Allt um íþróttir - 01.03.1951, Side 2

Allt um íþróttir - 01.03.1951, Side 2
Hr. ritstj. Ég er einn af mörgum, sem kaupa tímaritið „Allt um íþróttir“. Óska ritinu alls hins bezta á fram- tíðarleið sinni, en vil um leið leggja fram eftirfarandi spurning- ar: 1. Hver á heimsmetið í fimmtar- þraut og hvað er það mörg stig? 2. Hverjir urðu Ólympíumeistarar í fimleikum 1936 og 1948? 3. Hvað hetu Siglfirðingarnir, sem sýndu hér s.l. sumar? 4. Er æft hér á svifrá og tvíslá? 5. Hvaða félag er hér bezt í fim- leikum? Magnús Einarsson. S v ö r : 1. Alþjóðasambandið staðfestir ekki heimsmet í fimmtarþraut, en bezta árangur, sem um er vitað, á Þjóðverjinn Miiller frá 1939, og er það 3868 stig. 2. í einstaklingskeppni sigraði Þjóðverjinn A. Schwarzmann 1936, í flokkakeppni karla Þýzkaland, en kvenna Tékkó- slóvakía. — 1948 sigraði V. A. Huhtanen, Finnlandi, í flokka- keppni karla Finnland, en í flokkakeppni kvenna 1948 sigr- aði Tékkóslóvakía aftur. 3. Þeir hétu Helgi Sveinsson, Jós- ep Flóventz, Reynir Árnason og Gunnar Jóhannsson. 4. Já. 5. Þessu getum við ekki svarað, þar sem hér fer engin keppni fram í fimleikum nú orðið. Hr. ritstjórar. Mig langar til að spyrja ykkur nokkurra spurninga um leið og ég þakka kærlega fyrir heftin, sem út hafa komið. Jón Sigurjónsson. 1. Hvað kastar T. Hyytiáinen spjótinu langt? 2. Hvað kastar heimsmeistarinn spjótinu langt og hvenær byrj- aði hann að æfa? 3. Mig langar til að biðja um pláss fyrir Jóel Sigurðsson í þættin- um „fsl. íþróttamenn“? S v a r : 1. Hans bezti árangur er 74.55 m. Unnið í ágúst 1946. 2. Yrjö Nikkanen, Finnlandi, á Frh. á bls. 78. Frh. af bls. 75. reyna að ganga í augu íþrótta- manna utan höfuðstaðarins, en hún hefur fram að þessu átt að mestu leyti atkvæðum þeirra á Í.S.Í.-þingum líf sitt að launa. En að það sé auðveldasta leiðin til atkvæðasmölunar að sverta á ósvífinn hátt þá menn, sem fremst hafa staðið í reykvíkskum íþrótta- málum og ætíð eru reiðubúnir að leggja hart að sér þeirra vegna, skal ekki farið út í hér, heldur beðið úrslita stjórnarkosningar á næsta ársþingi Í.S.Í. Þá er tæki- færið fyrir reykvíska íþróttamenn að standa saman í fyrsta sinn! 74 IÞRÓTTIR

x

Allt um íþróttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.