Fréttablaðið - 09.10.2015, Side 10
Föstudagsviðtalið
Ólöf
Skaftadóttir
olof@frettabladid.is
Viktoría
Hermannsdóttir
viktoria@frettabladid.is
„Það er ekkert fararsnið á mér.
Meðan ég hef enn gaman af stjórn-
málum þá ætla ég mér að vera í þeim.
Daginn sem mér fer að finnast þetta
leiðinlegt eða einhver byrði þá held
ég að ég myndi skjótt skipta um starfs-
vettvang. Þá er til nóg af öðru fólki til
að vinna þessa vinnu,“ segir Illugi
Gunnarsson, mennta- og menningar-
málaráðherra.
Umræða um tengsl Illuga við Hauk
Harðarson, stjórnarformann Orku
Energy, komst aftur í hámæli í vikunni.
Páll Magnússon, fyrrverandi útvarps-
stjóri, skrifaði grein í Fréttablaðið á
miðvikudag þar sem hann sagði póli-
tíska spillingu ekki verða augljósari en
í máli Illuga tengdu Orku Energy. Ill-
ugi sagði frá því fjölmiðlum í apríl að
Haukur hefði keypt íbúð þeirra hjóna
og leigði þeim hana nú. Síðan þá hefur
hann beðist undan spurningum fjöl-
miðla um málið þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir til þess að fá svör við spurn-
ingum í málinu.
„Mér finnst vera allnokkur heift
í þessum orðum. Mér finnst Páll
Magnússon ekki gæta mikillar sann-
girni í þessu sem hann er að tala um,
fjárhagsstuðningi sem síðan hafi verið
endurgoldinn í pólitískum stuðningi.
Hið rétta í málinu er og hefur komið
fram ítrekað, að, já, ég seldi íbúð okkar
hjóna, fyrir því er þinglýst afsal. Við
létum af hendi okkar eign. Ástæðan
er sú að við vorum með töluverðar
skuldir á þessari íbúð. Við lentum
eins og margir í vanda eftir hrunið.
Við höfðum keypt okkar fyrstu eign
fyrir hrun og stóðum í erfiðum málum
hvað það varðaði. Svo bættist við
atvinnurekstur sem við höfum verið
í innan fjölskyldunnar þar sem féllu á
okkur ábyrgðir. Þar voru engar risatöl-
ur á ferðinni, en það gerði okkur þetta
ekki auðveldara. Eins kom þarna tíma-
bil þar sem voru ekki miklar tekjur.
Staðan var þannig að mér fannst
betra að selja íbúðina og grynnka þá
á skuldunum og í staðinn leigðum við
íbúðina. Það að líta á sölu íbúðarinn-
ar sem einhvers konar fjárframlag eða
peningagjöf, það bara stríðir gegn allri
almennri skynsemi og síðan hitt að ég
hafi einhvern veginn veitt þessu fyrir-
tæki óeðlilega pólitíska fyrirgreiðslu,“
segir Illugi um harðorða grein Páls.
Vitlausasta leiðin af öllum
„Ef menn eru að gera eitthvað sem
þolir ekki dagsins ljós, ætli þetta væri
nú ekki það alheimskulegasta, að gera
þetta með þessum hætti. Þinglýsa
slíkum gerningi. Ég held að í saman-
lagðri spillingarsögu heimsins væri
þetta örugglega vitlausasta leiðin. Ég
ætla ekkert að segja hvernig menn geta
staðið að slíku en það þarf ekki mikið
ímyndunarafl til þess að sjá aðrar
aðferðir en þetta,“ segir hann.
Er eitthvað til í því að þú hafir gert
Orku Energy óeðlilega greiða í starfi
þínu sem ráðherra? „Nei, það er fráleitt
og hérna vil ég biðja menn að staldra
aðeins við. Það er svo að ráðherrar í
síðustu ríkisstjórn komu margoft að
málum þessa fyrirtækis með sama
hætti og ég. Kynntu það, sátu fundi
með þessu fyrirtæki og fulltrúum
frá Kína. Fyrir því er sú eina ástæða
að þarna undir eru miklir íslenskir
hagsmunir. Fyrirtækið starfar sjálft
ekki hér á landi, en það hefur verið að
kaupa sérfræðiþekkingu í íslenskum
vísindamönnum og sérfræðingum á
undanförnum árum fyrir langleiðina
að 10 milljörðum. Þannig að þetta
skiptir miklu máli.“
Illugi segir eitthvað annað hljóta
að liggja að baki skrifum Páls en til-
finning fyrir því sem er rétt eða rangt.
