Fréttablaðið - 23.07.2015, Síða 28

Fréttablaðið - 23.07.2015, Síða 28
FÓLK|TÍSKA Þessi sýning kom þannig til að stjórn Mótorhjólasafnsins óskaði eftir því að konu- klúbb arnir á Akureyri tækju að sér að búa til sýningu í tilefni af hundr- að ára kosningaafmæli kvenna,“ segir Ragnhildur Arna Hjartardóttir sem heldur utan um sýninguna Konur og mótorhjól, sem var opn- uð í Mótorhjólasafni Íslands þann 14. júní og stendur til 30. ágúst. Ekki reyndist þrautalaust að safna saman munum og upplýsing- um fyrir slíka sýningu enda hefur saga íslenskra mótorhjólakvenna ekki verið skráð. „Við hóuðum saman hópi af konum og vorum sex í nefnd. Við vorum með lítið fé á milli handanna en biðluðum til mótorhjólakvenna um allt land að senda okkur myndir, upplýs- ingar og muni,“ segir Ragnhildur. Á sýningunni er að finna fjöldann allan af myndum en einnig ýmsar upplýsingar, sögur og muni. „Við komumst að því með góðri hjálp að fyrsta konan sem átti mótorhjól á Íslandi var Helga Níelsdóttir ljós- móðir árið 1939. Hún notaði það til að aka til vinnu, en gafst reyndar fljótt upp á því þar sem þungt var að vera á því og af því að vegir voru að mestu malarvegir þurfti hún iðulega að skipta um alklæðn- að eftir hverja ferð vegna ryks og drullu. Síðan er vitað um aðra konu rétt eftir stríð sem var á hjóli sem hún fékk hjá hernum. Lítið er vitað um fleiri konur fyrr en stelpur fóru að vera á skellinöðrum á áttunda áratugnum og síðan þegar kon- ur fóru að sjást meira á hjólum á níunda áratugnum,“ upplýsir Ragn- hildur. Hún segir þróunina hraðari upp á síðkastið. „Konur á öllum aldri eru farnar að láta gamlan draum rætast og taka mótorhjóla- próf sem er frábært.“ Litlar tölulegar upplýsingar eru til um konur og mótorhjól. „Við vit- um þó að frá 1980 hafa 2.930 kon- ur verið skráðar eigendur þungra bifhjóla.“ Við erum með myndir og brot úr sögu, mótorhjól og klúbbatengdan fatnað. Svo erum við með konur í mótorhjólalögreglunni. Guðrún Jack var svo dásamleg að lána okkur hluta af fatnaði og myndir af sér og upplýsingar. Sýningin Konur og mótorhjól er opin alla daga frá kl. 10 til 17. ÁHUGAMÁLIÐ Jónína Baldursdóttir er dugleg að hjóla og hefur átt þátt í að skipuleggja nokkrar ferðir á vegum Tíunnar, Bifhjólaklúbbs Norður- amts, og er nýkjörin stjórnarmeðlimur þar. MYND/EINKASAFN Í RÖÐ Mótorhjól í röðum við útsýnispall á Vaðlaheiði. Myndin var tekin eftir hópakstur kvenna á alþjóðlegum mótorhjóladegi kvenna 2. maí í fyrra. MYND/DÍANA HERMANNSDÓTTIR HRÖÐ ÞRÓUN Ragnhildur Arna Hjartar- dóttir heldur utan um sýninguna. LJÓSMÓÐIR Helga Marín Níelsdóttir ljósmóðir er fyrsta íslenska konan sem vitað er til að hafi átt mótorhjól. HARLEY Luna hjólar í Danmörku í fyrra á Harley Davidson Servicar 1973 módeli. MYND/ÞORMAR ÞORKELSSON SÝNING UM KONUR OG MÓTORHJÓL MÓTORHJÓLASAFN Myndir af konum á mótorhjólum, sögubúta og ýmsa muni sem minna á tengsl kvenna og mótorhjóla má finna á sýningu sem stendur yfir í Mótorhjólasafni Íslands á Akureyri í sumar. Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna Stærðir 38-58 ÚTSALAN Í FULLUM GANGI 30-50% afsláttur af öllum útsöluvörum Flott föt, fyrir flottar konur Bæjarlind 6 • S. 554 7030Við erum á Facebook Kjólar á útsölu 30-50% afsláttur Allar buxur á útsölu 50% afsláttur ÚTSALA - ÚTSALA Nýtt kortatímabil 2 2 -0 7 -2 0 1 5 2 2 :3 9 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 8 9 -D C 8 C 1 5 8 9 -D B 5 0 1 5 8 9 -D A 1 4 1 5 8 9 -D 8 D 8 2 8 0 X 4 0 0 4 A F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.