Allt um íþróttir - 01.03.1951, Síða 21
Margar ánægjustundir höfum
við átt í sundhöllinni, bæði þá og
síðar, og þótt margar æfinganna
hafi verið erfiðar og við varla
komizt upp á bakkann að æfingu
lokinni, þá var þreytan jafnan
horfin burt við glens og gaman
þjálfaranna, sem stóðu á bakkan-
um.
Árangurinn á Ólympisku leik-
unum varð eins og gert var ráð
fyrir, en förin varð, sem vænta
mátti, hin ánægjulegasta í alla
staði.
Eftir þessa utanferð hef eg æft
að mestu undir handleiðslu Jónas-
ar Halldórssonar sundkennara, og
nú í vetur hef ég verið í skólanum
fyrir hádegið, þannig, að nú get
ég notað síðari hluta dagsins til
æfinga.
Nú langar mig til að bera fram
spumingu: Hvernig stendur á því,
að stúlkur hér á landi eru svo treg-
ar til að æfa sund? Ég held, að
skýringin á þessu sé sú, að þegar
stúlkur hafa náð vissu aldurstak-
marki, þá telji þær sér ekki fært
að dýfa höfðinu í vatn, því þá
fari „krullurnar" úr skorðum!!
En hvort heldur þú, lesandi góð-
ur, að heilbrigðara sé ungum stúlk-
um, að fara í sund, eða eyða tíma
sínum á kaffihúsum eða í spill-
ingu samkvæmishúsanna?
Ég hvet allar stúlkur á öllum
aldri til að fara í sund dálítinn
tíma, og síðan geta þær gert upp
við sig, hvar þær telja frístundum
sínum bezt varið.
Þórdís Árnadóttir.
Magnús Brynjólfsson
svigmeistari Akureyrar.
Skíðamót Akureyrar fór fram
um síðustu mánaðamót. Helztu úr-
slit urðu þau, að í A-flokki í svigi
varð Magnús Brynjólfsson, KA,
fyrstur og því svigmeistari Akur-
Mngnús Brynjólfsson
eyrar 1951. Annar varð Guðmund-
ur Guðmundsson, fyrrum skíða-
kappi íslands, og þriðji Hermann
Ingimarsson, Þór. í B-flokki sigr-
aði Sigtryggur Sigtryggsson, KA.
2. varð Freyr Gestsson, KA og 3.
Haukur Jóhannsson. í C-flokki
sigraði Haukur Ámason, ÍMA.
í 4x10 km. boðgöngu varð A-
sveit KA utskörpust á 2 ldst.
31 mín. og 14 sek. Önnur varð B-
sveit KA 2:-36.17. Akureyrar-
meistarar KA 1951 eru: Haukur
Jakobsson (37.44), Bergur Eiríks-
son (35.57), Friðrik Guðmundsson
(41.16) og Guðmundur Guðmunds-
son (36.17).
IÞRÓTTIR
93