Allt um íþróttir - 01.03.1951, Síða 4
Holmenkollen 1951:
Sláttvik vann „Kongepokalen" í 3. sinn.
Arae Hoel sigraði í stökkum og Stein Eriksen í tvíkeppni
í brani og svigi.
Norðmenn buðu 8 þjóðum til
þátttöku í þessu 54. Holmenkollen-
móti, sem fram fór dagana 18.—
25. febrúar s.l. Voru því margir
af beztu skíðamönnum heimsins
samankomnir þar og keppni hörð
og spennandi.
Fyrir keppnina litu Norðmenn
björtum augum á frammistöðu
sinna „gutta“ og höfðu ástæðu til
þess, sem og kom á daginn. Svig-
maðurinn Sten Eriksen hafði á
mótum í Mið-Evrópu staðið sig frá-
bærlega vel og fekk nú einstakt
tækifæri til að reyna sig við alla
beztu svigmenn Evrópu. Strax eft-
ir fyrri umferð var sigurinn nokk-
uð viss, 66.8 sek. og bezti tíminn.
Colo frá Ítalíu var með 67.7, Dal-
man, Svíþjóð 69.3 og Couttet,
Frakkl. 69.9. Þessi röð hafði ekki
tekið breytingum eftir aðra um-
ferð og aftur náði Eriksen bezta
tíma, 66.9, en hinir voru með 67.1,
67.9 og 67.6. En bjöminn var samt
ekki unninn, því að nú var eftir
að vita, hvernig Eriksen tækist í
bruninu, en hér var um tvíkeppni
að ræða. Couttet varð þar fyrstur
á 2:31.2, en Eriksen varð að láta
sér lynda 6. sæti, sem var þó miklu
meira en nóg til þess að sigra í
Nils Karlsson
tvíkeppninni. Þannig höfðu Norð-
menn aftur, eftir f jölda mörg ár,
tekið forystuna í Alpagreinunum.
Úrslit í svigi:
1. Stein Eriksen, Noregi .... 133.7
2. Zeno Colo, Italíu ........ 1:34.8
3. Olle Dalmann, Svíþjóð .... 137.2
4. James Couttet, Frakklandi .. 137.5
5. -6. Ch. Pravda, Austurríki . . . 137.6
5.-6. O. Schneider, Austurríki . 137.6
Úrslit í bruni:
1. James Couttet, Frakkl.....2:21.2
2. Ch. Pravda, Austurríki .... 2:31.3
3. -5. H. Stenger, Austurríki .. 2:33.2
IÞRÓTTIR
76