Allt um íþróttir - 01.02.1951, Qupperneq 36
Tvö skíðamót úti á landi,
Svigkeppni á ísafirði.
Keppni um Ármannsbikarinn
fór fram í Stórurð á ísafirði
sunnud. 11. febr. s.l. Keppt var í
2 flokkum. 28 keppendur voru í
eldri flokki, en 24 í þeim yngri.
Braut eldra flokksins var 650 m.
löng. Hæðarmismunur 300 m., með
35 hliðum. Þetta var einhver
lengsta braut, sem þar hefur ver-
ið lögð, því hún náði upp undir
sVonefndan Gleiðarhjalla. Rigning
var á meðan keppnin fór fram og
færi ekki sem bezt.
Úrslit í eldra flokki urðu sem
hér segir: 1. A-sveit Harðar á
6:52.1 mín. 2. sveit Ármanns á
7:10.2, 3. sveit Skíðafélagsins á
7:39.7, 4. B-sveit Skíðafélagsins á
8:13.9, 5. B-sveit Harðar á 8:21.0,
og 6. sveit Þróttar á 8:42.0.
í einstaklingskeppninni urðu
úrslit þau, að fyrstur varð Jón
Karl Sigurðsson, Herði, á 2:06.5
mín., 2. Oddur Pétursson, Ármann,
2:09.0, 3. Gunnar Pétursson, Ár-
mann, 2:13.2, 4. Haukur O. Sig-
urðsson, Herði, 2:19.6, 5. Hörður
Árnason, Þrótti, 2:20.0.
í yngra flokki sigraði sveit
Þróttar á 4:13.8 mín. 2. A-sveit
Harðar 4:28.0, 3. sveit Ármanns
6:04.0, 4. B-sveit Harðar 6:07.2.
í einstaklingskeppninni í yngra
flokki varð fyrstur Björn Helga-
son, Þrótti, 1:18.1 mín., 2. Óskar
Benediktsson, Þrótti, 1:19.0, 3.
Elías Helgason, Herði, 1:21.2.
Stökkkeppni á Akureyri.
Sveitarkeppni um „Morgunblaðs-
bikarinn" fór fram sunnud. 11.
febr. í ágætu veðri.
Að þessu sinni féll bikarinn til
K.A., en það félag hefur oftast
unnið hann eða alls fjórum sinn-
um. Í.M.A. hefur unnið hann 3svar.
I sveit K.A. voru: Guðmundur
Guðmundsson, Sigtryggur Sig-
tryggsson og Þráinn Þórhallsson.
Sveitin hlaut alls 630.5 stig. Sveit
Þórs varð önnur með 616.4 stig,
þriðja var B-sveit K.A., en Í.M.A.
hafið ekki fullskipaða sveit.
Árangur varð sem hér segir:
1. Hermann Ingimarsson, Þór,
213.6 stig (26.5 og 24 m.).
2. Guðmundur Guðmundsson,
K.A., 212 st. (25.5 og 26 m.).
3. Sigtryggur Sigtryggsson, KA,
210 st. (25.5 og 27 m.).
4. Þráinn Þórhallsson, KA, 208.5
stig (25.5 og 26 m.), og
5. Jens Sumarliðason, Þór, 202.2
st. (24 og 23.5 m.).
Kennslubók í frjálsíþróttum.
Þeim, sem hafa óskað eftir, að
ritið birti kennsluþætti, skal bent
á, að út er að koma kennslubók
í frjálsíþróttum. Telur ritið því
óþarft að birta kennsluþætti í
þeirri grein íþróttanna, en taka
heldur aðrar fyrir.
70
IÞRÓTTXR