Fréttablaðið - 23.07.2015, Síða 4
23. júlí 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
Finnur, eru stjórnvöld ekki að
haga sér?
Nei, það væri bónus ef þau gerðu
það
Finnur Árnason, forstjóri Haga sem reka mat-
vöruverslunina Bónus, gagnrýnir verðhækk-
anir á mjólk harðlega í blaði gærdagsins.
DÓMSMÁL „Þrátt fyrir skýrslur erlendu sér-
fræðinganna virðist sem saksóknari ætli að
halda áfram með málið, sem er hrikalegt,“
segir Annþór Kristján Karlsson sem ákærð-
ur var ásamt Berki Birgissyni fyrir að hafa
beitt fanga á Litla-Hrauni ofbeldi árið 2012
sem leiddi til dauða hans. Bæði Annþór og
Börkur hafa ávallt neitað sök.
Nú þegar rúm þrjú ár eru frá andláti fang-
ans hafa allir þeir erlendu sérfræðingar
sem fengnir voru til að meta skýrslur um
andlát fangans, að ósk verjenda Annþórs og
Barkar, skilað niðurstöðum sínum. „Það er
ekkert eðlilegt við það að rannsóknin sé búin
að taka svona langan tíma. Okkur hefur þótt
rosalega sárt að hafa yfir okkur ákæru fyrir
að hafa myrt vin okkar sem við gerðum bara
alls, alls ekki.“
Einn af íslensku sérfræðingunum komst að
þeirri niðurstöðu að áverka hins látna mætti
rekja til þungs höggs. „Hún sagði það vissu-
lega, en hún sagði að þetta gæti líka verið
eftir fall á einhvern hlut eða fall á gólf eða
þrýstiáverki,“ segir Annþór.
Niðurstaða Sidsel Rogde, prófessors í rétt-
armeinafræði við Háskólann í Ósló, var sú að
ólíklegt væri að áverkar þeir sem leiddu til
dauða fangans, sem voru rifa á milta, væru
tilkomnir eftir högg eða spark, þótt það væri
ekki algjörlega útilokað. „Það er ekki heldur
hægt að útiloka að geimverur hafi gert
þetta,“ segir Annþór og bætir við að engir
sjáanlegir áverkar hafi verið á hinum látna.
Rogde sagði einnig að áverkarnir gætu
vel hafa verið tilkomnir við endurlífgunar-
tilraunir, sem framkvæmdar voru bæði af
fangavörðum og sjúkraflutningamönnum.
Þá komust tveir íslenskir prófessorar að
þeirri niðurstöðu að ljóst væri af upptökum
úr öryggismyndavélum á Litla-Hrauni að
hinum látna hefði staðið ógn af Annþóri og
Berki. Hinn látni hefði verið hræddur við þá.
„Þetta atferlismat hjá þeim er alveg furðu-
legt. Hann talar um það hvernig við vorum
með krosslagðar hendur þegar við ræddum
við hann. Við Börkur töluðum við fangaprest-
inn um daginn og hann var með krosslagðar
hendur, ekki stóð okkur ógn af honum,“ segir
Annþór.
David J. Cooke, prófessor í klínískri réttar-
sálfræði, gagnrýndi niðurstöðu íslensku pró-
fessoranna og komst að þeirri niðurstöðu að
aðferðafræði þeirra uppfyllti ekki þær kröf-
ur sem almennt eru gerðar í réttarsálfræði.
Jim Aage Nøttestad, prófessor í klínískri
réttarsálfræði, var sá sem skilaði síðustu
skýrslunni. Hann telur að það sé ógerlegt að
sjá á upptökunni að hinum látna hafi staðið
ógn af Annþóri og Berki. „Þær eru óskýrar.
Það er ekki hægt að draga neina ályktun af
hegðun fanganna án þess að sjá svipbrigði
þeirra,“ segir hann.
„Allar skýrslurnar eru á skjön við það sem
er verið að ákæra okkur fyrir. Það er alveg
ótrúlegt að saksóknari sjái ekki sóma sinn
í því að fella niður ákæruna,“ segir Annþór
og bætir við að hann hafi ekki komist í opið
úrræði og verið vistaður á öryggisgangi í eitt
og hálft ár vegna málsins.
nadine@frettabladid.is
Annþór segir ekkert eðlilegt
við þriggja ára rannsókn
Erlendu sérfræðingarnir sem fengnir voru til að meta skýrslur um andlát fanga á Litla-Hrauni hafa allir skilað niður-
stöðum sínum. Niðurstöðurnar eru öndverðar niðurstöðum úr fyrri skýrslunum. Annþór harmar ákæruna.
ÁKÆRÐI „Öll rannsóknin er búin að ganga út á að sanna sekt okkar. Það á að rannsaka jafnt til sektar eða
sýknu,“ segir Annþór Kristján Karlsson.
➜ Erlendu sérfræðingarnir allir sammála
Hólmgeir Elías Flosason, verjandi Annþórs, segir að niðurstöður erlendu sérfræðing-
anna séu allar algjörlega öndverðar niðurstöðu íslensku sérfræðinganna. „Erlendu
sérfræðingarnir eru allir sammála innbyrðis. Þessi staða er stórmerkileg. Fimm erlendir
sérfræðingar, hver í sínu fagi, komast ekki að sömu niðurstöðu og þeir íslensku,“ segir
Hólmgeir og bætir við að í yfirmati sálfræðinganna birtist áfellisdómur um verklag
íslensku sálfræðinganna.
Hólmgeir vildi ekki svara því hvort hann teldi líklegt að saksóknari myndi falla frá
ákærunni.
