Fréttablaðið - 09.10.2015, Qupperneq 48
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Auður Katrín
Sólmundsdóttir
frá Hátúni, Stöðvarfirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Austurlands í
Neskaupstað þann 6. október.
Útförin auglýst síðar.
Sólmundur Jónsson Auður Guðmundsdóttir
Viðar Jónsson Heiðdís Guðmundsdóttir
Sólveig Jónsdóttir Pétur Skarphéðinsson
ömmu- og langömmubörn.
Elskulegi bróðir okkar, mágur og frændi,
Ingimundur Arnar
Markússon
Bói frá Bjargasteini í Garði,
sem lést þann 30. september, verður
jarðsunginn frá Útskálakirkju þriðjudaginn
13. október kl. 14.00.
Aðstandendur
Ástkær móðir mín og amma,
Guðríður Júlíusdóttir
Deildarási 8,
lést á Landspítalanum 4. október
sl. Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju
miðvikudaginn 14. október kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ester Harðardóttir
Erna Björg Sverrisdóttir Orri Ólafsson
„Við erum orðin meiri hljómsveit
myndi ég segja, við fórum frá að vera
þriggja manna popptríó yfir í afskap-
lega reynda progghljómsveit, þar sem
hver staða er skipuð meistara, og þá
er ég nú ekki að tala um mig,“ segir
Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, með-
limur sveitarinnar Todmobile sem um
þessar mundir fagnar tuttugu og fimm
ára afmæli plötunnar Todmobile, sem
ansi mörgum ætti að vera kunn og
eflaust haldið upp á víða. Platan rataði
til að mynda inn á lista hundrað bestu
platna Íslandssögunnar. „Þarna eru
langflestir smellirnir okkar, svo sem
Brúðkaupslagið, Pöddulagið, Eldlagið,
Spiladósalagið, Gúggúlu, og Drauma-
lagið,“ segir Þorvaldur kampakátur.
Aðspurður hvert sé uppáhaldslag hans
af þessari plötu nefnir hann Nætur-
lagið. „Við höfum ekki spilað það lag
síðan á útgáfutónleikunum fyrir tutt-
ugu og fimm árum. Ég held að það hafi
verið okkar besta lag, og við vorum
bara að uppgötva það aftur núna. Það
verður býsna gaman að spila það.”
Hljómsveitin var upphaflega stofnuð
árið 1988 og má með sanni segja að
mikið vatn hafi runnið til sjávar síðan.
Ætla má að einhver stærsta breytingin
á högum bandsins hafi verið aðkoma
Eyþórs Inga Gunnlaugssonar, stór-
söngvara með risaröddina, sem hljóp
til á ögurstundu og ílengdist svo. „Hann
datt eiginlega óvart inn. Varð messufall
hjá nafna hans, Eyþóri Arnalds, og við
að fara að halda annaðhvort dansleik
eða tónleika. Þá eru þau Andrea og
Eyþór Ingi að vinna saman fyrir norð-
an við Rocky Horror sem þar var sýnt.
Kemur í ljós að pabbi Eyþórs hlustaði
mikið á Todmobile þegar Eyþór var
lítill, svo hann kunni öll lögin,“ segir
Þorvaldur og skellir upp úr. Þrátt fyrir
að Eyþór sé fæddur árið 1989, ári áður
en platan Todmobile kom út, hefur
það ekki komið að sök. „Hann er
gömul sál. Það hefur aldrei komið upp
á meðal okkar, eða þeirra heimsfrægu
tónlistar manna sem við höfum unnið
með, að einhver segi: „Þegi þú þarna,
ungi maður, þú veist ekki neitt,“ það
hefur bara ekki skeð. Hann er svo pró,“
útskýrir Þorvaldur og bætir við: „Við
höfum einfaldlega ekki pælt í þessu.“
Verður þessum tímamótum fagnað
í kvöld í Eldborgarsal Hörpu, en tón-
leikahald sveitarinnar hefur fest sig
í sessi sem árlegur viðburður í tón-
listarhúsinu síðan hún reið á vaðið árið
2011 og bókaði salinn fyrst rokkhljóm-
sveita. „Við tókum engan smá séns, en
þetta hefur gengið stórkostlega. Við
höfum fengið til liðs við okkur heims-
fræga listamenn, kammersveit og
kóra, ásamt Sinfóníuhljómsveitinni.
