndar
hvor í sínu lagi. Síðan hefur afi mikinn áhuga
á þorskinum en mér finnst hann afar góður
soðinn með kartöflum (helst stappaður)!“
nærmynd af feðgum
Bréf Páls níu ára
til Helga Hjörvars
útvarpsmanns
sky
,