BANDARÍKIN Hillary Clinton, fyrr-
verandi utanríkisráðherra, og
Bernie Sanders, öldungadeildar-
þingmaður, sem sækjast eftir
útnefningu flokks demókrata til
forsetaframboðs í Bandaríkjunum,
mælast með minna fylgi en and-
stæðingar þeirra í þremur lykil-
fylkjum í nýrri könnun Quinnipiac-
háskólans, sem kannar reglulega
stöðuna í stjórnmálum vestanhafs.
Þeir frambjóðendur repúblíkana
sem háskólanum þykir líklegastir til
sigurs, Jeb Bush, fyrrverandi ríkis-
stjóri Flórída, Scott Walker, ríkis-
stjóri Wisconsin, og öldungadeildar-
þingmaðurinn Marco Rubio, mælast
með meira fylgi en Clinton og Sand-
ers í Virginíu, Colorado og Iowa.
Í Bandaríkjunum er kosið í fylkj-
unum fimmtíu hverju í sínu lagi.
Kjósendur kjósa sinn fulltrúa og eru
í hverju fylki sérstakir kjörmenn,
mismargir eftir fylkjum, sem kjósa
svo allir einn frambjóðanda eftir
því hvor fékk fleiri atkvæði í fylk-
inu. Í ákveðnum fylkjum er nær allt-
af kosinn sami flokkurinn þannig að
harðast er barist um þau þar sem
litlu munar, til dæmis í Virginíu,
Colorado og Iowa.
270 kjörmenn þarf til að vinna en
alls eru þeir 538. Níu eru í Color-
ado, sex í Iowa og þrettán í Virg-
iníu. Barack Obama, sitjandi for-
seti, vann í öllum fylkjunum þremur
í síðustu kosningum. - þea
Hillary Clinton og aðrir demókratar mælast með minna fylgi en andstæðingar þeirra í skoðanakönnun:
Repúblikanar leiða í þremur lykilfylkjum
BRETLAND Það sem er talið vera
elsta útgáfa af Kóraninum sem
vitað er af fannst óvænt á háskóla-
bókasafninu í Birmingham.
Rannsakandinn Alba Fedeli
rakst á síður úr Kóraninum fyrir
slysni á bókasafninu og lét kol-
efnisgreina þær. Í ljós kom að síð-
urnar eru minnst 1.370 ára gaml-
ar. Síðurnar voru faldar á meðal
handrita frá miðöldum en talið er
að þær hafi legið á bókasafninu í
rúma öld.
Kolefnisgreining bendir til þess
að síðurnar séu frá árunum rétt
eftir dauða Múhameðs spámanns
en spádómar hans eru megininni-
haldið í texta Kóransins. Mús-
limar trúa því að textinn í Kór-
aninum sé boðskapur engilsins
Gabríels sem birtist Múhameð
yfir 22 ára tímabil frá árinu 610.
Muhammad Afzal, sérfræðing-
ur bókasafnsins í fornum hand-
ritum, segir að fundurinn sé stór-
merkilegur og ætti að vekja upp
fögnuð meðal múslima. Hann
segir að á þeim tíma sem hand-
ritið var skrifað hafi samfélög
múslima verið afar fátæk og ekki
haft burði til að fjölrita handrit af
þessum toga. Því sé þetta eintak
einstakt. - srs
Rannsakandi fann elsta eintak af Kóraninum sem vitað er af í heiminum:
Óvæntur fundur á bókasafninu
HAGSTOFAN Síðastliðna tólf mán-
uði hefur launavísitalan hækkað
um 7,1 prósent. Frá þessu greinir
Hagstofa Íslands. Launavísitala í
júní var 517,1 stig og hækkaði um
2,3 prósent frá fyrri mánuði.
Síðustu tólf mánuði hefur kaup-
máttur launa hækkað um 5,5 pró-
sent. Á vef Hagstofunnar segir að
í vísitölunni gæti áhrifa nýgerðra
kjarasamninga á almennum
vinnumarkaði sem voru undirrit-
aðir í maí síðastliðnum. Þar var
kveðið á um hækkun kauptaxta.
- ngy
Ný mæling kaupmáttar:
Kaupmáttur
eykst um 5,5%
MANNLÍF Hvort sem fólk finnur fyrir
því á eigin buddu eða ekki segir Hag-
stofan að síðustu tólf mánuði hafi kaup-
máttur hækkað um 5,5 prósent.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SAMFÉLAG Stefnt er sjósetningu
skipsins Víkings AK, sem HB
Grandi lét smíða fyrir sig, í byrj-
un næsta mánaðar og ef allt geng-
ur að óskum verður skipið komið
hingað til lands í desembermán-
uði. Þetta kemur fram í tilkynn-
ingu frá HB Granda.
Víkingur er annað uppsjávar-
veiðiskipið sem HB Grandi lætur
smíða í Celiktrans Deniz Insaat
Ltd. skipasmíðastöðinni í Tyrk-
landi en fyrra skipið, Venus NS,
kom til landsins í maímánuði. - ngy
Nýtt skip kemur fyrr árslok:
Styttist í Víking
TÆPT Hillary Clinton, líklegasti forseta-
frambjóðandi demókrata, mælist með
minna fylgi en repúblikanar í þremur
lykilfylkjum. NORDICPHOTOS/AFP
ÆVAFORN TEXTI Síðurnar eru taldar vera um 1.370 ára gamlar. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
SPURNING DAGSINS
2
2
-0
7
-2
0
1
5
2
2
:3
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
8
9
-D
7
9
C
1
5
8
9
-D
6
6
0
1
5
8
9
-D
5
2
4
1
5
8
9
-D
3
E
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K