Allt um íþróttir - 01.03.1951, Qupperneq 3
ALLTUM ÍÞRÓTTIR
TÍMARIT UM INNLENDAR DE ERLENDAR ÍÞRDTTIR
ritstjdrar: utanáskrift:
RAGNAR INGGLFSSDN ÖG QRN EIÐSSDN TÍMARITIÐ ÍÞRDTTIR,
Ábyrgðarmaður: víðimel 31
GÍSLI Á5MUNOSSON SÍMI: 5D55 - KL. 9—11 ÁRD. -
3. HEFTI MARZ
II. ÁRG.
íþróttafélögin í Reykjavík hafa
undanfarið legið undir þungum
ámælum, borin þeim sökum, að
hafa vínveitingar á samkomum
meðlima sinna. Aðaláróðursmenn
þessara dylgja eru meðlimir
Áfengisvamarnefndar Reykjavík-
ur, og virðast þeir hafa fullan hug
á að koma öllum almenningi til
þess að trúa þessu, en flestum er
ókunnugt um, hvað þeir þykjast
vinna með því að ata íþróttafé-
lögin þeim auri, sem raun hefur
á orðið.
Þeir, sem málinu eru bezt kunn-
ugir og raunar flestir höfuðstað-
arbúar, vita hið sanna, að þær
samkomur, sem hér er um að ræða,
eru opinberir dansleikir, sem eru
haldnir félögunum til fjáröflunar
og eru ekki ætlaðir fyrir íþrótta-
menn né sóttir af þeim, þótt ekki
sé hægt að meina þeim aðgang
fremur en öðrum frjálsum mönn-
um.
Burtséð frá þessum óheiðarleik
Áfengisvarnamefndar er þó enn
alvarlegri framkoma ýmissa
manna innan íþróttahreyfingar-
innar og þarf ekki að kynna þá
hér, en þar sem þetta greinarkom
á einkum að vera tileinkað þeim,
er óhjákvæmilegt að minnast
þeirra manna, er fara með stjóm
íþróttasambands íslands.
Það er alkunna, að æ ofan í æ
hafa þeir komið af stað óheppi-
legum deilumálum og ávallt orðið
að láta í minni pokann. Og enn
hafa þeir hlaupið á sig og nú í
sambandi við hin svonefndu áfeng-
ismál. Þrátt fyrir það, að þessum
forkólfum séu mæta vel kunnir
málavextir, taka þeir sig til og for-
dæma opinberlega framkomu
íþróttafélaganna á sömu forsend-
um og Áfengisvarnanefnd!
Reykvískir íþróttamenn geta
alltaf búizt við slíku úr þessari átt,
en þeim er samt ráðgáta, hvað
liggur á bak við þetta frumhlaup
Í.S.Í.-stjómarinnar. Næst hafa
menn komizt sanni, að hún sé að
Frh. á bls. 74.
IÞRÓTTIR
75