Allt um íþróttir - 01.02.1951, Síða 6
STEFÁNS-MÓTH):
Reykvískir skíðamenn aldrei betri en nú
Ásgeir Eyjólfsson fyrstur í A-flokki.
Á Stefáns-mótinu, sem fór fram
sunnudaginn 28. janúar s.l., kom
berlega í ljós, að reykvískt skíða-
fólk hefur enn tekið framförum í
uppáhaldsgrein sinni, sviginu. Það
er ekki ofsagt, að það sé betra en
nokkru sinni fyrr.
Keppt var eingöngu í svigi í öll-
um flokkum karla og kvenna, en
til þessarar keppni er efnt árlega
til minningar um Stefán heitinn
Gíslason, sem var einn af forvígis-
mönnum reykvískra skíðamála.
Keppnin fór fram á mjög ákjósan-
legum stað, Hamragili við Kolvið-
arhól, og var færi sæmilegt; ný-
fallinn snjór, en grunnt ofan á
hjam. Byrjað var á C-flokki karla,
því næst kvennaflokkum og
drengjaflokki. Gekk keppnin all-
greiðlega og var fróðlegt að bera
saman á þessu fyrsta móti vetrar-
ins getu skíðafólksins nú og i fyrra.
Það er því miður ekki hægt að
segja um t. d. C-flokk karla, að
hann sé betri en nokkru sinni fyrr,
því hann er öllu lakari en oft áð-
ur. Kvenna- og drengjaflokkur eru
á sama stigi og í fyrra og eigin-
lega kom þar ekkert nýtt fram,
sem orð er á gerandi. Þó má geta
þess, að Ingibjörg Ámadóttir bar
af keppinautum sínum, sem áður,
en vonandi tekst Karólínu Guð-
mundsdóttur að veita henni keppni
í vetur.
Það var ekki fyrr en keppnin í
B-flokki karla hófst, að örla tók á
framför. Að svo stöddu verður
ekkert sagt um það, hver muni
vera beztur, en þeir, sem fyrstir
urðu, sýndu mikla leikni. Senni-
lega hefði þó Ingólfur Ámason
sigrað, ef hann hefði ekki orðið
fyrir óhappi, sem honum verður
ekki kennt um. Jónas Guðmunds-
son og hann hlutu jafnan tíma
eftir báðar ferðir, en Ingólfur náði
langbezta tíma í brautinni í ann-
arri umferðinni. í þessum flokki
vom alls 18 keppendur, og er það
óvenjulegur fjöldi og gleðilegur
vitnisburður um almennari áhuga,
og meðal þessara keppenda voru
margir bráðefnilegir menn.
Margir áhorfendur biðu A-flokks
keppninnar með óþreyju, en af
einhverjum ástæðum dróst hún á
langinn, og um það leyti, sem hún
loks hófst, var komin hríðarmugga,
er ágerðist, þegar á leið keppnina
og jafnframt hvessti mjög. Var
bagalegt, að þannig skyldi takast
til, enda ófært að keppni skuli yf-
irleitt fara fram við slæmar að-
stæður. Eftir fyrri umferð átti
40
IÞRÓTTIR