Fréttablaðið - 23.07.2015, Síða 10
23. júlí 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
ATVINNUMÁL Iceland Resources
ehf. hefur sótt um leyfi hjá Orku-
stofnun til að leita að gulli og
kopar norðan við Hveragerði,
norðarlega í Héraðsflóa við
Vopnafjörð og á sex öðrum stöð-
um á Íslandi.
Vilhjálmur Þór Vilhjálms-
son, stjórnarformaður og fram-
kvæmdastjóri Iceland Resources,
segir að gull hafi fundist á Íslandi
en óljóst hvort gullið sé í vinnan-
legu magni. „Ef við finnum fjöl-
æðakerfi þá borgar sig að vinna
það en ef það er bara ein æð þá
borgar það sig ekki,“ segir Vil-
hjálmur.
Fáist leyfi til gullleitar verður
unnið úr upplýsingum sem til eru
um svæðin og þau kortlögð, auk
þess sem tekin verði yfirborðs-
sýni úr jörðu að sögn Vilhjálms.
„Ef þau líta vel út taka menn
ákvarðanir um hvort það eigi að
skjóta niður holum,“ segir hann.
Kanadískt námufyrirtæki
stendur að fjármögnun verkefnis-
ins. Vilhjálmur vill ekki gefa upp
hvaða fyrirtæki er um að ræða
þar sem það sé skráð á hluta-
bréfamarkað og hafi ekki tilkynnt
formlega um verkefnið.
Vilhjálmur segir að langan tíma
taki að koma námugreftri á fót.
„Frá því að við byrjum rannsókn-
ir eru að minnsta kosti átta ár í að
farið verður að vinna eitthvað. Það
getur líka vel verið að það finnist
ekki neitt,“ segir Vilhjálmur.
Vilhjálmur hefur áður komið að
gullleit en North Atlantic Mining
Associates, þar sem Vilhjálmur er
einnig framkvæmdastjóri, fann
gull við gröft í Þormóðsdal. „Það
sem við fundum í Þormóðsdalnum
sýnir að þessi jarðkerfi eru til á
Íslandi,“ segir hann.
Frekari rannsókna er þörf til
að komast að því hvort borgi sig
að vinna gullið í Þormóðsdal en
til þess vantar fjármagn. „Við
erum að reyna að halda lífi í verk-
efninu,“ segir Reinhard Reynis-
son, stjórnarformaður Málmís,
en dótturfélag þess, Melmi, hefur
staðið að gullleitinni. „Það voru
aðilar sem ætluðu að koma inn í
þetta en það gekk svo ekki upp,“
segir Reinhart.
Reinhard segir engar formlegar
viðræður í gangi en að reglulega
sýni fjárfestar verkefninu áhuga.
„Við erum með leyfi út næsta ár
en það er bundið því að við getum
hafið rannsóknir sem við ætluðum
að gera á þessu ári,“ segir hann.
ingvar@frettabladid.is
Iceland Resources sækir
um leyfi til gullleitar
Iceland Resources hefur sótt um leyfi til að leita að gulli á átta stöðum á Íslandi. Kanadískt námufyrirtæki fjármagnar leitina.
Gull hefur fundist á Íslandi en óljóst er hvort það er í vinnanlegu magni. Gullleit í Þormóðsdal er í bið þar sem fé skortir.
HVERA-
GERÐI Iceland
Resourc es hefur
sótt um leyfi
til gulleitar við
Hveragerði og á
sjö öðrum stöð-
um á Íslandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/EINAR
ÓLASON
Frá því að
við byrjum
rannsóknir eru
að minnsta
kosti átta ár í að
farið verður að
vinna eitthvað.
Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson,
stjórnarformaður og framkvæmdastjóri
Iceland Resources.
Opið 10-17 alla daga til 30. ágúst.
Leiðarlýsingar á landsvirkjun.is/heimsoknir
Gagnvirkar orkusýningar Landsvirkjunar í Búrfelli
og Kröflu varpa ljósi á orkuna sem býr í öllum hlutum.
Landsvirkjun vinnur rafmagn úr endurnýjanlegum
orkugjöfum; vatnsafli, jarðvarma og vindi.
Líttu við í sumar.
HVALFJARÐARGÖNG Spölur hvetur
ökumenn til að fara ekki með of háan
farm inn í göngin. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SAMGÖNGUR Gámur á flutninga-
bíl lenti harkalega á hæðarslá yfir
suðurmunna Hvalfjarðarganga að
kvöldi fimmtudagsins 16. júlí.
Ein af þremur stálkeðjum og
boltar sem héldu 600 kílóa þung-
um stálbitanum uppi slitnuðu við
áreksturinn. Farmur bílsins var
vel yfir löglegri hæð, sem er 4,2
metrar.
Stálbitinn hékk uppi eftir höggið
á tveimur keðjum. Bílar óku undir
slána örskömmu eftir slysið og
hefði bitinn því getað lent á bílun-
um. - ih
Var með of háan farm:
Ók á slá á leið
úr göngunum
MENNTUN Fyrsta skóflustungan að
byggingu nýrra stúdentagarða við
Brautarholt 7 í Reykjavík verður
tekin í dag. Byggja á tvö hús,
alls um 4.700 fermetra, og í þeim
verða 102 litlar íbúðir fyrir barn-
lausa stúdenta.
Dagur B. Eggertsson borgar-
stjóri og Aron Ólafsson, formað-
ur Stúdentaráðs Háskóla Íslands,
taka skóflustunguna. - fbj
Fyrsta skóflustungan tekin:
Hefja byggingu
stúdentagarða
2
2
-0
7
-2
0
1
5
2
2
:3
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
8
9
-F
A
2
C
1
5
8
9
-F
8
F
0
1
5
8
9
-F
7
B
4
1
5
8
9
-F
6
7
8
2
8
0
X
4
0
0
7
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K