Fréttablaðið - 09.10.2015, Side 30
„Það er auðvitað stórfurðulegt að
gera sjálfum sér þetta. En málið er
að þegar það tekst vel til þá er ekki
til betri tilfinning í heimi. Maður
verður eiginlega bara háður þessu.
Fyrir mér er auðveldara að standa
einn uppi á sviði og vera búinn að
ákveða svona nokkurn veginn hvað
ég ætla að segja heldur en að sitja
úti í sal við borð með ókunnugum
og þurfa að brydda upp á einhverju
umræðuefni um daginn og veginn.“
Utan uppistandsins hefur Þór-
hallur líka rætt kvíðann í ýmsum
viðtölum. „Það skiptir máli að sýna
öðrum að þetta er ekki neitt sem á
að skammast sín fyrir og er alls ekk-
ert tabú. Andleg veikindi eru alveg
jafn raunveruleg og líkamleg þótt
þau sjáist kannski ekki jafn vel með
berum augum.“
Verður að opna umræðuna
Þórhallur hefur ekki bara sjálfur
þurft að glíma við sín persónulegu
mál heldur hefur hann misst þrjá
vini sem féllu fyrir eigin hendi.
„Það er allt of algengt að ungt fólk
taki eigið líf. Sjálfur átti ég þrjá vini
sem gerðu það og veit um ótal mörg
dæmi til viðbótar. Þegar það gerist,
að einhver nákominn manni tekur
sitt eigið líf, þá skjótast strax upp
hjá manni endalausar spurningar:
Af hverju sá ég þetta ekki fyrir?
Hvernig gat ég ekki séð að mann-
eskjunni leið virkilega svona illa að
henni fannst þetta vera besta lausn-
in? Hvað ef ég hefði gert þetta?
Hvað ef ég hefði gert hitt. Hvað ef?“
Átakið Útmeð’a hefur staðið yfir
undanfarna mánuði á vegum Geð-
hjálpar og Hjálparsímans. Um er að
ræða átaksverkefni gegn sjálfsvíg-
um ungra karlmanna sem er algeng-
asta dánarorsök karla hér á landi á
aldrinum 18-25 ára. „Mér finnst
átakið alveg frábært enda er svo
mikilvægt að opna þessa umræðu.
Það á að vera í lagi að tala um það
ef manni líður illa og enginn þarf
að skammast sín fyrir það. Enginn
þarf að upplifa það sem veikleika
þegar leitað er hjálpar. Helstu ráðin
sem ég get veitt þeim sem glíma
við kvíða, félagsfælni og aðra sam-
bærilega hluti er að tala opinskátt
um þessa hluti og alls ekki að fela
þá. Ég hvet alla til að leita sér hjálp-
ar, hvort sem það er að tala við sál-
fræðinga, fá lyf eða hreyfa sig.
Allt gerir þetta manni gott en það
er misjafnt hvað virkar fyrir hvern
og einn og því nauðsynlegt að tala
við fagaðila.“
Fengum ekki Frið saman
Þórhallur er sonur eins ástsælasta
grínista þjóðarinnar, Þórhalls Sig-
urðssonar, sem er betur þekktur
undir nafninu Laddi. Hann segir
það oft hafa verið þungan kross að
bera, að hafa fengið það hlutverk í
lífinu að vera sonur eins frægasta
manns landsins. Hann hafi þurft að
þola mikla athygli fyrir vikið sem
þó hafi í raun snúist um áhuga ann-
arra á lífi föður hans en ekki honum
sjálfum. „Ég elska föður minn og
er endalaust stoltur af honum og
öllu því sem hann hefur afrekað en
þetta gat oft verið mjög erfitt, sér-
staklega þegar ég var yngri.“
Hann minnist þess þegar feðg-
arnir reyndu að eiga gæðastund
saman þegar hann var yngri. „Við
reyndum að fara í bíó saman eða
út að borða en yfirleitt fengum við
ekki frið. Bíógestir voru jafnvel
hættir að horfa á myndina sjálfa
og störðu bara hlæjandi á pabba
og báðu hann um að segja eitthvað
fyndið. Það var ekki skemmtileg
upplifun fyrir lítinn gutta sem vildi
bara eiga pabba sinn út af fyrir sig.