„Ég verð auðvitað bara að segja það
að þegar ég les þessi skrif finnst mér
annað og meira liggja undir.“
Hvað heldurðu að það sé? „Ég veit
það ekki og ætla ekki að leyfa mér
að hugsa það. Ég ætla ekki að fara að
munnhöggvast við hann eða eiga í
deilum við hann um þessi mál. Mér
finnst þessi skrif hans vera þannig að
það er ekki þess virði fyrir mig að elta
ólar við þau.“
Hann vill vekja athygli á annarri
nálgun og túlkun á málinu sem hafi
komið fram opinberlega. Þar vísar
hann í frétt RÚV frá 28. apríl síðast-
liðnum, þar sem haft er eftir Gesti Páli
Reynissyni, forstöðumanni Stofnunar
stjórnsýslufræða og stjórnmála við
Háskóla Íslands: „Í ljósi þess að þetta
er á erlendri grund, það er verið að
kynna fyrirtækið sem aðrir [ráðherrar]
hafa kynnt áður, þá hefði það í raun
og veru þótt sérstakara ef hann myndi
neita að kynna það á þeim forsendum
að leigusalinn hans tengdist fyrirtæk-
inu með einum eða öðrum hætti.“
En nú hefur þú þegið greiðslur frá
þessu fyrirtæki en ekki fyrri ráðherrar,
það hlýtur að breyta stöðunni? „Það
er ekkert launungarmál og ég skráði
það á hagsmunaskráningu í þinginu
að þegar ég var utan þings þá vann
ég hjá þessu fyrirtæki. En að líta svo
á að húsaleiga sé þannig fjárhagsleg
skuldbinding að mönnum verði vart
sjálfrátt í sínum störfum sökum hags-
munatengsla tel ég fráleitt.“
Þráspurður og engin svör
Talið berst að Grecor-nefndinni svo-
kölluðu, á vegum Evrópuráðsins, sem
hefur það hlutverk að berjast gegn
spillingu. „Nefndin setur fram mjög
stífar kröfur um gagnsæi. Sú nefnd
gerir ekki ráð fyrir því að skuldir vegna
húsnæðislána eða neysluskulda séu
taldar fram í hagsmunaskrá, af því
menn líta svo á að það sé ekki um
nægjanlega mikla hagsmuni að tefla.
Ef húsnæðisskuldir eru eitthvað sem
menn þurfa ekki að tiltaka af hálfu
Grecor-nefndarinnar sem að öðru
leyti vill ganga mjög langt varðandi
gagnsæi þá getur húsaleiga varla vegið
þyngra heldur en skuld vegna húsnæð-
is. Þessi nálgun sem menn eru byrjaðir
að gefa sér hér, að það hafi einhverjir
stórir fjármunir runnið til mín og
myndað einhverja þannig hagsmuna-
tengingu að mér verður ekki sjálfrátt í
mínum störfum, er svo sérstök. Hús-
næðið er selt, fyrir það kemur greiðsla
vissulega, en í staðinn gefur maður frá
sér húsið sitt, íbúðina, í okkar tilfelli.
Ég held að ég sé ekkert í annarri stöðu
en aðrir ráðherrar sem hafa verið að
kynna þetta fyrirtæki.“
Illugi hefur verið þráspurður um
tengsl sín við Orku Energy en ekki
viljað svara fyrr en nú. Fjölmiðillinn
Stundin hefur birt opinberlega spurn-
ingar sem honum hafa verið sendar
ítrekað en hann hefur ekki viljað svara.
