Allt um íþróttir - 01.02.1951, Qupperneq 2
Úr bréfi frá Ólafsfirði.
J.G. skrifar langt bréf og kem-
ur víða við. Vegna þess, hvað þesc-
ir dálkar lesenda eru litlir, reynist
ekki mögulegt að birta bréfið í
heild. Við þökkum J. G. kærlega
fyrir tilskrifið og vonum, að hann
og æska Ólafsfjarðar haldi áfram
á sömu braut á sviði íþróttanna.
J.G. endar bréf sitt á því að spyrja
um árangur B-júníora í Reykjavík
í stökkum? Eftir því scm við kom-
umst næst á Baldvin Árnason bezt
í stangarstökki, 3.15 m., Kristinn
Ketilsson í langstökki, 5.94 m., og
Jafet Sigurðsson í hástökki, 1.65 m.
Siggi segist hafa mikinn áhuga
á frjálsíþróttum og þó sérstaklega
stökkunum. Hann langar til að
vita eftirfarandi:
1. Hvað stökk Skúli Guðmunds-
son hátt, þegar hann var 16
ára?
2. Hvað eru þriðjaflokksmet í
stökkum?
3. Hve gamall er og hvenær
stökk Jóh. Benediktsson 1.72
m. í hástökki á s.l. sumri, tók
hann þátt í DMl, og ef s'vo er,
hvað stökk hann þá?
Svör:
1. Hann stökk 1.63 m.
2. Það eru ekki til nein staðfest
met fyrir B-júníora, en við
vísum til fyrsta bréfsins frá
Ólafsfirðingi, þar sem sagt er
frá bezta árangri í fyrra.
3. Um aldur Jóhanns Benedikts-
sonar vitum við ekki nákvæm-
lega, en hann mun vera um
tvítugt. Hann stökk 1.72 s.l.
haust á móti í Keflavík.
Hr. ritstjóri.
Ég ætla að skrifa ykkur örfáar
línur og spyrja 3 spurninga. Ég
er 9 ára og hef mikinn áhuga á
íþróttum.
„Silakeppur".
1. Hvað er heimsmetið í 200 m.
grindahlaupi?
2. Hvar og hvenær fæddist Ás-
mundur Bjarnason og hvenær
byrjaði hann að æfa?
3. Hvar og hvenær fæddist Pét-
ur Einarsson?
Svör:
1. Bandaríkjamaðurinn Fred
Walcott á heimsmetið í 200 m.
grhl. og er það 22.3 sek. sett
1940. Harrison Dillard hljóp
reyndar 220 yds á 22.3 sek.
vorið 1947, sem samsvarar
22.2 á 200 m. Það met er þó
aðeins staðfest á 220 yds.
2. Ásmundur er fæddur á Akur-
eyri 17. febr. 1927 og byrjaði
að æfa frjálsíþróttir 1943.
Hann æfði fyrst spjótkast og
átti um tíma drengjametið í
því. Ásmundur náði aðeins
12.6 sek., þegar hann hljóp
100 m. í fyrsta sinn.
3. Pétur Einarsson er fæddur á
Hjalteyri 6. júlí 1926.
38
IÞRÓTTIR