Enda fór það svo að við enduðum
yfirleitt á því að leigja spólu saman
og horfðum á hana í friði heima. En
ég myndi ekki vilja hafa þetta öðru-
vísi. Annars væri ég ekki sú mann-
eskja sem ég er í dag.“
nóg aF gullkornum
Sjálfur hefur Þórhallur í nógu
að snúast þessa dagana. „Ég er
að vinna á frístundaheimili með
krökkum á aldrinum 6-10 ára og
þetta er ein skemmtilegasta vinna
sem ég hef unnið. Krakkar eru svo
hreinskilnir og gullkornin sem þau
láta út úr sér stundum eru óborgan-
leg. Þessi vinna hefur sannarlega
gefið mér mikið. Svo er ég alltaf á
fullu í uppistandinu og að veislu-
stjórast. Svo eru ýmsar pælingar
í gangi fyrir verkefni tengd uppi-
standi og jafnvel sjónvarpsþætti.
En ekkert sem hægt er að tjá sig
um að svo stöddu, það kemur allt í
ljós síðar. Ég verð næst með uppi-
stand í afmælisteiti Geðhjálpar
seinnipartinn, 9. október, þar sem
ég tala m.a. um kvíðann, félags-
fælnina og fleiri skemmtilega geð-
sjúkdóma á gamansaman hátt.“
,,Það er allt of algengt að ungt fólk taki eigið líf. sjálfur átti ég þrjá vini sem gerðu það,” segir Þórhallur. MYND/PJETUR
Útgefandi: Geðhjálp Umsjónarmaður auglýsinga: Atli Bergmann, atli.bergmann@365.is, s.
512 5457 Ábyrgðarmaður: Anna Gunnhildur Ólafsdóttir
Fyrir mér er
auðveldara að
standa einn uppi á
sviði og vera búinn að
ákveða svona nokkurn
veginn hvað ég ætla
að segja heldur en að
sitja úti í sal við borð
með ókunnugum og
þurfa að brydda upp á
einhverju umræðuefni
um daginn og veginn.
Geðhjálp heldur ekki aðeins upp á 36 ára afmæli sitt í dag. Haldið verður upp á flutning starfseminnar í eigið húsnæði við Borgar-tún 30 við sama tækifæri síðdegis. Fyrir samtök eins og Geðhjálp
er ekki markmið í sjálfu sér að eiga eigið húsnæði. Hitt er víst að öruggt
húsnæði skapar samtökunum ákjósanlegar aðstæður til að beita sér fyrir
eigin legum markmiðum sínum – nefnilega að berjast fyrir bættum kjörum
og réttindum fólks með geðræna sjúkdóma og aðstandenda þeirra, miðla
fræðslu og berjast gegn fordómum.
Afmælisbarnið tekur framtíðinni höndum tveim. Geðhjálp hefur vaxið
fiskur um hrygg á síðustu misserum. Félögunum hefur farið ört fjölgandi,
baráttan orðið sýnilegri og áhuginn vaxið í samfélaginu. Aukinn áhugi er
ekki hvað síst því að þakka hversu margar hetjur hafa stigið fram og lýst
lífi sínu með geðröskunum eins og Þórhallur Þórhallsson uppistandari
gerir í forsíðuviðtali Geðhjálparblaðsins í dag.
Þórhallur hefur ekki aðeins lifað með kvíða og félagsfælni allt sitt líf því
að þrír vinir hans hafa stytt sér aldur. Rétt eins og Geðhjálp og Hjálpar-
sími Rauða krossins hafa gert í forvarnarverkefninu Útmeð’a hvetur Þór-
hallur fólk til að tala opinskátt um andlega líðan sína. Þessi boðskapur
hefur fallið í frjósaman jarðveg því að Útmeð’a kynningarmyndbandinu
hefur verð deilt oftar en nokkru öðru kynningarmyndbandi á samfélags-
miðlunum eða 12.500 sinnum á árinu. Sífellt fleiri stíga fram m.a. undir
merkjum #égerekkitabú á samfélagsmiðlum.