Og stefnum á útrás, svo okkur þótti
tímabært að fara „back to basics“ og
verðum upp á gamla mátann, þar sem
við flytjum lög af plötunni góðu og alla
hina smellina.“
Mun Todmobile svo endurtaka leik-
inn í Hofi á Akureyri annað kvöld, og
lofar að ekki verði stemningin minni
norðan heiða. „Todmóbílskt stuð í
Hörpu og Hofi,“ bætir Þorvaldur við í
blálokin. gudrun@frettabladid.is
Aldarfjórðungs afmæli
fagnað með stæl í kvöld
„Todmóbílskt stuð í Hörpu og Hofi,“ lofar Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, er hann talar
fyrir hönd félaga sinna í Todmobile, einni vinsælustu rokkhljómsveit Íslandssögunnar.
Andrea Gylfadóttir er ein ástsælasta söngkona landsins, og hefur verið með frá upphafi, líkt
og Þorvaldur.
Eyþór er árinu eldri en platan Todmobile, en þetta kynslóðabil hefur nákvæmlega engin áhrif að sögn Þorvalds.
Merkisatburdir
1804 Ingibjörg Einarsdóttir, kona Jóns Sigurðssonar forseta, fæðist.
1889 Jakob Jóhannesson Smári skáld fæðist.
1940 John Lennon, bítill og friðarsinni,
fæðist. Árlega er kveikt á Friðarsúlunni í
Viðey í tilefni fæðingardags Lennons, og
lét eftirlifandi eiginkona hans reisa súl-
una. Á hverju ári er svo viðhöfn þennan
dag þegar kveikt er á súlunni.
1943 Lifandi leðurblaka finnst þennan
dag í fyrsta skipti á Íslandi. Fannst hún á
Hvoli í Mýrdal. Hún gaf upp öndina tíu
dögum síðar.
1944 „Í dag hyllum við Íslendinga sem
þegna systurlýðveldisins í Atlantshafi og
arftaka þúsund ára lýðræðishefðar,“ segir
Franklin D. Roosevelt Bandaríkjaforseti í tilefni dagsins, en hann er
tileinkaður Leifi Eiríkssyni.
1944 Guðmundur Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, fæðist.
1947 Lára Margrét Ragnarsdóttir, fyrrum alþingismaður, fæðist.
1950 Gefið er út forsetabréf um afreksmerki hins íslenska lýð-
veldis, sem sæma má þá sem „leggja líf sitt eða heilsu í hættu
við björgun íslenskra manna úr lífsháska“. Var merkið fyrst veitt
þremur árum síðar.
1963 Skáldatími eftir Halldór Laxness kemur út. Bókin vekur mikla
athygli og umtal, en í henni gerir hann upp við sósíalismann.
1965 Minningardagur Leifs Eiríkssonar fyrst haldinn hátíðlegur á
Íslandi.
1971 Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-EIR brotnar við lendingu á
Rjúpnafelli. Flugmaður og farþegi sleppa ómeiddir og þurfa að
ganga rúm fjörutíu kílómetra áður en hjálpin berst.
1986 Stöð 2 hefur
útsendingar. Hún er
þannig fyrsta íslenska
sjónvarpsstöðin í
einkaeign, en Jón Óttar
Ragnarsson er sjón-
varpsstjóri þegar út-
sendingar hefjast.
1992 Markarfljótsbrú er
vígð, og er tvö hundruð
og fimmtíu metra löng.
Kemur brúin í stað
brúarinnar sem vígð
var 1934, og styttist þar
með hringvegurinn um
fimm kílómetra.
9 . o k t Ó b e R 2 0 1 5 F Ö S t U D A G U R24 t í m A m Ó t ∙ F R É t t A b L A ð i ð
tímamót
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
C
2
-1
3
9
0
1
6
C
2
-1
2
5
4
1
6
C
2
-1
1
1
8
1
6
C
2
-0
F
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
6
4
s
_
8
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K