Allt um íþróttir - 01.02.1951, Síða 10
ekki lengi, því að Hoff bætti það
strax í sinni næstu keppni í 4.27.
Charles Hoff var mjög fjölhæfur
íþróttamaður, hann tók t. d. þátt í
400 og 800 m. í París, þegar hann
gat ekki keppt í stangarstökkinu,
og komst í úrslit í síðamefndu
greininni.
Torfi Bryngeirsson.
í kringum og upp úr 1930 fór
að bera á Japönum í stangarstökk-
inu. Þeir beztu voru Nishida, sem
óvænt varð 2. á Ólympíuleikunum
í Los Angeles 1932 á 4.30, og jap-
anski methafinn Suoe Oe, er stökk
4.35 árið 1939. Á Ólympíuleikjun-
um í Berlín 1936 var stangarstökk-
ið hreint einvígi milli Bandaríkja-
manna og Japana, keppnin stóð
langt fram á kvöld og þótti einhver
sú skemmtilegasta á leikjunum.
Nishida varð einnig 2. í Berlín.
Heimsmethafinn í stangar-
stökki, Cornelius Warmerdam, hef-
ur mikla yfirburði yfir næstu menn
í heimsafrekaskránni, líklega meiri
en nokkur annar heimsmethafi í
frjálsíþróttum. Því hefur verið
haldið fram, að þetta met muni
standa lengi, en í sumar var því
þó spáð, að hægt verði að stökkva
allt að 5.50 m., en úr því mun fram-
tíðin ein skera.
Hér á landi sem annarstaðar er
stangarstökkið vinsælt, en sumir
vilja þó halda því fram, að það
sé aðallega Torfi, sem gerir það
eins vinsælt og það er. Torfi hefur
nefnilega alla hæfileika, sem stang-
arstökkvari þarf að hafa, og haldi
hann áfram í nokkur ár enn, munu
4.50 m. koma áður en lýkur, það
skaltu vera viss um, Torfi!
Beztir í heimi:
C. Warmerdam, USA, 1942 ... 4.77
B. Richards, USA, 1950 ...... 4.56
W. Sefton, USA, 1937 ........ 4.547
E. Meadows, USA, 1937 ....... 4.547
B. Morcom, USA, 1948 ........ 4.473
G. Smith, USA, 1948 ......... 4.473
K. Dills, USA, 1940 ........ 4.47
G. Varoff, USA, 1937 ........ 4.461
J. Montgomery, USA, 1949 .... 4.45
L. Day, USA, 1938 .......... 4.445
W. Schaeffer, USA, 1941....... 4.42
A. Sunsery, USA, 1942 ....... 4.42
Rasmussen, USA, 1949 ......... 4.42
W. Graber, USA, 1935 ......... 4.41
R. Lundberg, Svíþjóð, 1950 ... 4.40
Ólympíusigurvegarar frá upphafi:
1896 N. H. Hoydt, USA ....... 3.30
1900 I. K. Baxter, USA ...... 3.30
1904 C. E. Dvorak, USA ...... 3.505
1906 F. Conder, Frakkl........ 3.40
1908 E.Cooke og A.Gilbert, USA 3.71
1912 H. S. Babcock, USA ..... 3.95
1920 F. Foss, USA ........... 4.09
1924 L. Barnes, USA ......... 3.95
Frh. á síðu 25
44
ÍÞRÓTTIR