Á bak við hverja einstaka manneskju með geðröskun eru að jafn-
aði 3-5 nánir aðstandendur, vinir og stórfjölskylda. Geðhjálp beinir sjón-
um sínum að aðstandendum á málþingi undir yfirskriftinni Öðruvísi líf á
Grand Hóteli 14. október. Í viðtali við Knút Birgisson fötlunarfræðing og
stuttum lýsingum á fimm fyrirlestrum til viðbótar er lesendum gefin inn-
sýn í efni málþingsins í blaðinu. Almenningur er hvattur til að fjölmenna
á málþingið.
Héðinn Unnsteinsson, höfundur bókarinnar Vertu úlfur og baráttumað-
ur fyrir betri geðheilbrigðisþjónustu, leggur áherslu á að línan á milli þess
að vera geðsjúkur og heilbrigður sé í raun ekki til. Við séum öll á svipuðu
rófi en skynjum og túlkum hlutina einfaldlega á mismunandi hátt. Héðni
finnst eðlilegra að tala út frá heilsu en veikindum, getu en vangetu, og
leggur áherslu á að hver og einn þurfi að finna sína eigin leið til sjálfshjálp-
ar. Óhætt er að taka undir þessi orð.
Öflug starfsemi Geðhjálpar endurspeglast m.a. í starfsemi þriggja
sjálfshjálparhópa á vegum samtakanna, þ.e. kvíðahóps, tilveruhóps og geð-
hvarfahóps. Einn fulltrúi úr hverjum þeirra segir frá reynslu sinni af hópa-
starfinu í blaðinu. Geðhjálp vinnur ekki aðeins sjálfstætt heldur tekur þátt
í ýmiss konar samráði. Einn slíkur samráðshópur stendur fyrir dagskrá í
tilefni af Alþjóðageðheilbrigðisdeginum 10. október. Dagskráin hefst með
móttöku í Útvarpshúsinu kl. 12.15. Því næst verður gengið í skrúðgöngu frá
Útvarpshúsinu kl. 12.40 í Kringluna þar sem boðið verður upp á fjölbreytta
dagskrá á Blómatorginu frá kl. 13.00 til kl. 16.00. Frekari upplýsingar má
sjá á www.10okt.com.
Skilningur stjórnmálamanna og embættismanna á eðli og aðstæðum
fólks með geðrænan vanda skilar sér í bættri þjónustu og betri réttindum
þessa hóps. Ilmur Kristjánsdóttir, nýr formaður velferðarráðs Reykjavík-
urborgar, leggur áherslu á að þjónusta sveitarfélagsins sé einstaklingsmið-
uð, heildstæð og sveigjanleg. Hún staðfestir ekki aðeins að starfsemi Geð-
heilsumiðstöðvarinnar í Breiðholti verði tryggð heldur vilja borgarinnar til
að opna fleiri slíkar stöðvar í samstarfi við heilsugæslu höfuðborgarsvæð-
isins og ríkið. Því ber að fagna enda hefur árangur stöðvarinnar verið óum-
deildur eins og fækkun innlagna í Breiðholti hefur leitt í ljós.
Rétt eins og Geðhjálp fagnar Ilmur tillögu að þingsályktun um geð-
heilbrigðisstefnu og aðgerðaráætlun. Með henni er stuðlað að veigamikl-
um breytingum til batnaðar í geðheilbrigðismálum þó að alltaf megi gera
betur og samtök eins og Geðhjálp þurfi sífellt að vera á tánum.
Anna Gunnhildur Ólafsdóttir,
framkvæmdastjóri Geðhjálpar.
Afmælisbarn
á tánum
9. október 2015 FÖSTUDAGUR2 l Geðhjálp
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
C
2
-B
B
7
0
1
6
C
2
-B
A
3
4
1
6
C
2
-B
8
F
8
1
6
C
2
-B
7
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
8
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K