Fréttablaðið - 09.10.2015, Page 26
Nanna Árnadóttir
íþróttafræðingur
? Sæl, ég fylgist reglulega með greinunum þínum í blaðinu og mig langar til að
spyrja þig hversu opinskátt og ná
kvæmt maður ætti að ræða við ung
börn um kynlíf og hvernig maður
ætti að svara spurningunni um
það hvernig börnin verða til. Þetta
var alltaf svo mikið tabú heima hjá
mér þegar ég var krakki en ég vil
alls ekki að það sé þannig í kring
um krakkana mína í dag.
Svar: Þetta er spurning sem ég
veit að brennur á ansi mörgum í
dag. Foreldrar óttast að segja of
mikið eða of lítið eða jafnvel bara
að vera óviðeigandi á einn eða
annan hátt. Sumir segjast ekki
vilja eyðileggja sakleysi barnanna
eða að það eigi ekki að ræða kyn
líf við börn því börn eigi að fá að
vera börn í friði og að kynlíf sé
hluti af heimi hinna fullorðnu. Það
er vissulega rétt að stíga þarf var
lega til jarðar þegar rætt er um
kynlíf en því fer fjarri að slík um
ræða svipti börn sakleysi eða
hendi þeim inn í veröld sem þau
eru ekki tilbúin í. Börn eru hluti af
samfélaginu okkar og það er gífur
legur einstaklingsmunur, bæði á
áhuga og forvitni, þegar kemur að
málefnum líkamans og tilfinninga.
Það er hægt að styðjast við ákveð
ið vinnulag þegar kemur að þess
um málefnum og það er alls ekki
flókið og eitthvað sem er á færi
flestra. Um leið og þú stígur fram
og svarar spurningum barnsins af
heiðarleika og einlægni þá brýtur
þú mýtur og ræktar traustið í sam
bandi þínu við barnið.
Svona talar þú um kynlíf við
barnið þitt: Byrjaðu á því að
kanna þekkingu. Það er alltaf
gott að byrja á því að kanna fyrri
þekkingu og skilning á hugtakinu
eða fyrirbærinu sem barnið spyr
um. Oftar en ekki er skilningur
inn ansi takmarkaður en barn
ið veit að þetta er viðkvæmt um
ræðuefni og því leitar það til þín.
Því skaltu spyrja beint út: Veistu
hvað þetta þýðir? Hvað heldur þú
að það þýði?
Svaraðu af hreinskilni og ein
lægni. Börn eru mjög nösk á að
greina lygi eða áhugaleysi í svör
um svo gefðu þér smá tíma til að
veita barninu fulla athygli, ná
augnsambandi og svara af rólegri
yfirvegun og væntumþykju.
Leyfðu spurningum barns
ins að stýra upplýsingunum. Með
þessu á ég við að ef barn spyr
þig hvernig börnin verða til þá er
gott að fá á hreint hvað nákvæm
lega barnið vill vita og svara að
eins því. Það er misjafnt eftir
aldri og þroska barnsins en ekki
fara í of mikla langloku.
Notaðu orð sem barnið skilur.
Hér skiptir máli að nota ekki full
orðinsleg orð sem hafa enga þýð
ingu fyrir börn eða eru of gildis
hlaðin líkt og sjálfsfróun. Barn
veit hvað snerting er en ekki
að snerting á kynfæri kallist
sjálfsfróun og barn þarf ekki að
þekkja það tungutak. Sama gild
ir um að elskast og annað í þeim
Hvernig tala ég um
kynlíf við börnin mín?
Sigga Dögg svarar spurningum tengdum kynlífi frá lesendum Lífsins. Að þessu sinni fjallar spurningin um hvernig eigi að
ræða kynlíf við börn. Sú spurning brennur á margra vörum og mikilvægt er að rétt sé að allri fræðslu staðið.
Líkamsræktarstöðvar geta verið
óhugnanleg fyrirbæri. Þegar stigið
er þangað inn í fyrsta sinn er það
líkt og að stíga inn í frumskóg þar
sem allir líta út eins og grísk goð
og vita nákvæmlega hvað þeir eru
að gera með tilheyrandi stunum og
grettum. Málið er að allir eru byrj
endur einhvern tíma og allir geta
stundað líkamsrækt, hvort sem til
gangurinn er að bæta heilsuna,
vöðvamassa eða keppa í íþrótt.
Opnir hóptímar
Þegar maður byrjar í líkamsrækt
er gott að fá upplýsingar um hvað
sé í boði og yfirleitt er um fjöl
margt að velja. Það eru opnir hóp
tímar á flestum líkamsræktar
stöðvum þar sem boðið er upp á
fjölbreytta tíma eins og þrek og
þoltíma með dansívafi saman
ber Zumba, styrktartíma þar
með lóðum og eigin líkamsþyngd,
pilates, jóga, hjólatíma og margt
fleira og eru þessir tímar ávallt
kenndir undir leiðsögn.
