Allt um íþróttir - 01.02.1951, Síða 29

Allt um íþróttir - 01.02.1951, Síða 29
MERKUR FÉLAGSSKA.t-UR. I haust sem leið var stofnað í Briissel félag afrekaskrásetjara (,,statistikkera“), en stofnendur voru flestir af færustu mönnum heimsins í þessu fagi. Forseti var kjörinn Ilarold M. Abrahams, Bret- landi, form. R. L. Quercetani, ít- alíu, og ritari F. Regli, Sviss. Strax eftir stofnunina var ein- um íslendingi, Brynjólfi Ingólfs- syni, sýndur sá sómi að vera gerð- ur að meðlim félagsins. Kom það engum á óvart, sem til hans þekkja, því hann hefur um áraskeið verið í fremstu röð í þessari grein. Félagið mun gegna merku starfi í framtíðinni og er það ætlun þess að gefa út árlega bók með skrám yfir 50 beztu í Evrópu, svo og meistaramót Evrópulandanna, auk þess sem það mun tilnefna tiu beztu menn í hverri grein. Hér er auðvitað átt við frjálsíþróttir ein- göngu. Þeir, sem hefðu í hyggju að ger- ast meðlimir félagsins, skulu hafa samband við Brynjólf, sem gefur allar upplýsingar um skilyrði fyr- ir upptöku í það. SPREYTTU ÞIG! Svör við spumingum á bls. 14. 1. í 50 m. skriðsundi og 50 m. flugsundi. 2. Hafsteinn Guðmundsson. 3. Þeir eru þrír: Óskar Jónsson (3:53.4), Pétur Einarsson (4:01.8), og Þórður Þorgeirs- son (4:07.8). 4. Það var ekki byrjað að halda E.M. í frjálsíþróttum fyrr en 1934. 5. K.R. 6. 6444 stig. 7. Skíðamaðurinn Heikki Hasu. 8. Þýzkaland (40.1 sek.). 9. íþróttabandalag framhalds- skólanna í Reykjavík og ná- grenni. 10. Rússinn David Bronstein. Litlar sögur fara af júgóslav- neskri knattspymu fyrir árið 1920, en af reglum þeim, sem knattspyrnuráð Zagreb-borgar gaf út 1932, er hægt að gera sér í hugarlund, að hún hafi ekki verið neinn bamaleikur. Þá var nefni- lega stranglega bannað að sparka í andstæðing, sem ekki hafði knött- inn, bannað var að gera út um deilu með slagsmálum eða spörk- um, og leikmenn yrðu að hætta að stökkva á andstæðing með báðum fótum. Tveim árum síðar vildi það til í kappleik í Strúmitza, að mið- framherji annars liðsins lék knett- inum sex sinnum að markverði andstæðinganna, lék síðan í kring um hann og renndi knettinum í netið. En þegar miðframherjinn kom í 7. heimsóknina, veitti mark- vörðurinn honum velútilátið högg á hnakkann, svo að hann féll dauð- ur niður. Markvörðurinn fékk 3ja mánaða fangelsi fyrir manndráp. IÞRÖTTIR 63

x

Allt um íþróttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.