Fréttablaðið - 09.10.2015, Page 29
Kvíði og félagsfælni hafa fylgt
uppistandaranum Þórhalli
Þórhallssyni alla ævi. Skólaárin
voru erfið og hann hefur misst
þrjá vini sína sem sviptu sig
lífi. Þórhallur, sem er sonur
grínistans Ladda, tekst m.a. á
við kvíðann með uppistandi
sínu og gerir óspart grín að
sjálfum sér enda segir hann
mikilvægt að ræða opinskátt
um slíka hluti.
Uppistandarinn Þórhallur Þórhallsson hefur verið áberandi í íslensku grín
senunni frá því hann vann keppn
ina „Fyndnasti maður Íslands“
árið 2007. Fyrir utan uppistand
ið hefur hann unnið í mörg ár í
útvarpi og sjónvarpi og einnig
komið fram í leiksýningum og
bíómyndum. Þrátt fyrir grínið og
glensið á yfirborðinu hefur lífið
ekki alltaf verið dans á rósum
fyrir þennan mikla gleðigjafa.
Hann hefur glímt við kvíða og
félagsfælni nánast frá fæðingu
enda segist hann sjálfur hafa
komið í heiminn í kvíðakasti,
grenjandi og með allar heimsins
áhyggjur á herðum sér. „Ég man
grínlaust ekki eftir mér öðruvísi
en með kvíða. Það var ekki fyrr
en ég varð eldri sem ég áttaði
mig á því að þetta væri ekki eðli
legt ástand og flest fólk væri ekki
stanslaust með þennan kvíðahnút
í maganum alla daga.“
SkítSama um allt
Skólaárin voru Þórhalli erfið og
honum leið ekki vel. Hann segir
að versta martröð sín hafi verið að
þurfa að svara einhverri spurningu
fyrir framan allan bekkinn. „Eina
sem komst að hjá mér var: Hvað
ef ég svara vitlaust? Fatta þá allir
hvað ég er vitlaus? Þannig að maður
fíflaðist bara og svaraði einhverju
bulli til að láta bekkjarfélagana
hlæja.“
Auðvitað fór slíkur fíflagang
ur ekki vel í kennarana þannig að
Þórhallur var tíður gestur hjá skóla
stjóranum. „Ég lærði yfirleitt ekki
heima eða lagði eitthvað á mig.
Því hvað myndi gerast ef ég virki
lega lærði vel undir próf en myndi
svo falla? Það myndi þýða að mitt
besta væri ekki nógu gott. Þannig
að ég lét eins og mér væri skítsama
um allt og alla. Þannig gat ég allt
af sagt: Hvað með það þótt ég hafi
ekki náð prófinu, það er ekki eins og
ég hafi lært undir það.“
Þegar Þórhallur hugsar til baka
finnst honum skólayfirvöld ekki
hafa tekið nógu vel á málum hans.
„Ég var bara vesen og þess vegna
var best að reyna að losna við mig.
Skólastjórinn spurði mig í áttunda
bekk hvort ég vildi ekki bara hætta
í skóla enda væri hægt að fá undan
þágu fyrir svona „lost case“ eins
og mig. Hann spurði mig svo aftur
í níunda bekk og einnig þegar ég
var í tíunda bekk. En þar sem ég
var þrjóskur þá neitaði ég og varð
áfram í skólanum bara til að pirra
hann aðeins lengur.“
Hvaða SóSa? Hvaða krydd?
Í dag er Þórhallur á lyfjum sem
hjálpa honum mikið auk þess sem
það hefur gert honum gott að tala
opinskátt um líðan sína. „Ég ræði
t.d. mikið um kvíðann þegar ég er
með uppistand og geri stólpagrín að
allri þessari hugsanavillu sem fólk
með kvíðaröskun kannast við. Það
birtist t.d. í því að sjá á símanum
sínum að einhver með einkanúmer
hringir en það hlýtur auðvitað að
boða eitthvað hræðilegt!“
Einnig hefur hann tekið fyrir
atvik á borð við heimsókn á Subway
en þar kveið hann alltaf fyrir því
að þurfa að velja sjálfur hvers
konar álegg og meðlæti hann vildi
með bátnum sínum. „Hvaða ferska
grænmeti átti ég að velja? Og hvaða
sósu eða krydd? Guð minn góður,
þetta gat verið erfitt val enda er ég
enginn kjarneðlisfræðingur. Og svo
var ég farinn að tefja röðina af því
að ég átti svo erfitt með þetta val
og fannst allir í röðinni bak við mig
byrjaðir að bölva mér og hata mig.
Það er náttúrulega bara hlægilegt
að hugsa svona en þannig var þetta
nú samt.“
líður vel uppi á Sviði
Hann segist oft hafa velt fyrir sér
hvers vegna maður eins og hann
sækist í að standa fyrir framan
annað fólk og flytja gamanmál.
Andleg veikindi jafn
raunveruleg og líkamleg
,,Það á að vera í lagi að tala um það ef manni líður illa og enginn þarf að skammast sín fyrir það,“ segir Þórhallur Þórhallsson uppistandari. MYND/PJETUR
Geðhjálp
Rit landssamtakanna Geðhjálpar
FöStudagur 9. Október 2015
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
C
2
-E
7
E
0
1
6
C
2
-E
6
A
4
1
6
C
2
-E
5
6
8
1
6
C
2
-E
4
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
6
4
s
_
8
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K