Lokuð námskeið
Á lokuðum námskeiðum er meira
aðhald og stuðningur en fæst með
því að fara í hóptímana. Hægt er
að velja um fjöldann allan af nám
skeiðum og flestir ættu að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi. Það
myndast oft skemmtileg stemning
á svona námskeiðum þar sem sama
fólkið mætir og svitnar og tekur á
því saman.
Tækjasalurinn
Tækjasalurinn er sá hluti líkams
ræktarstöðvarinnar sem hræð
ir flesta. Mörgum finnst eins og
allir séu að horfa á sig og fylg
ist með mistökum manns. Ég
vinn á líkamsræktarstöð og ég
get sagt ykkur það að það er eng
inn að pæla í því hvað þú ert að
gera, nema þjálfarinn þinn ef þú
hefur slíkan en það er það sem
hann á að gera. Til að byrja með
þá bjóða flestar líkamsræktar
stöðvar upp á leiðsögn í tækjasaln
um. Þá fer þjálfari með þér yfir
hvernig tækin virka, hvar lóðin
eru og hvernig þetta gengur fyrir
sig og svo er oft boðið upp á æf
ingaáætlun. Ef þú vilt sérhæfð
ari þjónustu og treystir þér ekki til
þess að gera þetta án stuðnings þá
er hægt að kaupa sér einkaþjálf
ara sem er með þér á æfingu og
sér til þess að þú fáir það mesta
út úr tímanum, gerir allar æfing
ar rétt og náir markmiðum. Það er
líka fullt af fólki sem getur þetta
upp á eigin spýtur og það er frá
bært. Hvort sem þú hefur áhuga
á því að stunda styrktarþjálfun,
lyfta lóðum, hlaupa, hjóla eða gera
æfingar með eigin líkamsþyngd,
þá er best að mæta bara og byrja.
Það verður enginn sérfræðingur
í fyrsta skipti, ekki í líkamsrækt
frekar en í verkfræði.
Það sem mér finnst frábært
við líkamsræktarstöðvar er að
það myndast oft svo skemmtileg
stemning. Maður eignast ræktar
vini. Margir líkja líkamsræktar
stöðvum við félagsmiðstöðvar sem
er að mínu mati ekkert nema já
kvætt ef maður nær að taka vel á
því líka. Þetta þarf nefnilega líka
að vera skemmtilegt!
ertu byrjandi á
líkamsræktarstöð?
Ef þú hefur spurningu um
kynlíf þá getur þú sent
Siggu Dögg póst og
spurningin þín gæti birst í
Fréttablaðinu.
sigga@siggadogg.is
viltu spyrja um kynlíf?
dúr. Einfaldar lýsingar virka oft
ast best.
Biddu barnið um að endursegja
það sem þú sagðir því. Þá sérðu
betur hver skilningur barnsins
var á samræðunum og hvort þú
þurfir að útskýra eitthvað betur.
Spurðu og hlustaðu. Það er
alltaf gott að bjóða barninu upp
á frekari spurningar og hlusta
á frásögn þess og útskýringar.
Ekki leggja því orð í munn um
að eitthvað eigi að vera upplif
un á ákveðinn hátt, líkt og snert
ing kynfæra. Það getur verið mis
jafnt hvort snertingin sé ánægju
leg eða ekki (líkt og ef barnið er
með roða eða óþægindi og klór
ar sér vegna sviða) og því er gott
að spyrja barn sem er forvitið um
kynfæri sín og snertir það hvort
því þyki sú snerting ánægjuleg ef
umræðan snýst um það.
Það er gott að hafa í huga að
þetta eru samræður um líkam
ann, tilfinningar og samfélagið
og það þarf ekki að skammast sín
fyrir að ræða það eða fela það.
Börn eru hluti af samfélaginu
okkar og þau eiga rétt á að fræð
ast um það. Flott hjá þér að vera
til í að taka þátt í að styrkja sam
band þitt við börnin þín og vera
sú sem þau leita til. Ef þú lend
ir í bobba þá getur þú kíkt í hand
bókina mína, Kjaftað um kyn
líf, sem kom út fyrir ári. Gangi
þér vel!
„Barnið veit að þetta
er viðkvæmt um-
ræðuefni og því
leitar það til þín.“
Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook
Opið virka daga kl
. 11–18
Opið laugardaga k
l. 11-15
Flottar
leggings
Verð 9.900 kr.
Stærð 36 - 46
Heilsuvísir
4 • LÍFIÐ 9. OkTóbEr 2015
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
C
3
-F
C
6
0
1
6
C
3
-F
B
2
4
1
6
C
3
-F
9
E
8
1
6
C
3
-F
8
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
6
4
s
_
8
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K