Af hverju hefur þú skorast undan
því að svara þessum spurningum? „Í
upphafi þessa máls leitaðist ég við að
svara þeim spurningum sem var beint
til mín. Ég skal játa það að fárviðrið
varð svo mikið að það var eiginlega
alveg sama hverju ég svaraði – sömu
spurningarnar komu upp aftur, urðu
þá tilefni nýrra frétta og nýrra fyrir-
sagna. Mér leið þannig þegar mestur
hamagangurinn var að það hefði
nákvæmlega ekkert upp á sig að segja
nokkuð. Ég taldi mig hafa sagt frá því
sem skipti máli. Ég skal viðurkenna
það að það voru mistök af minni
hálfu. Ég hugsaði, eins og ég hef lýst,
að ég hefði jú selt húsnæðið, fengið
greiðslu fyrir það og látið húsnæðið
af hendi og það væri ekkert óeðlilegt
við það. Ég taldi að það væri ekki um
nein slík hagsmunatengsl að ræða að
ég þyrfti að kynna þau sérstaklega. Ég
horfði til þeirra reglna sem þingið setti
og það sem ég var að nefna hér áðan,
Grecor-nefndin og svo framvegis, en
þetta voru mistök.“
Ósáttur við sjálfan sig
Voru mistökin að upplýsa ekki um allt
saman strax? „Já, ég er mjög ósáttur
við sjálfan mig. Ég hefði átt að taka
allt fram strax, en ekki láta það koma
í ljós seinna. Það var vitleysa hjá mér.
Þegar ég var spurður um hagsmuna-
tengslin, þá leit ég svo á að það væru
engin hagsmunatengsl falin í því að
borga einhverjum húsaleigu. En ég
hefði átt að tiltaka það strax. Þannig
getur maður verið vitur eftir á. En ég
ítreka það að um mig hljóta að gilda
sömu reglur og um aðra stjórnmála-
menn. Hvaða upplýsingar eigum við
að gefa, til fjölmiðla, til þingsins? Ég
skorast ekkert undan því að gefa slíkar
upplýsingar en ég vil heldur ekki að
það gildi einhverjar sérstakar reglur
um mig þannig að menn geti farið
dýpra ofan í mín persónulegu mál en
annarra. Eins og með húsaleiguna, ég
var ekkert endilega þeirrar skoðunar
að ég ætti að gefa það upp, en ákvað
að gera það samt til að menn sæju
um hvaða tölur var að ræða. En þegar
menn hafa sagt: Geturðu sannað það?
Þá dreg ég ákveðna línu. Ég er ekki að
fara að opna heimabankann minn,
eða mitt heimilisbókhald fyrir blaða-
mönnum. Það þýðir ekki endilega
að fólk hafi eitthvað að fela. Það eru
ákveðnar reglur sem verða að gilda
jafnt um alla.“ Komið hefur fram í árs-
reikningum OG Capital, sem fer með
eignarhald íbúðarinnar, að Illugi fór
með rétt mál þegar hann tilgreindi
upphæð leigugreiðslnanna sem um
ræðir.
Launagreiðslur má nálgast
Hann segir það hafa komið skýrt
fram hvenær hans störfum hjá Orku
Energy lauk. „Það var meðan ég var
utan þings, en var reyndar að klárast
á mánuðunum þegar ég var að koma
aftur inn. Það komu launagreiðslur
inn á árið 2012, laun sem átti eftir að
greiða. Þess vegna lét ég það vera í
hagsmunaskráningunni að ég hefði
verið að vinna fyrir þetta fyrirtæki og
Það er vel hægt að vera vitur eftir á
Er litið niður á iðnmenntun?
Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra segir það hafa verið mistök að upplýsa ekki strax um tengsl sín við Hauk Harðarson, stjórnarfor-
mann Orku Energy. Hann segist hafa borgað sjálfur fyrir veiðileyfi í Vatnsdalsá í fyrra. Hann segir skiljanlegt að kallað hafi verið eftir frek-
ari skýringum á málinu en ætlar aldrei að opna heimilisbókhaldið fyrir blaðamönnum, um hann gildi sömu reglur og aðra þingmenn.
Illugi segir náin tengsl sín við stjórnarformann Orku Energy ekki óheppileg fyrir stöðu sína sem ráðherra og að hann hafi ekki greitt leið fyrirtækisins umfram það sem aðrir ráðherrar hafi gert. FréttabLaðIð/antOn brInk
Þó að mér finnist
gaman að veiða þá
finnst mér það ekki það
gaman að ég sé tilbúinn að
borga 200 þúsund fyrir það,
eins og mér skilst að uppsett
verð sé á þeim tíma sem við
veiddum þarna. En ég er með
kvittun fyrir minni greiðslu
þannig við borguðum fyrir
okkur í þessari ferð, hún var
ekki löng.
9 . o k t ó b e r 2 0 1 5 F Ö S t U D A G U r10 F r é t t i r ∙ F r é t t A b L A ð i ð
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
C
3
-B
C
3
0
1
6
C
3
-B
A
F
4
1
6
C
3
-B
9
B
8
1
6
C
3
-B
8
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
6
4
s
_
8
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K