Allt um íþróttir - 01.02.1951, Síða 14
hverri og sívaxandi leigu jarðeig-
enda, sem höfðu nánar gætur á að-
sókninni, var atvinnufélögum gert
ókleift að starfa með útsláttar-
keppnum eingöngu.
Vegna þess að undankeppni í
bikarkeppninni þekktist ekki eins
og nú, áttu atvinnufélögin á hættu
að verða slegin út strax í október
og það, sem eftir var leiktíma-
bilsins, og gátu þau ekki boðið
áhorfendum sínum upp á neina
aðra keppni. Einnig áttu þau á
hættu að lenda á móti svo smáum
félögum, að enginn kærði sig um
að horfa á leikinn. Þannig kom það
fyrir, að Preston North End sigr-
aði eitt sinn í bikarkeppninni með
26—0, og það kom oftar en einu
sinni fyrir, að Aston Villa sigraði
með 20—0. Var þá komið með stól
fyrir markvörð þeirra, sem sat í
makindum í markinu út leikinn.
Áhorfendur voru fái’r, en launalist-
inn varð ekki minni.
Nokkru eftir 1880 kom fyrir,
að Aston Villa lék ekki leik í hálf-
an annan mánuð, þar eð andstæð-
ingar þess, sem fengnir höfðu ver-
ið til að leika aukaleiki, mættu
ekki. Deildakeppnin var því til af
hreinni anuðsyn, einasta lausnin
á ríkjandi neyðarástandi.
í marz 1888 bauð W. M’Gregor
hjá Aston Villa, stjómum annarra
atvinnufélaga á fund og lagði til,
að komið yrði á tvöfaldri stiga-
keppni atvinnufélaganna, þar sem
einn keppti við alla og allir við einn
bæði heima og heiman.
Þessi keppni var svo ákveðin 17.
apríl 1888, með þátttöku 6 félaga
48
frá Lancashire: Preston North
End, Bolton Wanderers, Everton,
Bumley, Blackbum Rovers og Acc-
rington, og sex frá Miðlöndum:
Aston Villa, Wolverhampton Wan-
derers, West Bromwich Albion,
Derby County, Stoke City og Notts
County.
Að undanteknu Accrington eru
öll þessi félög enn í deildakeppn-
inni, þó öll hafi þau átt misjafna
ævi, fallið niður, og Stoke hefur
fallið alveg út, 1890—1. Núverandi
Accrington Stanley (í III. deild
nyrðri) er annað fyrirtæki, með
nýjan völl.
Nafn samtakanna olli töluverð-
um deilum, því að atferli írska
leynifélagsskaparins (Irish Land
League) var ekki sérlega vinsælt
með Englendingum, en að endingu
var þeim gefið nafnið The Football
League, og hefur það verið notað
síðan. Fyrsta tímabilið varð eftir-
minnilegt, því að Preston North
End vann afrek, sem líklegt er að
standi óhaggað. Þeir unnu deilda-
keppnina án þess að tapa leik og
bikarkeppnina án þess að fá á sig
mark. Liðið („Hinir ósigrandi“)
var skipað einum Velsa, þremur
Lancashire-búum og sjö Skotum.
Skráin yfir fyrsta leikárið leit
þannig út:
Leiktímabilið 1888—89.
Preston N.E. 22 18 4 0 74-15 40
Aston Villa 22 12 5 5 61-43 29
Wolverh.ton 22 12 4 6 50-27 28
Blackb. R. 22 10 6 6 66-45 26
Bolton W. 22 10 2 10 63-59 22
W. Bromw. 22 10 2 10 40-46 22
IÞRÓTTIR