Allt um íþróttir - 01.03.1951, Blaðsíða 12
H. M. í.:
VALUR varð lslandsmeistariD
Vann alla sína leiki með yfirburðum.
Þann 23. febr. s.l. fóru tveir síð-
ustu leikir íslandsmótsins í hand-
knattleik karla fram á Háloga-
landi. Sá fyrri var milli Víkings og
Fram, íslandsmeistaranna 1950.
Flestir bjuggust við sigri Fram-
ara, en það fór á annan veg. Hinir
ungu og efnilegu Víkingar sýndu
sterkan og góðan leik og tókst að
koma Fram niður í fjórða sæti.
Er alveg áreiðanlegt, að þetta lið
Víkinga á eftir að hita Val og Ár-
manni í hamsi áður en lýkur. Eini
gallinn á þessum efnilegu leik-
mönnum er fullmikill skapofsi, er
þeir ættu að venja sig af sem fyrst.
Áhorfendur biðu úrslitaleiksins
með mikilli eftirvæntingu og urðu
heldur ekki fyrir vonbrigðum með
hann. Leikmennimir spiluðu fast,
eins og vera ber um úrslitaleik,
en samt drengilega og án alls
ruddaskapar. Slíkir leikir eru lið-
unum til mikils sóma og áhorf-
endum til ánægju.
Það fór eins og marga grunaði,
að Valur sigraði, og má segja, að
Valsmenn séu vel að sigri sínum
komnir. Þeir unnu Ármann með
12:7, Fram með 12:7, Í.R. með
13:7, Víking með 13:7 og Aftur-
eldingu með 20:10. Valur hlaut
því 10 stig, Ármann 8, Víkingur 6,
Fram 4, Í.R. 2 og Afturelding ekk-
ert og fellur því niður í B-deild.
K.R. vann B-deildina með yfir-
burðum, hlaut 4 stig, F.H. fekk 2
og Í.A. ekkert.
Eins og sagt var hér í ritinu s.l.
haust eftir hraðmótið, er ekki
hægt að búast að handknattleiks-
menn okkar taki frekari framför-
um í íþróttinni, fyrr en löglegur
salur stendur til boða. Við viljum
endurtaka þetta núna, því að
aldrei er góð vísa of oft kveðin.
Líklega myndi samt úrvalslið, sem
skipað yrði beztu mönnum okkar
í dag, vera sterkara en í fyrra-
vetur.
Árið sem leið, háðu íslenzkir
handknattleiksmenn þrjá lands-
leiki, töpuðu fyrir Dönum og Sví-
um, en gerðu jafntefli við Finna.
Ennþá hefur ekkert heyrzt um
landsleiki í ár, en hvemig væri
að athuga leik gegn Norðmönnum
næst?
Forsíöumyndin er af lslandsmeist-
urum Vals. Þeir eru þessir, taliö frá
vinstri. Aftari röö: Sveinn Helgason,
Halldór Lárusson, Valgeir Arsœlsson,
Bragi Jónsson. I miöiö: Sigurhans
Hjartarson, Valur Benediktsson, Hall-
dór Hdlldórsson. Fremst eru mark-
veröirnir Stefán Hallgrímsosn og Sól-
mundur Jónsson. — Ljósmyndari var
Ragnar Vignir.
84
ÍÞRÓTTIR