Ský - 01.06.2007, Síða 52
52 sk‡
Vilhjálmur var afar áberandi þegar hann var drukkinn en hann var þó aldrei útigangsmaður í hefðbundnum
skilningi orðsins en þegar hann drakk hélt
hann í kringum sig hirð útigangsmanna og
sýndist oftast vera nokkurs konar leiðtogi
þeirra eða konungur.
Glæsilegur óreglumaður
Villi frá Skáholti eins og hann var alltaf
kallaður fæddist 29. desember 1907.
Foreldrar hans voru Guðmundur
Guðmundsson sjómaður og Sigurveig
Einarsdóttir sem bjuggu í Skáholti allan
sinn búskap og eignuðust saman átta börn.
Þau voru bæði ættuð úr Árnesþingi, hún úr
Grímsnesinu, hann af Skeiðunum. Sennilega
hefur Vilhjálmur verið skírður í höfuðið
á Vilhjálmi Guðmundssyni föðurbróður
sínum í Knútsborg á Seltjarnarnesi sem
drukknaði á þilskipinu Georg 28. mars þetta
sama ár.
Vilhjálmur ólst upp í Skáholti í upphafi
tuttugustu aldarinnar. Það þótti talsvert afrek
af óbreyttum verkamanni á þessum tíma að
reisa sér sitt eigið hús yfir fjölskylduna
eins og Guðmundur faðir Vilhjálms gerði.
Skáholt stendur enn við Drafnarstíg númer
3 og er í góðu ástandi. Þar býr nú Jóhanna
Kristjónsdóttir heimshornaflakkari og
blaðamaður.
Guðmundur faðir Vilhjálms lagði mjög
hart að sér við að byggja húsið en það er
til marks um nægjusemi þessara tíma að
hjónin leigðu alla tíð út efri hæð hússins
og létu sér nægja neðri hæðina og þar ólust
átta börn upp í íbúð sem er 40-50 fermetrar
að grunnfleti. Guðmundur vann tilfallandi
verkamannavinnu þegar hún gafst en þegar
hart var í ári fór hann stundum austur í
sveitir þaðan sem hann var upp runninn og
vann fyrir sér og fjölskyldunni með vefnaði.
Vilhjálmur var yngstur systkinanna átta
og fetaði snemma aðrar brautir í lífinu en
þau. Hann lagði ungur fyrir sig skáldskap
og hóf að gefa út kveðskap sinn á prenti og
fyrsta ljóðabók hans Næturljóð kom út 1931
þegar hann var aðeins 24 ára gamall. Vort
daglega brauð kom út 1935 og Sól og menn
1948 og síðasta bókin Blóð og vín kom út
1957.
Vilhjálmur lést aðeins 55 ára gamall árið
1963 af slysförum.
Árið 1992 setti Hörpuútgáfan allar
ljóðabækur Vilhjálms saman í eina bók
sem ber heitið Rósir í mjöll, eftir einu
kvæða hans. Formála að safninu ritar Helgi
Sæmundsson og í þeirri fáorðu frásögn er
að finna heillegustu ævisögu Vilhjálms sem
greinarhöfundur fann á prenti.
Þar segir orðrétt:
„Vilhjálmur frá Skáholti var örlyndur
maður og lífsþyrstur. Hann gekk ungur
í sveit Bakkusar og hugðist verða sér úti
um nautn og svölun við hirð þess falska
en tilætlunarsama harðstjóra. En gleðin í
því boði reyndist skammvinn. -Vilhjálmur
varð brátt háður áfengum drykkjum. Lenti
hann fyrr en varði í óreglu, en gleymdi
þó aldrei stolti og reisn. Hann gerðist
einskonar konungur í skuggaríki fátækra og
drykkfelldra utangarðsmanna. Vilhjálmur
þótti leiðtogi þessara bágstöddu félaga
sinna og naut trausts þeirra og virðingar
til hinstu stundar. Hann dró aldrei fjöður
yfir ólán sitt og lýsir því af einlægni og
hreinskilni í mörgu kvæði. Samt væri hæpið
að kalla flótta hans uppgjöf. Vilhjálmur var
uppreisnarmaður að eðli og af skoðun. Hann
vildi því gjarnan hneyksla værukæra og
guðhrædda broddborgara, enda bar mikið á
honum í solli. Hann varpaði þá oft að samtíð
sinni og mannfélagi hrópum stækari þeim
frýjuorðum sem léku honum á tungu þegar
hann flutti þrumuræður sínar í bundnu
máli. Mig grunar að lífsþorsti Vilhjálms
og uppreisnarhugur hafi opinberast þannig
eigi síður en í ljóðunum. Auðvitað sætti
Vilhjálmur frá Skáholti ámæli fyrir líferni
sitt og stundum varla að ástæðulausu, en
hann varð þó engan veginn lítilsigldur.
hér sit ég einn með
sjálfstraustið mitt veika
einn af þeim sem setti svip á götur reykjavíkur um langt bil í kringum miðja tuttugustu
öld var Vilhjálmur skáld frá skáholti sem kenndi sig alla ævi við þennan fæðingarstað
sinn. Vilhjálmur var myndarlegur og glæsilegur maður að vallarsýn, hávær, orðheppinn,
skáldmæltur og litríkur persónuleiki. hann lifði stutt og hratt
en skildi eftir sig þrjár ljóðabækur og
söngtexta sem hálf þjóðin kann að minnsta kosti brot úr.
texti: Páll Ásgeir Ásgeirsson • myndir: Páll Kjartansson og fleiri