Allt um íþróttir - 01.02.1951, Qupperneq 31
og Wolverhampton, en þrátt fyrir
allt, hver er kominn til með að
segja að eitthvert þeirra komist til
Wembley?
Deildalieppnin sníglast áfram
samhliða bikarkeppninni. Totten-
ham og Middlesbrough geta nú
einbeitt sér að baráttunni um
meistaratitilinn, en Arsenal, sem
jafnframt gýtur homauga til bik-
arsins, er á góðri leið með að kom-
ast úr öldudalnum, sem það hefur
verið í síðan í byrjun desember.
Á hinum endanum er baráttan
öllu harðari, enda eru 6—8 neðstu
liðin í yfirvofandi hættu. Charlton
hefur bætt aðstöðuna allverulega í
síðustu leikjum sínum, því hefur
bætzt nýr liðsmaður, þar sem er
sænski landsliðsmaðurinn Hans
Jeppson, miðframherji Djurgárd-
ens. Því tókst nýlega að sigra Láv-
erpool og Wolverhampton. Taflan
gefur ekki rétta hugmynd um stöð-
una, en Sheff. Wednesday hefur
tapað flestum stigum, 37, Aston
Villa 36, Everton og Huddersfield
35. Aftur á móti stendur Chelsea
töluvert betur að vígi vegna færri
leikja, það hefur aðeins tapað 31
stigi, 2 stigum meir en Liverpool,
sem þó er 13. í röðinni.
Staðan er nú þessi:
Tottenham 28 16 7 5 59-33 39
Middlesbro 28 15 8 5 64-39 38
Arsenal 29 15 7 7 56-32 37
Newcastle 27 13 8 6 46-38 34
Wolves 27 13 6 8 55-36 32
Bolton 27 14 4 9 47-41 32
Manch. Utd. 28 13 6 9 38-31 32
Blackpool 28 11 8 9 52-40 30
Stoke City 29 9 12 8 35-35 30
IÞRÖTTIR
Derby C. 28 11 7 10 56-49 29
Portsmouth 27 10 8 9 50-53 28
Bumely 28 9 10 9 34-30 28
Liverpool 28 10 7 11 36-41 27
Sunderland 28 7 10 11 42-53 24
W.B.A. 29 8 8 13 37-41 24
Fulham 29 8 8 13 35-52 24
Charlton 29 9 6 14 44-65 24
Everton 29 9 5 15 41-63 23
Chelsea 26 8 5 13 34-38 21
Huddersf. 28 8 5 15 41-67 21
Aston Villa 28 5 10 13 40-48 20
Sh. Wedn. 28 7 5 16 41-60 19
Preston North End er nú á góð-
um vegi með að slíta af sér næstu
keppinauta sína um 2 efstu sætin
í n. deild, og fer nú loks að sjá
verulegan árangur allra kaupanna.
Það er ekki smáupphæð, sem þessi
árangur hefur kostað: h. innherj-
inn Quigley 26.000 stpd. í fyrra,
Wayman miðfrh. 20.000 í haust
og framv. Forbes 20.000. En sterk-
asti liðsmaðurinn, hinn þekkti
landsliðsmaður Tom Finney, kost-
aði ekki nema 10 stpd.
Efstu liðin í H. deild eru:
Preston 29 17 4 8 59-33 38
Manch.City 27 13 8 6 57-42 34
Cardiff 28 1210 6 41-30 34
Blackbum 28 14 6 8 48-43 34
Coventry 29 15 410 57-38 34
Skozka deildakeppnin er nú að
byrja síðasta þriðjunginn og hefur
Hibernian þegar aflað sér slíks for-
skots, að erfitt mun að rokka því
úr efsta sætinu. Auk 1 stigs fram
yfir næsta lið, hefur það einnig
leikið þremur leikjum færra.
Hibernian 19 14 2 3 51-17 30
Aberdeen 22 13 3 6 49-37 29
Dundee 21 12 4 5 33-17 28
65