Allt um íþróttir - 01.02.1951, Síða 5
ALLTUM ÍÞRÓTTIR
TÍMARIT UM INNLENDAR DG ERLENDAR ÍÞRDTTIR
RITSTJDRAR :
RAGNAR INGDLFSSDN □ G □ RN EIÐSSDN
ÁBYRGÐARMAÐUR:
GÍSLI ÁSMUNDSSDN
2. HEFTI FEBRÚAR II. ÁRG.
UTANÁSKRIFT:
TÍMARITIÐ TþrÓTTIR,
VÍÐIMEL 31
SÍMI: 5D55 - KL. 9-11 ARD.
Við megum ekki sofna á verðinum.
Eftir rúma fjóra mánuði fer
fram í Osló landskeppni í frjáls-
íþróttum milli Norðmanna, íslend-
inga og Dana. Þetta kemur til með
að verða þriðja landskeppni okk-
ar í þessari vinsælu íþróttagrein,
og sú fyrsta á erlendum vettvangi.
Áður höfum við keppt við þessar
frændþjóðir okkar sitt í hvoru lagi.
Við töpuðum fyrir Norðmönnum
1948 (73:92), en unnum Dani í
fyrrasumar (108:90), eins og flest-
um er ennþá í fersku minni.
Þjálfun og undirbúningur fyrir
þessar keppnir, sem báðar fóru
fram í Reykjavík, var allur í bezta
lagi, og þeim, sem um það sáu, til
hins mesta sóma.
Keppnin í Osló kemur til með
að verða mjög hörð, sérstaklega
milli okkar og Norðmanna. Dani
ættum við að ráða við, þó ekki
með neinum yfirburðum.
En hvað er nú að segja um und-
irbúninginn fyrir þessa keppni, er
hann eins góður og 1948 og í fyrra?
Það er leitt til þess að vita, að ekki
skuli vera hægt að svara þessu
játandi. Það var ekki fyrr en rétt
fyrir síðustu mánaðamót, að FRÍ
kom af stað innanhússæfingum, og
þá aðeins einu sinni í viku. Að
vísu hafa félögin sínar æfingar, en
það er engin afsökun fyrir því, að
landslið sé ekki æft sérstaklega.
Nei, við megum ekki sofna á
verðinum, þó að vel hafi gengið í
fyrrasumar. Framundan er miklu
erfiðari keppni, sem krefst mikils
og margþætts undirbúnings. Eng-
inn má slá slöku við, hvorki
íþróttamennimir sjálfir né for-
ystumenn íþróttasamtakanna. Ef
þannig verður í pottinn búið, mun
okkur takast að sigra í Osló á
sumri komanda.
IÞRÓTTIR
39