Allt um íþróttir - 01.03.1951, Blaðsíða 15
Heimsmeistarar í skák — H:
PAUL MORPHY
-- 18 5 8. -
Ef nokkur skákmeistari getur
með réttu tekið sér í munn orð
Cæsars: „Ég kom, ég sá, ég sigr-
aði“, þá var það Bandaríkjamað-
urinn Paul Morphy. Hann fór um
skákheiminn eins og hvirfilvindur,
feykti öllu með sér og hvarf eins
snögglega og hann kom, en eftir
skildi hann áhrif og afrek, sem
gert hafa nafn hans ódauðlegt í
söku skáklistarinnar.
Morphy fæddist í New Orleans
22. júní 1837, sonur írsks dómara.
Hann varð snemma hneigður fyr-
ir skák, en hann var jafnframt
gæddur mjög alhliða gáfum, feyki-
legur málamaður og áður en hann
hafði náð tvítugsaldri, hafði hann
tekið próf í lögum. Fyrsti stóri
skáksigur hans var í miklu skák-
móti í New York 1857, þar sem
meðal annarra tók þátt frægur
þýzkur skákmeistari, Louis Paul-
sen. Næsta ár hélt Morphy til Ev-
rópu og háði einvígi við sterkustu
meistara álfunnar, þar á meðal
Adolf Anderssen, sem hann sigr-
aði með 8:3. Þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir Morphys til að fá keppni
við Englendinginn Staunton, sem
talinn var ganga næst Anderssen,
fór hann ávallt undan í flæmingi,
en sigurinn yfir Anderssen var svo
ótvíræður, að hann nægði til að
skapa honum orð sem fremsta
skákmeistara heimsins.
Eftir sigurförina um Evrópu
hélt Morphy aftur heim 1859 og
dró sig eftir það alveg í hlé, enda
var hann orðinn heilsuveill. Hann
bjó í kyrrþey í New Orleans til
dauðadags, 10. júlí 1884.
Hvað var það, sem olli því, að
Morphy bar höfuð og herðar yfir
samtímamenn sína?
Morphy var einhver mesti skák-
snillingur, sem uppi hefur verið,
glöggskyggn á kombinasjónar-
möguleika, fullur dirfsku og sig-
urvilja. Ennfremur tefldi hann
samkvæmt nýjum, áður óþekktum
hugmyndum, sem ruddu braut
nýjum leiðum í skákkenningum
og -fræðum. í fyrsta skipti var
samleikur og samstilling mann-
anna látin sitja í fyrirrúmi. Paul
Morphy leitaðist ávallt við að leika
mönnum sínum fram, hratt og
skynsamlega og ávallt þannig, að
þeir stæðu í beinu sambandi hver
við annan. Jafnframt hafði hann
nánar gætur á möguleikum á að
„vinna tempó“.
Morphy varð því fyrsti og
fremsti snillingur hins opna stíls.
Hann var að vísu eftirbátur An-
IÞRÓTTIR
87